Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Side 18
Anna Helga Jónsdóttir, Freyja Hreinsdóttir, Guðrún Geirsdóttir, Rögnvaldur G. Möller og Gunnar Stefánsson
eftir skólum, kynjum o.s.frv. (Neter, Kut-
ner, Wasserman og Nachtsheim, 1996).
Þegar kanna skal tengsl mælingar við
margar breytur er hér byrjað með stórt lík-
an og þær breytur sem ekki tengjast mæl-
ingunum á marktækan hátt fjarlægðar ein
í einu (e. backward selection), þar til líkan
fæst sem skýrir sem best mælingarnar og
tengsl þeirra við skýribreyturnar. Byrjað
var með eftirfarandi líkan:
y ij klmnop = V + sk°lÍ, + Sarj + SÍSk + aÍSl
þar sem // táknar meðaleinkunn, skoli
táknar framhaldsskóla (i = 1, ..., 22), sar
táknar stúdentsprófsár (j = 1, 2, 3, 4), sis
táknar síðast í stærðfræði (k = 1, 2, 3, 4),
ais táknar annir í stærðfræði (l = 1, 2, 3, 4),
namskeid táknar námskeið (m = 1, 2, 3, 4),
nam táknar námsbraut sem nemandi er
innritaður á í Háskóla íslands (n = 1,..., 13),
kyn táknar kyn (o = 1, 2) og e eru leifarnar.
Dreifigreining var framkvæmd með aov
og dropl-skipunum í tölfræðiforritinu R
(R Development Core Team, 2008). Breytur
sem ekki voru marktækar, miðað við 5%
a-stig, voru fjarlægðar þangað til líkanið
innihélt einungis marktækar breytur.
Ákveðið var að fylgja eftir nemendum
í Stærðfræðigreiningu IB, sem flestir eru
verkfræðinemar, en þessir nemendur eiga
samkvæmt kennsluskrá að ljúka fram-
haldsnámskeiði í stærðfræðigreiningu,
Stærðfræðigreiningu IIB, misserið eftir
könnunarprófið. Þetta var gert til að kanna
forspárgildi könnunarprófsins fyrir getu
nemenda til lengri tíma og voru niður-
stöður könnunarprófsins notaðar til að spá
fyrir um hvort nemendur lykju við Stærð-
fræðigreiningu IIB. Til þess þarf fyrst að
finna viðmiðunargildi þannig að nemend-
um sem sýna betri árangur en viðmiðun-
argildið á könnunarprófinu er spáð að þeir
ljúki námskeiðinu en hinum ekki. Svo má
reikna út næmni (e. sensitivity) og sértækni
(e. specificity) prófsins en þær lýsistærðir
lýsa gæðum flokkunaraðferða sem flokka
viðfangsefni í tvo hópa. Næmni táknar hér
hversu vel könnunarprófið nær að flokka
rétt þá sem náðu Stærðfræðigreiningu
IIB og sértækni hversu vel könnunar-
+ namskeidm + namn + kyn, + eIJklmnop
prófið nær að flokka rétt þá sem ekki náðu
Stærðfræðigreiningu IIB. Youdens-aðferð
(Youden, 1950) var notuð til að finna við-
miðunargildið en sú aðferð gengur út á að
finna það viðmiðunargildi sem hámarkar
summuna af næmni og sértækni prófsins.
Niðurstöður
Lýsandi tölfræði - bakgrunnur nemenda
Eins og sjá má í 1. töflu eru nemendur á
ólíkum námsleiðum í námskeiðunum fjór-
um. Til að fá yfirsýn yfir mismunandi bak-
grunn nemenda í námskeiðunufn fjórum
má sjá hlutfallslega skiptingu á fjölda anna
í stærðfræði í framhaldsskólum og hvenær
nemendur sátu síðast í stærðfræðiáfanga
eftir námskeiði í 3. töflu. Hér er ekki hægt
að meta hvort nemendur tóku fleiri en
einn námsáfanga í stærðfræði á einhverri
önn eða hvort þeir féllu og tóku sama
námsáfanga oftar en einu sinni, en svörin
ættu þó að gefa einhverjar vísbendingar
um fyrra nám nemenda.
Sjá má að 58% nemenda í IA voru 8 ann-
ir í stærðfræði í framhaldsskóla en aðeins
30% nema í IC. Einnig má sjá að bakgrunn-
ur nemendahópsins í IC er mun blandaðri
16