Orð og tunga - 01.06.1997, Page 22
10
Orð og tunga
Höfundar Orðabækur Útgáfa Útgáfuár
Einkur Jónsson Oldnordisk Ordbog 1863
Johan Fritzner Ordbog over det norske Sprog 1867
Johan Fritzner Ordbog over det norske Sprog 2. 1883-1896
Cleasby-Vigfússon An Icelandic-English Dictionary 1874-1876
Björn Halldórsson Lexicon Islandico-Latino-Danicum 1814
Jón Þorkelsson Supplement til islandske Ordboger 1. 1876
Jón Þorkelsson Supplement... Anden samling 1879
Jón Þorkelsson Supplement... Tredje samling 1890-1894
Jón Þorkelsson Supplement... Fjerde samling 1899
Konráð Gíslason Dönsk orðabók með ísl. þýðingum 1851
Jónas Jónasson Ný dönsk orðabók 1896
Geir Zoega Islenzk-ensk orðabók 1904
Geir Zoega Islenzk-ensk orðabók 2. 1922
Sveinbjöm Egilsson Lexicon poeticum 1860
Sveinbjöm Egilsson Lexicon poeticum 2. 1913-1916
Jón Olafsson Orðabók íslenzkrar tungu 1912-1915
Tafla 1: Orðabækur sem stuðst var við við gerð Blöndalsorðabókar
Þá er næst að nefna orðabók Björns Halldórssonar. Til hennar var safnað í lok 18.
aldar en hún var ekki gefin út fyrr en 1814 að höfundi látnum. Skýringamálið var bæði
latína og danska. Þessi bók var rækilega nýtt í Blöndalsbókenda telur Sigfús hana hafa
verið brautryðjendaverk sem höfundar fornmálsorðabókanna hafi leitað til, einkum um
yngra mál. Þess má geta að bæði í orðabók Eiríks og þeirra Cleasbys og Guðbrands er
dálítið um orðaforða samtímans einkum þó í hinni síðarnefndu.
Jón Þorkelsson gaf út lítið orðakver árið 1876 sem hann nefndi Supplement til
islcmdske Ordbpger. Það átti að fylla upp í göt í orðabók Fritzners annars vegar og
þeirra Cleasbys og Guðbrands hins vegar eða gefa betri og fyllri upplýsingaren þar var
oft að finna. Nokkrum árum síðar eða 1879 sendi hann frá sér viðbót við þetta kver,
Anden Samling, en nú sem rúmlega 600 síðna bók. Jón tekur fram í formála að mestur
hluti þeirra orða sem tekin séu með í bókina komi ekki fyrir í eldri orðabókum. Hluta
þeirra sé þar að finna en þá í annarri merkingu eða í öðrum myndum. Af heimildaskrá
sést að enn er Jón fyrst og fremst að bæta fornmálsorðabækur. Þriðja safn Jóns kom út
á árunum 1890-1894 og eru nú í heimildaskrá fyrst og fremst rit yfir yngra mál, þ.e. frá
því að orðabók Björns Halldórssonar kom út og fram á daga Jóns, og enn eru í fjórða
safni viðbætur en það kom út 1899. Af lauslegum samanburði að ráða virðist talsvert
hafa verið notast við þriðja safn Jóns í Blöndalsbók. Skýringar eru víða samhljóða og
notkunardæmi oft fengin úr sömu heimild og af sömu blaðsíðu. Þetta er þó ekki algilt,
oft er skipt um dæmi og alls ekki alltaf til bóta.
í formálanum getur Sigfús fyrrgreindra bóka en segir að almenningur hafi saknað
sárt íslenskrar orðabókar um aldamótin og að viðbætur Jóns Þorkelssonar hafi aðeins
bætt að hluta þann skort. Því hafi þau hjón ráðist í orðabókargerð. Þau virðast í upphafi