Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Page 28
Gunnhildur Valdimarsdóttir, hjúkrunarforstjóri og Unnur Þormóðsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Fræðslu- og meðferðalínur í
í Hveragerði
Heilsustofnun NLFI Hveragerði
Hjá Heilsustofnun NLFÍ hefur fræðsla- og hópmeðferð verið skipulögð á
nýjan hátt. Skipulagið byggist á litalínum og flokkun fræðsluefnis og er
ætlað að auðvelda yfirsýn yfir það sem í boði er. Áhersla er lögð á
mismun fræðslu og þjálfunar til eflingar heilbrigðis og fræðslu og
meðferð vegna sjúkdóma og heilsubrests. í hugmyndafræði stofnunar-
innar er rík áhersla lögð á að fólk taki ábyrgð á eigin heilsu og velferð
og sé meðvitað um og tileinki sér heilsusamlegt líferni. Tilgangurinn
með nýju skipulagi er m.a. að auka og styrkja vitund starfsfólks og
dvalargesta um heilbrigði og heilsueflandi þætti.
Nauðsynlegt er að skapa um-
hverfi sem gefur góða yfirsýn, þar
sem upplýsingar um flókna dagskrá
eru aðgengilegar. Á fjórum vikum
sækja 160 dvalargestir fræðslu, þjálf-
un og meðferð og eru ýmist í ein-
staklingsmeðferð eða hópmeðferð.
Einstaklingur sem fylgir hópdagskrá
með sérhópi, t.d. verkjahópi, getur
einnig verið í einstaklingsmeðferð
vegna heilsubrests, t.d. sjúkraþjálfun,
sjúkranuddi eða stuðningsviðtölum.
Einnig getur hann sótt fræðslu sem
miðast við ákveðin heilbrigðisvanda-
mál eða fræslu, líkamsþjálfun og
hugþjálfun í heilsueflingarskyni.
kjarninn í litakerfinu er einmitt græn
lína sem gengur út á heilsueflingu og
heilbrigðari lífshætti. Dvalargestir sjá
hvað hentar þeim og velja hluta af
dagskrá en eru einnig skráðir í
fræðslu og meðferð sem er sniðin að
heilsufarsvanda hvers og eins.
Þannig býður dagskráin upp á
heilsueflingu, það sem allir ættu að
tileinka sér í daglegu lífi t.d. göngu-
ferðir, sund, hollt mataræði, íhugun,
slökun o.fl. Þetta skipulag auðveldar
dvalargestum yfirsýn yfir það sem er
á boðstólum. Auðveldara er að
skipuleggja sameiginlega dagskrá
fyrir sérhópa og þá sem eru í
einstaklingsmeðferð. Skipulaginu er
28
ætlað að auðvelda starfsfólki að
greina áherslur í heilbrigðiseflingu og
faghópum að samræma fræðsluefni.
Sérhópar og tengsl þeirra
inn í línurnar
Sérhópur heyrir undir ákveðna línu.
Fyrirfram ákveðinni dagskrá er fylgt
og er hún til fjögurra vikna í senn.
Námskeið gegn reykingum er und-
anskilið því það stepdur yfir í eina
viku í einu. Dagskrá hppanna byggist
á samspili fræðslu, líkams- og hug-
þjálfunar. Eftir að innlagnarbeiðni
berst er hún lögð fyrir innlagnarteymi
sem ákveður hvort einstaklingurinn
fellur undir sérhóp. Dvalargesturinn
sjálfur getur einnig óskað eftir að
taka þátt í þeim sérhóp sem hann
telur henta sér. Þeir sérhópar sem
starfræktir eru undir línunum eru
verkja- og stoðkerfishópur, hjarta- og
æðahópur, hópur offitu og átvanda-
mála, krabbameinshópur og nám-
skeið gegn reykingum. Lengst er
komið að þróa hjarta- og æðakerfis-
hópinn, dagskrá hans er rúllandi og
geta dvalargestir komið inn í hann
hvenær sem er og tekið fullan þátt í
henni. Aðrir sérhópar eru lokaðri að
því leyti að umræðufundir með
starfsteymunum eru aðeins fyrir þá
einstaklinga sem eru skráðir í hópinn
samtímis og Ijúka dvöl sinni á sama
tíma. Aðrir dvalargestir sem koma
eftir að hópstarfið hefur farið af stað
geta einungis tekið þátt í þeirri
fræðslu sem starfsteymið bíður upp
á. Þeir geta ekki farið eftir fyrirfram
ákveðinni stundartöflu hópsins.
Rannsóknir og kannanir við
mat á árangri
Við mat á árangri er ætlunin að
koma af stað könnunum og/eða
rannsóknum innan hverrar línu fyrir
sig. í verkja- og stoðkerfishópnum
hefur verið hannað mælitæki af
hjúkrunarfræðingi og sjúkraþjálfara
starfsteymisins og er því ætlað að
mæia árangur meðferðarinnar sem
veitt er þessar fjórar vikur. Mælitækið
hefur verið forprófað og í Ijósi þess
var ákveðið að taka mið af fleiri þátt-
um en lagt var upp með í byrjun.
Aðaláherslan er lögð á mælingu
verkja og til þess er notaður VAS
kvarðinn ásamt líkamsmynd sem
einstaklingnum er ætlað að merkja
inn á. Samkvæmt útkomu forpróf-
unar kemur í Ijós að fleiri þættir eru
nauðsynlegir til viðmiðunar eins og
svefn- og svefnvenjur, ásamt könnun
á lyfjanotkun. Spurningalisti er lagður
fyrir tvisvar sinnum, það er við komu
og svo aftur við brottför, svör ein-
staklinga eru borin saman að þeim
viðstöddum og farið er yfir gang
mála. Öll gögn sem safnað hefur
verið í sérhópunum undanfarið verða
nú skoðuð með tilliti til gerðar mæli-
tækja. Því stefnan er áframhaldandi
þróun gæðarannsókna á stofnuninni
í heild sem og á hjúkruninni, með
það fyrir augum að auka gæði
þjónustu við gesti okkar.
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 74. árg. 1998