Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2004, Side 238
236
Umræða
Megin niðurstöður í þessari könnun eru þær að
notkun Netsins er almenn meðal nemenda og
kennara sem tóku þátt í henni og viðhorf þeirra
til UST jákvæð. Þeir leita á Netinu að efni til
að nýta í námi og kennslu og senda verkefni
sín á milli.
Viðhorf til notkunar UST í námi og kennslu
eru jákvæð, en þótt að notkun á Netinu og
tölvupósti sé almenn og geti nýst í námi og
kennslu, þá eru nýjungar sem falla undir UST
ekki mikið nýttar, s.s. rafrænar æfingar og
próf, umræður á Netinu og vefsíður. Kennarar
eru ekki sannfærðir, um að notkun á UST
leiði til betri árangurs og nemendur eru ekki
sannfærði um að það hjálpi þeim í námi. UST
er nýtt til hagnýtra hiuta og samskipta en það
er ekki ljóst hversu mikla hjálp hún veitir í
námi og kennslu.
Hegðun og viðhorf kennara í þessari
rannsókn gefa til kynna að notkun UST hafi
ekki valdið miklum breytingum í kennslu. Ný
tækni hefur breytt og kannski einfaldað hagnýt
atriði varðandi undirbúning kennslu og vinnu
nemenda, en ekki leitt til nýrra aðferða við
kennslu. Þetta er í samræmi við niðurstöður í
skýrslu Collis og van der Wender frá 2002, en
þar kemur fram að ".. .the use ofe-mail and the
use ofWeb resources is a common phenomenon
in the educational practice, where other ICT
forms...are used little or in a much more
limited extent" og einnig "...ICT use, in terms
of e-mail, word processing, PowerPoint, and
the Web, has become standard as part of the
teaching and learningprocess." og ".. .ICThad
clearly become part ofthe blend..." (Collis og
Wende, 2002).
Spurningin er hvað hefur breyst? Er það
aðeins samskiptaformið og auðveldari aðgangur
að upplýsingum? Hvers vegna er breytingin
ekki meiri en raun ber vitni? Michael Fullan
hefur lagt áherslu á tvö atriði sem hafa áhrif á
breytingu í skólastarfi (Fullan, 2000). Fyrst eru
það stöðugar breytingar sem kennari verða að
bregðast við og síðan þrýstingur á breytingar
og möguleiki til breytinga. Weinstein (1998)
heldur því fram að það sé nauðsynlegt að
hjálpa nemendum og kennurum til að breyta
hugmyndum sínum ef breyta á skólum. Aðrir
eins Schank og Jona (1999) leggja áherslu
á að tæknin í skólum muni breyta hlutverki
kennara, nemenda og þróun námsskrár og
námsefnis.
Erfitt er að svara því hvers vegna UST skipar
ekki hærri sess í menntun í dag. Kennarar
eru vel undirbúnir og hafa verið duglegir
að sækja námskeið, skólar hafa þokkalega
aðstöðu hvað varðar vél- og hugbúnað og
menntamálayfirvöld hafa lagt áherslu á
aukningu í notkun UST. Samt sem áður eru
kennarar ekki sannfærðir og breytingin er hæg.
Notkun UST getur haft mismunandi forgang
hjá kennurum eða skólum eins og Resnik
segir “The Internet acts as a type of Rorschach
test for educational philosophy. When some
people look at the Internet, they see it as a
new way to deliver instruction. When other
people look at it, they see a huge database for
leamers to explore. When I look at the Intemet,
I see a new medium for construction, a new
opportunity for learners to discuss, share. and
collaborate on constructions” (Resnik, 1996).
Erfitt er að segja til um hvað er næg eða
æskileg notkun á UST í skólum þar sem
notkunin er í sífelldri þróun og ný tækifæri
bjóðast með nýjum vél- og hugbúnaði en
hægt er að fullyrða að þróunin hafi verið hæg
og hugsanlega þarf meiri hvatningu sem og
stuðning og aðstoð fyrir kennara. Breytingar
geta ógnað og valdið óöryggi og nauðsynlegt
er að finna og greina afstöðu og umræðu til
að stuðla að breytingum (Fox og Hermann,
2000).
Lágt svarhlutfall framhaldsskólanema í rann-
sókninni kom á óvart og vekur upp spurningar
um rafræna gagnasöfnun, en hafa ber í huga
að svör rúmlega 2000 nemenda er um 10%
nemendafjölda á framhaldsskólastigi á íslandi
árið 2002. Svarhlutfall kennara er betra en
þó ekki gott en rúmlega 400 svör eru 32% af
framhaldsskólakennurum landsins árið 2002.
Ekki er hægt að segja að þetta endurspegli
notkun á UST í námi og kennslu eða hvort
aðrir þættir liggji að baki t.d. að könnunin hafi
Tímarit um menntarannsóknir, 1. árgangur 2004