Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 56

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 56
Gestur Guðmundsson og Hulda Karen Ólafsdóttir brotthvarf viðmælenda okkar til einstakra orsaka, heldur miklu fremur til að draga fram samspil ólíkra þátta. Áhrif félags- legs uppruna taka á sig margar myndir, til dæmis segja nokkrir að foreldrarnir hafi ekki getað veitt fjárhagslegan stuðning, en enginn telur það þó hafa ráðið úrslitum. Viðmælendur leggja miklu ríkari áherslu á að foreldrar þeirra hafi ekki getað veitt þeim nauðsynlega leiðsögn um námsval og um skynsamlegt val á lífsstíl á fram- haldsskólaárunum. Margir foreldrar við- mælenda, sem annaðhvort höfðu enga framhaldsskólamenntun eða voru iðnað- armenn, hafi hvatt börn sín til að fara í almennt menntaskólanám, en hafi síðan ekkert fylgst með skólagöngu þeirra, ekki veitt þeim aðhald né fylgst með hvað þau voru að læra eða hvort þau voru að læra. í sumum tilvikum voru börnin fjarri for- eldrum sínum en oftar virðist sem foreldr- ar hafi ekki talið það á sínu færi að fylgjast með börnunum heldur væri skólaganga samstarfsverkefni unglings og skóla. Þegar iðnaðarmenn eða ófaglærðir í hópi foreldra hafi hvatt börn sín til að fara í almennt studentsprófsnám hafi það gjarn- an gerst að börnunum fyndist þau ekkert hafa til þekkingar og reynslu foreldranna að sækja. Nokkrir viðmælenda okkar hafa þannig lent í menningarlegu tómarúmi. Þeim hafa fundist foreldrar sínir dæma eigin menningararf gagnslausan en um leið geta þeir ekki tengt skólamenningu, þar sem bókmenningin færist í aukana með hverju skólaárinu, við eigin uppvöxt og rætur. Reyndar áttu tveir viðmælendur okkar annað foreldri með háskólapróf, en þau segja bæði að þau hafi aldrei tengt sig við þennan bakgrunn foreldris; annað samsamaði sig mun frekar lítt mennt- uðum, vinnusömum ættmennum hins for- eldris, en hitt segir að það hafi alltaf legið betur fyrir sér að „vinna með höndunum". Bæði völdu þau samt almennt bóknám í framhaldsskóla, töldu það almennt við- mið og foreldrar þeirra voru sama sinnis. í sumum tilvikum gera viðmælendur ekki mikið úr hvatningu foreldra heldur lýsa upphafi framhaldsskólagöngu sinnar þannig að þeir hafi borist með straumnum. Ein konan lýsir því þannig að hún hafi á þeim tíma ekki vitað að til væri iðnnám og iðnskólar en hefði leitað þangað hefði hún vitað það. Sögurnar bera þess vitni að áhrif félags- legs uppruna eru flókin eins og Bourdieu hefur sýnt fram á (Gestur Guðmundsson, 2012; Reay, 2005). Hvatning til náms nægir ekki heldur skiptir miklu máli hvort henni fylgir miðlun menningararfs, og slík miðl- un fellur stundum í grýttan jarðveg og önnur áhrif úr umhverfinu verða sterkari. Vegferð eftir brotthvarf Vegferðin eftir brotthvarf er að verulegu leyti kynbundin. Allir karlkyns viðmæl- endur helltu sér út í vinnu. Sumir þeirra komust í mikil uppgrip og þénuðu vel en aðrir voru til skiptis í iðnnámi/starfs- þjálfun og í almennri launavinnu. Vegferð kvenkyns viðmælenda byrjaði oftast sem jójó-ferð milli láglaunastarfa og barneigna. Öfugt við karlmennina, sem lýsa vegferð sinni út úr skólum frekar sem sigurgöngu, en að erfiðleikar hafi síðan steðjað að með versnandi atvinnuástandi, greina sumar konurnar frá deyfð og andlegum erfið- leikum eftir að þær hættu í skóla. Ólíkt karlmönnunum hafi vegferð þeirra smám 54
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.