Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Page 159

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Page 159
157 við Háskóla íslands. Ég var ráðvilltur, fannst ég kominn í hálfgerðar ógöngur sem kennari. Þegar ég byrjaði að kenna kennaranemum hafði ég veðjað á ákveðna hugmyndafræði, svokallaða hugsmíðahyggju (constructivism) en samkvæmt henni skapar hvert og eitt okkar sinn eigin þekkingaheim í glímunni við veruleikann. Kennaranemunum, þátttakendum í námskeiðinu Kennslufræði náttúrufræðigreina sem ég hafði komið á koppinn, leist prýðilega á þessa hugntynd og lofuðu jafnvel að hugsa svona urn eigin nemendur þegar þeir færu að kenna. Þegar á reyndi varð þeim ekki kápan úr því klæðinu. Þegar ég fylgdist með athöfnum þeirra í svokallaðri æfingakennslu (sem er hluti af kennaranáminu) gat ég ekki greint að þeir væru að kenna í samræmi við hugsmíðahyggju. Að kenna í anda hugsmíðahyggju merkir til dæmis að leggja rækt við umræður og hlusta eftir hugmyndum nentenda fremur en að einblína á að „koma þekkingunni til skila“ eins og það er gjarnan orðað. Það sem ég sá á vettvangi var fyrst og fremst þessi áhersla á þekkingarmiðlun, til dæmis í formi fyrirlestra. Raunar kont þetta mér ekki á óvart. Ég hafði sjálfur lent í nokkrum vandræðum þegar ég fór að kenna efnafræði í anda hugsmíðahyggju í mínum eigin skóla. Þá sögu hef ég sagt á öðrum stað (Guðjónsson, 1991) og skal hún því ekki endurtekin hér. Þó vil ég láta þess getið að í þeirri sögu kenni ég „yfirferðadraugnum" um ófarir mfnar en sá draugur staglast á því að það skipti mestu máli að komast yfir sem mest efni, að magn upplýsinga skipti meira máli en gæði náms. Þessar minningar - „baslið með hugsmíða- hyggjuna" - voru mér ofarlega í huga þegar ég hélt til náms í Kanada sumarið 1997 og létu mig raunar ekki í friði þegar þangað var komið. Það kom því næstum því af sjálfu sér að ég gerði þeint einhver skil þegar ég ákvað að fara í doktorsnám og rannsaka eigið starf. Raunar varð „baslið” útgangspunkturinn í ritgerðinni, nokkuð sem sést af því að þegar inngangskaflanum sleppir kemur kafli sem heitir „Early Struggles with Constructivism”. Það væri ofsögum sagt að ég hefði komist til botns í vandræðum mínum. Hins vegar tókst mér, með hjálp leiðsögumanna minna, að yrða „baslið” með nýjum hætti, búa til nýja og líklega gagnlegri sögu um mig og hugsmíðahyggjuna. í gömlu útgáfunni var ég mjög áberandi - sem einstaklingur að brjótast áfram, sem gerði þetta og hitt með misjöfnum árangri. I nýju sögunni er sviðið orðið mun flóknara og ég einungis lítill hluti af flóknum vef þar sem menningin og tungumálið eru uppistaðan. I nýju sögunni er hugsntíðahyggja ekki lengur einhver „pakki” handa kennaranemum heldur nýtt tungumál um skólastarf. Nú fannst mér ég skilja betur af hverju gangan með hugsmíðahyggjuna hafði orðið slík þrautarganga. Talshættir um kennaranám Þegar ég byrjaði í námi mínu í Kanada fór ég eðlilega að kynna mér fræði um kennara- menntun. Þá varð ég þess áskynja að innan þessa sviðs hafði orðið til samfélag fræðintanna sem beindi athygli sinni að kennaranámi (teacher Iearning), þ.e. spurningunni um hvað kennaranentar læri og hvernig (Feiman- Nemser og Remillard, 1996). Ég tók líka eftir því að þessir fræðimenn virtust flestir hallir undir hugsmíðahyggju. Þeir spáðu til að mynda mikið í forhugmyndir kennaranema (Richardson, 1996), hvernig þeir hugsuðu um menntun og skólastarf við upphaf formlegs kennaranáms, hvaða áhrif þessar hugmyndir hefðu á nám þeirra í kennaraskólanum, hvort þær breyttust og þá hvernig. Sumir fræðimenn, til dæmis Zeichner (1987), drógu í efa að hugsun kennaranema breyttist að ráði í kennaranáminu og ef það gerðist, væru þeir yfirleitt fljótir að má burt slík fingraför þegar þeir færu að kenna - slíkur væri áhrifsmáttur skólans og skólastofunnar. Þegar umræða um kennaramenntun tekur á sig þennan blæ, þegar menn eru farnir að spá í áhrif umhverfisins á nám kennaranemans, eru fræðintenn á borð við Lev Vygotsky (1978), Jerome Bruner (1996), Michael Cole (1996), Jean Lave (1996) og James Wertsch (1991) oft á næsta leiti. Þeir leggja áherslu á að hugsun mannsins mótist af því umhverfi sem hann býr við. Orðið Tímarit um menntarannsóknir, 1. árgangur 2004
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236
Page 237
Page 238
Page 239
Page 240
Page 241
Page 242
Page 243
Page 244
Page 245
Page 246
Page 247
Page 248
Page 249
Page 250
Page 251
Page 252
Page 253
Page 254
Page 255
Page 256
Page 257
Page 258
Page 259
Page 260

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.