Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Qupperneq 31

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Qupperneq 31
\ ý lög um réttindi sjúklinga tóku \lgildi 1. júlí 1997. Markmið með setningu þessara laga er að tryggja sjúklingum tiltekin réttindi í samræmi við almenn mannréttindi og mannhelgi og styrkja þannig réttarstöðu þeirra gagnvart heilþrigðisþjónustunni og styðja trúnaðarsambandið sem ríkja ber milli sjúklinga og heilbrigðisstarfs- manna. Frumvarp að lögum um réttindi sjúklinga samdi nefnd sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skipaði 21. apríl 1995 en ráðuneytið gerði síðan lítils háttar breytingar á frumvarpinu við lokafrágang þess. í nefndina voru skipaðar frá heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneyti: Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur, for- maður, Ragnheiður Haraldsdóttir, skrif- stofustjóri, og Ragnhildur Arnljótsdóttir, deildarstjóri, ritari nefndarinnar. Auk þeirra voru í nefndinni Vilborg Ingólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur, tilnefnd af embætti landlæknis, Lovísa Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur, til- nefnd af Félagi íslenskra hjúkrunar- fræðinga, Ástríður Stefánsdóttir, læknir, tilnefnd af Læknafélagi íslands, Rann- veig Gunnarsdóttir, félagsráðgjafi, til- nefnd af Samtökum heilbrigðisstétta, og Ingveldur Fjeldsted, tilnefnd af Neytendasamtökunum. í áliti nefndarinnar á lagafrum- varpinu segir m.a.: „Samkvæmt skipunarbréfi var nefndinni falið að gera tillögur til ráð- herra um það með hvaða hætti best væri að kynna heilbrigðisstéttum og sjúklingum rétt sjúklings. Nefndin skyldi ræða ítarlega við fulltrúa sjúkl- ingahópa til að kynnast viðhorfum þeirra til réttinda sjúklinga og hvernig þau yrðu best tryggð. Nefndin fékk því á sinn fund fulltrúa 45 sjúklingahóþa og vandamanna- og stuðningshópa sjúklinga... Réttindi þau, sem lagt er til að verði lögfest, eru í ýmsum atriðum hin sömu og sjúklingar eru þegar taldir njóta samkvæmt dreifðum laga- og reglu- gerðarákvæðum. Nýmæli eiga rætur (inqa w að rekja til atriða sem fram komu í máli sjúklingahópa er komu á fund nefndar- innar auk þess sem ýmsar erlendar reglur á þessu sviði voru hafðar til hliðsjónar, ekki síst yfirlýsing Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar um rétt- indi sjúklinga sem samþykkt var vorið 1994. Einnig var horft til yfirlýsingar Al- þjóðafélags lækna um þetta efni, finnskra laga frá árinu 1992 og nýlegs dansks lagafrumvarps." Vaxandi umræða um rétt sjúklinga í heiminum Vilborg Ingólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræð- ingur hjá landiæknisembættinu og full- trúi landlæknis í nefndinni, var spurð hvers vegna hefði þótt ástæða til að setja sérstök lög um réttindi sjúklinga? „Markmiðið með setningu laga um réttindi sjúklinga er að tryggja sjúkling- um rétt í samræmi við mannréttindi og mannhelgi og treysta trúnaðarsam- band meðferðaraðila og sjúklinga," segir Vilborg. Hún segir að það að fella saman í einn lagabálk flest lagaákvæði um réttindi sjúklinga sem voru víða í eldri lögum geri þau skýrari og aðgengilegri. „Þó að í lögunum séu einnig ný ákvæði var stór hluti af réttindum sjúklinga skilgreindur í öðrum lögum fyrir", segir hún. Aðdragandann að lagasetningunni má, að sögn Vilborgar, rekja til þess að umræða um rétt sjúklinga fer vaxandi í heiminum og að nú er áhersla lögð á þátttöku sjúklinga í ákvarðanatöku um eigið líf og heilsu. Evrópuskrifstofa Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar gaf út reglur, A declaration on the promo- tion of patient's rights in Europe, sem hefur verið fyrirmynd nokkurra landa um að setja fram lög um réttindi sjúklinga. Ný ákvæði: • Um sjúklinga sem ekki hafa íslensku að móðurmáli segir í 5. gr. um upp- lýsingar um heilsufar og meðferð: „Eigi í hlut sjúklingur sem ekki taiar íslensku eða notar táknmál skal hon- um tryggð túlkun á upplýsingum samkvæmt þessari grein. í 5. grein er einnig kveðið á um rétt til að leita álits þriðja aðila um meðferð, ástand og batahorfur." • Upplýst samþykki í 9. grein um und- anþágu frá meginreglu um samþykki fyrir meðferð: „Nú er sjúklingur með- vitundarlaus eða ástand hans að öðru leyti þannig að hann er ófær um að gefa til kynna vilja sinn varð- andi meðferð sem telst bráðnauð- synleg. í því tilviki skal taka samþykki hans sem gefið nema fyrir liggi örugg vitneskja um að hann hefði hafnað meðferðinni." • Réttur til að hafna þátttöku nemenda í meðferð 11. gr.: „Skýra ber sjúklingi frá því ef fyrirhugað er að nemendur á heilbrigðissviði verði viðstaddir meðferð á honum vegna þjálfunar og kennslu þeirra. Sjúklingur getur neitað að taka þátt í slíkri þjálfun og kennslu.“ • Meðferð dauðvona sjúklings 24. gr.: „Dauðvona sjúklingur á rétt á að deyja með reisn. Gefi dauðvona sjúklingur ótvírætt til kynna að hann óski ekki eftir meðferð sem lengir líf hans eða tilraunum til endurlífgunar skal læknir virða þá ákvörðun. Sé dauðvona sjúklingur of veikur and- lega eða líkamlega til þess að geta tekið þátt í ákvörðun um meðferð skal læknir leitast við að hafa sam- ráð við vandamenn sjúklings og samstarfsfólk sitt áður en hann ákveður framhald eða lok meðferð- ar.“ • Vísindasiðanefnd í 29. gr.: „Ráðherra skal setja reglugerð um vísindarann- sóknir á heilbrigðissviði. Þar skulu m.a. vera ákvæði um vísindasiða- nefnd og siðanefndir skv. 4. mgr. 2. gr. Þá er ráðherra heimilt að setja reglugerð um framkvæmd laga þessara." • Sérreglur um sjúk börn s.s. 27. gr.: „Sjúk börn, sem dveljast á heil- brigðisstofnunum, eiga rétt á að hafa foreldra eða aðra nána vandamenn hjá sér og skal sköpuð aðstaða fyrir þá eftir því sem kostur er.“ Þ.R. 31 Tímarit Hjúkrunarfræðinga ■ 1. tbl. 74. árg. 1998
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.