Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Side 4
STARFSFÓLK FÉLAGS (SLENSKRA HJÚKRUNARFRÆÐINGA:
Ásta Möller, formaöur, netfang: asta@hjukrun.is
Aðalbjörg Finnbogadóttir, ráðgjöf og námsmat mánud. og
þriðjud. kl. 9 - 16 og miðvikud. og fimmtud. kl. 9-14, netfang: adalbjorg@hjukrun.is
Anna Gunnarsdóttir, skrifstofumaður og bókari, netfang: anna@hjukrun.is
Áslaug Guðjónsdóttir, skrifstofumaður, netfang: aslaug@hjukrun.is
Soffía Sigurðardóttir, skrifstofumaður, netfang: soffia@hjukrun.is
Vigdís Jónsdóttir, hagfræðingur, símaviðtalstími þriðjud.,
miðvikud. og fimmtud. kl. 9-12, netfang: vigdis@hjukrun.is
Þorgerður Ragnarsdóttir, ritstjóri, netfang: thorgerdur@hjukrun.is
Skrifstofa félagsins að Suðurlandsbraut 22 er opin virka daga kl. 9-17.
Skrifstofa félagsins sér um, auk almennrar skrifstofuþjónustu og upplýsingamiðlunar, þjónustu við sjóði félagsins,
s.s. starfsmenntunarsjóð, vísindasjóð, orlofssjóð og minningarsjóði. Skrifstofan sér einnig um sölu á varningi á
vegum félagsins og leigu á íbúð í Reykjavík og sumarbústöðum félagsins utan sumarleyfistíma.
Rítstjórnarstefna Tímarits hjúkrunarfræðinga
Stefnt er að útgáfu Tímarits hjúkrunarfræðinga sex sinnum á ári en
fjöldi blaðsíðna er þó háð ákvörðun stjórnar Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga hverju sinni.
Tímaritið er málgagn allra íslenskra hjúkrunarfræðinga og í því er
reynt að endurspegla ólíkar skoðanir á og viðhorf til hjúkrunar. Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga leggur metnað sinn í að allir félagsmenn
þess finni þar lesefni sér til gagns, fróðleiks eða ánægju.
Tímaritið er vettvangur fræðilegrar og félagslegrar umræðu um
hjúkrun. í faglega hluta tímaritsins eru birtar greinar um hjúkrunar-
störf, nýjar rannsóknir í hjúkrun, viðtöl við fólk um hjúkrun og aðrar
faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga. í félags-
lega hluta blaðsins er greint frá því sem er að gerast hjá félaginu og
tengist hagsmunabaráttu þess.
Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur blaðsins sé í
samræmi við ritstjórnarstefnu þess. Höfundar aðsendra greina bera
ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir sem í þeim birtast þurfa ekki að sam-
rýmast stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Ritstjóri, ásamt ritnefnd, leggur metnað í að tímaritið sé vandað
að því er varðar málfar, útlit og efni. Áhersla er lögð á að faglegar
greinar standist vísindalegar kröfur. Ritnefnd hittist á mánaðarlegum
fundum. Ritnefnd áskilur sér rétt til að birta greinar eða hafna þeim
og til að setja greinar upp og aðlaga að útliti blaðsins.
Almennt um ritun greina
Greinahöfundar eru beðnir um að skila greinum til Tímarits hjúkrunar-
fræðinga, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Greinar í blaðinu eru í
stórum dráttum tvenns konar. Annars vegar almennar greinar sem rit-
nefnd yfirfer og lagfærir í samvinnu við höfunda fyrir birtingu. Hins veg-
ar ritrýndar rannsóknagreinar sem eru ritrýndar af völdum fræðimönnum.
Ritnefnd leggur áherslu á að málfar greina sé gott og þeir sem
þar eiga sæti vilja gjarnan verða höfundum að liði við greinaskrifin. ís-
lenska þarf erlend orð ef unnt er og skammstafanir þarf að útskýra í
fyrsta skipti sem þær koma fram. Myndir og teikningar þurfa að vera
nægilega skýrar til að hægt sé að prenta eftir þeim.
Almennt gilda reglur ameríska sálfræðingafélagsins um uppsetn-
ingu greinanna. Upplýsingar um þær er að finna í bókinni Publication
Manual of the American Psychological Association, í íslenskri þýð-
ingu í Handbók Sálfræðirítsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K.
Björnsson og bókinni Gagnfræðakver handa háskólanemum eftir
Friðrik H. Jónsson og Sigurð J. Grétarsson.
Ritrýndar rannsóknagreinar
Sérstakar reglur gilda um ritrýndar rannsóknargreinar sem eru
stjörnumerktar I blaðinu til aðgreiningar frá öðrum greinum. Ritrýndar
4
greinar þurfa að uppfylla ákveðnar kröfur um frágang og efnistök.
Fyrir hverja grein eru valdir tveir óháðir ritrýnar með sérþekkingu á
efni greinanna. Ritrýnarnir lesa greinarnar og skila um þær nafnlausu
áliti sem höfundar fá og þurfa að taka tillit til við lokafrágang. Miklar
kröfur eru gerðartil slíkra greina um efni, innihald og framsetningu og
tekur vinnsla þeirra lágmark þrjá mánuði eftir að þær berast til
blaðsins. Ritrýndar greinar sem birtast í Tímariti hjúkrunarfræðinga
fást skráðar í International Nursing Index og á MEDLINE. í því felst
ákveðin viðurkenning á ágæti þeirra til vinnumats og framgangs
innan háskólakerfisins. Höfundar þeirra greina fá þær metnar til
punkta sem gilda við mat á framgangi innan háskóla.
Stjórn Félags islenskra hjúkrunarfræðinga sem var
kjörin á fulltrúaþingi i 17. maí sl.
Efri röð f.v.: Erlín Óskarsdóttir, meðstjórnandi, Hildur
Helgadóttir, 2. varaformaður, Fríður Brandsdóttir, vara-
maður, Jóhanna Bernharðsdóttir, 2. varaformaður,
Guðrún Guðmunsdóttir, varamaður.
Neðri röð f.v.: Steinunn G. Kristinsdóttir, meðstjórnandi,
Ásta Möller, formaður, Anna Lilja Gunnarsdóttir, gjald-
keri. Á myndina vantar Hrafnhildi Baldursdóttur, ritara.
Tímarit Hjúkrunarfræðinga ■ 1. tbl. 74. árg. 1998