Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Side 208

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Side 208
206 Greina má nokkur skýr einkenni hvað varðar notkun upplýsinga- og samskiptatækni í námi og kennslu í skólunum þremur á þeim tíma sem könnunin var lögð fyrir. Niðurstöður benda til að notkun upplýsinga- og samskiptatækni í námi og kennslu í skólunum sem um ræðir hafi verið orðin almenn meðal nemenda og kennara og viðhorf til notkunar hennar á heildina litið verið jákvæð. Þegar notkun forrita, sem ekki tengjast notkun Netsins sérstaklega, var skoðuð, kom í ljós að meðal nemenda var notkun ritvinnslu útbreiddust en töflureiknir og glærugerðarforrit komu þar á eftir, en voru þó mun minna notuð. Önnur forrit voru takmarkað notuð og hátt hlutfall nemenda notaði þau aldrei. Glærugerðarforrit var einkennandi fyrir forritanotkun kennara þegar þeir undirbjuggu kennslu og glærusýningar voru einkennandi í kennslunni sjálfri.Getur þar bæði verið um að ræða glærusýningar þar sem tölva með skjávarpa er notuð en einnig glærur þar sem myndvarpi er notaður. Ritvinnsluforrit var það sem næst komst glærugerðarforriti. Ekki verður um það deilt að ritvinnsla, töflureiknir og glærugerðarforrit hafa hvað mesta útbreiðslu í tölvunotkun almennt, ef miðað er við hugbúnað sem ekki þarfnast tengingar við Netið. Því komu þessar niðurstöður ekki á óvart. Áhugaverðara er kannski frekar að skoða hvaða hugbúnaður var lítið nýttur af nemendum og kennurum og hvort það gefi einhverjar vísbendingar um þróun í notkun upplýsinga- og samskiptatækni í námi og kennslu. I þessu sambandi er fyrst að nefna að vefsíðugerðar- og myndvinnsluforrit voru aldrei notuð af stórum hluta nemenda og kennara. Færa má rök fyrir því að þessi forrit bjóði upp á fjölbreytilega möguleika fyrir kennara og nemendur, t.d. í heimasíðugerð, námsefnisgerð á vef og verkefnavinnu. Niðurstöður könnunar á notkun Netsins og hugbúnaðar sem því tengist varpa ljósi á ýmislegt sem tengist aðferðum í námi og kennslu og eðli samskipta milli nemenda og kennara. Nemendur virtust almennt nýta sér Netið til upplýsingaleitar og efnisöflunar í námi en niðurstöður benda til að kennarar hafi lítið verið famir að nýta slíkt efni með beinum hætti í kennslunni. Til marks um það notaði t.d. meira en helmingur kennara krækjusöfn sjaldan eða aldrei sem námsefni fyrir nemendur sína. Ekki er hægt að fullyrða út frá niðurstöðum könnunar að kennarar hafi ekki nýtt Netið til að afla efnis vegna kennsl- unnar. Hér er einungis vísað til þess hvort kennarar leggi slíkt efni fram með skipulegum hætti fyrir nemendur, t.d. í formi krækjusafna. Varpa má fram í þessu tilliti þeirri spurningu hvort nemendur verði af ákveðinni hvatningu til að dýpka þekkingu sína á fræðunum ef slíkt er ekki nýtt. Vefkennslukerfi (t.d. WebCT eða innranet skóla) vom almennt mikið notuð í námi og kennslu þó mest til miðlunar námsefnis og var notkun Netsins tíðust í þessum tilgangi auk tölvusamskipta í tölvupósti. Þessar niðurstöður komu ekki á óvart. Collis og van der Wende (2002) hafa bent á að notkun glærugerðarforrita, tölvupósts og vefsins, sérstaklega vefkennslu- kerfa, hafi leitt til ákveðinnar þróunar í miðlun námsefnis. Þróun felist fyrst og fremst í meiri skilvirkni í skólastarfinu en tæknin hafi ekki breytt aðferðum í námi og kennslu. Ljóst er, að tölvupóstur er mikið notaður í námi og niðurstöður sýndu að nemendur notuðu hann mest til samskipta við samnemendur en einnig töluvert til verkefnaskila og fyrirspurna til kennara. Nemendur notuðu einnig spjall á Netinu í talsverðum mæli en niðurstöður benda til að spjall á Netinu hafi, þegar könnunin fór fram, lítið verið notað sem samskiptamiðill milli nemenda og kennara. Gunn og Barnett (2001) fjalla um reynslu sína af notkun spjalls á Netinu í kennslu. Þau benda á þann meginkost hversu öflugt það sé sem miðill til að byggja upp bekkjarmenningu (e. class cultare) og koma í veg fyrir einangrunartilfinningu meðal nemenda sem stunda nám á Netinu. Niðurstöður könnunar á reynslu nemenda af hinum ýmsu kennsluaðferðum leiddu í Ijós að fyrirlestrar með glærum skipuðu þar stóran sess og töldu nær níu af hverjum tíu nemendum fyrirlestra henta mjög vel eða vel sem kennslu- aðferð. Glærusýningar voru einnig rikjandi Tímarit um menntarannsóknir, 1. árgangur 2004
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236
Side 237
Side 238
Side 239
Side 240
Side 241
Side 242
Side 243
Side 244
Side 245
Side 246
Side 247
Side 248
Side 249
Side 250
Side 251
Side 252
Side 253
Side 254
Side 255
Side 256
Side 257
Side 258
Side 259
Side 260

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.