Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Síða 5

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Síða 5
Formannspistill Fyrir framan mig er launaseðill hjúkrunarfræðings með yfirliti yfir laun hans á árinu 1997. Hjúkrunar- fræðingurinn lét mér hann í té til að sýna svart á hvítu hver laun hans eru, eftir meira en 20 ára starf við hjúkrun, ýmist við almenn hjúkrunar- störf eða sem stjórnandi. Laun hennar á síðasta ári voru brúttó 1,3 miljónir, netto 996 þúsund kr. Þetta ber hún hún bítum fyrir 80% dag- vinnu í launaflokki almenns hjúkrun- arfræðings, hæsta launaþrepi. Þessi hjúkrunarfræðingur hefur lengi beðið þess að störf hennar, sérhæfni, ábyrgð og menntun verði metin til launa og hefur væntingar til nýs launakerfis og yfirstandandi vinnu- staðasamninga í því sambandi. Nýr kjarasamningur Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga var undir- ritaður í júní á síðasta ári og gildir hann í rúm 3 ár eða til 31. október árið 2000. í.samningnum eru ákvæði um tilteknar launahækkanir til hjúkr- unarfræðinga. Einn mikilvægasti þáttur kjarasamningsins er hins veg- ar sá að hjúkrunarfræðingar ákváðu að fara inn í nýtt launakerfi, sem síðar varð raunin að aðrar háskóla- stéttir gerðu einnig, að læknum og grunn- og framhaldsskólakennurum undanskildum. í nýju launakerfi eru ákveðnir þættir kjarasamningsgerðar færðir til stofnana, þar sem fulltrúar stéttarfélags og stofnana semja um röðun starfa innan skilgreindra ramma A, B og C og um forsendur röðunar starfa innan ramma, þar sem m.a. þekking, hæfni, ábyrgð og reynsla kemur til álita þegar ákvörðun er tekin um laun. Þegar samninganefnd og stjórn félagsins tóku ákvörðun um að mæla með því við hjúkrunarfræðinga að þeir semdu um nýtt launakerfi, var vitað að hjúkrunarfræðingar voru að taka ákveðna áhættu. Áhættan fólst í ýmsum staðreyndum, s.s. því að þeir starfa á heilbrigðisstofnunum sem eru fjársveltar og hjúkrunar- fræðingar í almennum störfum njóta ekki yfirborgana í sama mæli og aðrir háskólamenn í starfi hjá hinu opin- bera. Þá gætu ríkjandi viðhorf til kvennastéttar og til umönnunarstarfa einnig reynst þeim fjötur um fót. Það var hins vegar mat stjórnar og samninganefndar félagsins og / vegna aunamála Ásta Möller fjölmennra funda hjúkrunarfræðinga þar sem nýtt launakerfi var til umfjöll- unar, áður en samningar voru undir- ritaðir, að rétt væri að taka þessa áhættu. Hjúkrunarfræðingar lýstu sig reiðubúna til að takast á við það „þroskaverkefni" að skilgreina eigin störf og setja þau í samhengi við kröfur um hærri laun sér til handa, bæði til hjúkrunarfræðinga sem hóps, en einnig á einstaklingsgrunni. Hjúkrunarfræðingar mátu kosti hins nýja launakerfis, sem byggir á hugmyndum um gegnsæi í launa- myndun. Nýtt launakerfi ýtir undir að yfirborganir séu teknar inn í grunn- laun og raunveruleg kjör hinna ýmsu starfshópa komi upp á yfirborðið. Það er forsenda þess að unnt sé að taka á launamisrétti sem hefur við- gengist innan opinbera geirans milli hjúkrunarfræðinga og annarra stétta með sambærilega menntun og ábyrgð. Nýtt launakerfi hjúkrunarfræðinga tekur gildi 1. febrúar 1998. Þegar samningar nást á vinnustöðum verður launakerfið afturvirkt frá þeim tíma. Þegar þetta er ritað hafa ein- ungis tvær heilbrigðisstofnanir lokið gerð vinnustaðasamnings við eina heilbrigðisstétt, þrátt fyrir að nýtt lau- nakerfi flestra annarra heilbrigðisstét- ta hafi tekið gildi 1. desember 1997. Hins vegar liggja fyrir um eitt hun- drað vinnustaðasamningar á stof- nunum utan heilbrigðiskerfisins. Þróun síðustu mánaða í samninga- gerð hefur ekki komið hjúkrunar- fræðingum á óvart, heldur í raun í ýmsu staðfest það sem áður var vitað: • Fjármagni til ríkisstofna til að standa undir starfsemi sinni, þ.m.t. launum er misskipt. Þetta sést m.a. á því að margar ríkis- stofnanir utan heilbrigðisstofnana hafa í vinnustaðasamningum samið við starfsmenn sína um verulega grunnkaupshækkanir, með því að færa fastar yfirborg- anir inn í grunnlaun. Fullyrt er að launakostnaður þessara stofnana mun ekki aukast með nýjum samningum umfram það sem samið var um í kjarasamningum. • Staðfest hefur verið m.a. í sam- anburði heilbrigðisstétta sín á milli að háskólamönnum í almennum störfum á heilbrigðisstofnunum er mismunað, þar sem ákveðnir hópar hafa um árabil haft fastar yfirborganir ofan á grunnlaun. Þetta eru yfirborganir sem sam- svara milli 20-40 yfirvinnutímum á mánuði. Hjúkrunarfræðingar í almennum störfum njóta almennt ekki slíkra yfirborgana. Að auki hafa læknar samið um verulegar grunnlaunahækkanir sér til handa og er samanburður á launum þessarra stétta hjúkrunarfræðingum verulega í óhag, eins og kemur fram í grein Vigdísar Jónsdóttur, hagfræð- ings félagsins, hér í blaðinu. Hjúkrunarfræðingurinn sem að framan er lýst er ekkert einsdæmi. Hún tilheyrir 60-70% hjúkrunarstétt- arinnar sem vinna almenn hjúkrunar- störf á heilbrigðisstofnunum. Ljóst er af fundum forsvarsmanna félagsins með hjúkrunarfræðingum á undan- förnum vikum að hún er ekki ein um að vera verulega misboðið. Stjórn- völd hafa sagt að þau muni ekki setja meira fé inn til stofnana við gildistöku nýs launakerfis. Að óbreyttu þýðir það að misréttinu verður við- haldið og föst laun hjúkrunarfræð- inga verði áfram tugum prósenta lægri en hópa háskólamanna með sambærilega menntun og ábyrgð. Það er því eðlilegt að óróleiki ríki innan hjúkrunarstéttarinnar. Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 74. árg. 1998 5 Ljósm.: Lára Long

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.