Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 144

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 144
Kári Kristinsson, Tinna Dahl Christiansen og Friðrik Eysteinsson Val á háskólanámi er ein af stærstu ákvörðunum sem margir einstaklingar standa frammi fyrir á lífsleiðinni. Hér á landi er námsframboð mikið og að mörgu að hyggja við valið. Tvær spurningar eru þó sérstaklega mikilvægar fyrir nemendur á leið í háskólanám. Sú fyrri er hvort það sé þess virði að greiða töluvert hærri skóla- gjöld og velja einkaskóla frekar en ríkis- skóla, í þeim tilfellum þarsem boðið er upp á námið í báðum skólum. Þar sem nem- endur hafa yfirleitt úr litlum fjármunum að spila getur svarið við þessari spurningu skipt þá töluverðu máli. Þó ber að nefna að þessi spurning hefur misjafnt vægi eftir löndum enda eru háskólar í Evrópu oft að mestu eða öllu leyti á framfæri ríkisins. Seinni spurningin kemur hins vegar upp þegar háskólanám hefur verið valið. Hún snýst um það hve miklum tíma og fyrir- höfn nemendur eiga að verja í námið. Mun góður námsárangur nemenda hjálpa þeim þegar þeir koma út á vinnumarkaðinn? í þessari grein verður meðal annars leitað svara við þessum spurningum. Til að skoða fyrrgreindar spurningar var gerð ferilskrárrannsókn (Knouse, 1994; Thoms, McMasters, Roberts og Dombkowski, 1999; Tsai, Chi, Huang og Hsu, 2011). Þær eru einkum þekktar úr hagfræði og sálfræði og gefa kost á því að nota tilraunasnið til að einangra frá aðra áhrifaþætti en til rannsóknar eru. Þar sem margir áhrifaþættir eru til staðar á vinnu- markaði hentar þetta snið ágætlega til að skoða efni þessarar rannsóknar, þ.e. val milli ríkis- og einkaskóla annars vegar og áhrif námsárangurs á íslenskum vinnu- markaði hins vegar. Notuð var skálduð ferilskrá einstaklings með gráðu í við- skiptafræði. Fyrir vikið gefa niðurstöður rannsóknarinnar vísbendingar um inn- lendar háskólagreinar sem kenndar eru við fleiri en einn háskóla. Þó rannsóknir á ávinningi náms séu frjótt rannsóknarefni erlendis hafa íslensk- ir fræðimenn ekki lagt mikla áherslu á þetta efni. Þó ber að nefna rannsókn Finn- boga Rafns Jónssonar og Þórólfs Matthías- sonar (2006) sem skoðuðu fjárhagslegan ávinning af menntun á íslandi á árunum 1985 til 1999. Höfundar telja því að þessi rannsókn sé ákveðið nýmæli í íslensku rannsóknarumhverfi. Rikis- og einkaskólar Talsmenn einkaskóla halda því oft fram að þeir afkasti meiru en ríkisskólar með minni tilkostnaði og séu því betri en ríkis- skólar (Figlio og Stone, 2000). Einkaskólar standi framar en ríkisskólar þegar kemur að rekstri þar sem kostnaður á hvern nem- anda sé lægri (Jimenez og Lockheed, 1995). Það gæti svipt þjóðir ódýrari og áhrifa- ríkari leið að menntun að hindra vöxt einkaskóla (Bedi og Garg, 2000). Ástæður fyrir þessu eru almennt taldar tvær. Fyrir það fyrsta er einkageirinn viðkvæmur fyrir samkeppni og því verða einkaaðilar að huga meira að gæðum vöru sinnar en ríkisstofnanir. í öðru Iagi er auðveldara fyrir einkaaðila að hafa áhrif á gæði vöru sinnar en aðila í ríkisgeiranum sem eru heftari sökum lögfræðilegra og stjórn- málalegra þvingana (Dronkers og Robert, 2008). Nýlegri rannsóknir hafa þó dregið gæði einkaskóla í efa og jafnvel gefið til kynna að yfirburðir einkaskóla fram yfir ríkisskóla séu engir (Somers, McEwan, og Willms, 2004; Dronkers og Avram, 2010; 142
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.