Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Qupperneq 36
meðferðar, en margir hjúkrunarfræðingar álíta að þessi með-
ferð sé frábær leið til stuðnings með öðrum meðferðum.
í nýlegri danskri rannsókn voru könnuð áhrif svæða-
nudds á ýmiskonar höfuðverk. Meðal þess sem kom fram
í niðurstöðum rannsóknarinnar var að auk hinnar djúpu
slökunar sem á sér stað, upplifir einstaklingurinn aukna
vellíðan, aukna skynjun á líkama sínum, aukinn skilning á
ástæðum höfuðverksins, aukinn hæfileika til einbeitingar
og áhrif á fæðuinntekt og þjálfunarvenjur. Rannsóknin
hefur einnig sýnt fram á að svæðanudd getur haft áhrif á
fjölda annarra vandamála sem skjólstæðingurinn þjáist af
(Brendtsrup og Launsö, 1997).
Að gera svæðameðferð að sjálfstæðri meðferð innan
hjúkrunar er verkefni sem vert er að vinna að og getur átt
við á hvaða sviði hjúkrunar sem er.
Starfsemi öldrunarlækningadeildar
Þegar stjórn Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA) tók
við rekstri Kristnesspítala í ársbyrjun 1993 var tekið fram í
samningi um rekstur Kristnesspítala að stjórn FSA og heil-
brigðisráðuneytið lýstu sig sammála um að hefja rekstur
öldrunarlækningadeildar 1994, sem þó varð ekki að veru-
leika fyrr en 1. október 1995.
Árið 1993 fékk Magna Birnir, hjúkrunarfræðingur, leyfi
stjórnar FSA til að prófa að reka fimm daga virka öldrunar-
lækningadeild í þrjá mánuði á Kristnesspítala og voru 22
einstaklingar lagðir inn á deildina á tímabilinu. Til að meta
lífsgæði var notaður Nottingham Health Profile (NHP) stað-
hæfingalistinn (Hunt, 1986). Vinnulisti fyrir hjúkrunarmeð-
ferð var unninn eftir hugmyndafræði systur Callista Roy.
Niðurstöður rannsóknar á þessari fimm daga deild gáfu
tilefni til að álíta að slík deild gæti verið fýsilegur kostur fyrir
ákveðinn hóp aldraðra (Magna Birnir 1994).
Deild með sólarhringsþjónustu og starfsemi um helgar
byrjaði þann 1.' október 1995 með 8 rúmum, fjórum á
hjúkrunardeild og fjórum rúmum sem fengin voru að láni á
endurhæfingardeild.
Hlutverk öldrunarlækningadeilda er m.a. að greina, meta
og leysa úr heilsufarslegum og félagslegum vandamálum
aldraðra og þannig er oft hægt að draga úr þörf á stofn-
anavist. Þeir sem leggjast inn á deildina koma að heiman
eða frá öðrum deildum Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Allflestir þeirra sem leggjast inn eru metnir áður af einhverj-
um starfsmanni teymisins. Þeir sjúklingar sem leggjast inn
á öldrunarlækningadeild eru oft með mörg heilsufarsvanda-
mál og flókna lyfjameðferð, því þarf fært starfsfólk í þver-
faglegu teymi til að greina vandann og finna lausnir við hæfi.
Fjölskyldufundir eru liðir í útskriftaráætlun. Á þeim fund-
um er gengið frá þáttum sem snerta viðkomandi skjól-
stæðing eftir að heim er komið, hvað varðar heimaþjón-
ustu, dagvist, heimsendingu matar og öryggishnapp. Á
þessum fundum skapast mikilvæg tengsl við aðstandend-
ur og í Ijós kemur hvað þeir geta lagt af mörkum til að-
36
stoðar ástvini sínum. Fjölskyldufundir eru haldnir með
flestum skjólstæðinganna.
Undirbúningur útskriftar hefst fljótlega eftir komu á
Kristnesspítala með markvissum hætti.
Eftirfylgd er þáttur sem öldrunarlækningadeildin á Krist-
nesspítala tók upp þegar deildin hóf starfsemi. Markmið
eftirfylgdar er að athuga hvort þau mál sem undirbúin voru
fyrir útskrift hafi náð fram, ef ekki, þá að aðstoða skjól-
stæðing við úrlausn þeirra (t.d. varðandi hjálpartæki, dag-
vist, heimsendingu matar o.fl.).
Starfsfólk öldrunarlækningadeildar er að tileinka sér
einingahjúkrun, þar sem umsjónarhjúkrunarfræðingur hef-
ur með sér lítinn hóp starfsfólks sem sinnir ákveðnum
sjúklingahópi. Þetta vinnufyrirkomulag lofar góðu fyrir
skjólstæðinga og aðstandendur auk þess sem starfsfólkið
verður metnaðarfyllra fyrir hönd sinna skjólstæðinga.
Heimahjúkrun Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri
kemur einu sinni í mánuði til fundar um væntanlegar út-
skriftir og hugsanlegar innlagnir.
Söngstund er haldin einu sinni í viku og gefur góða
raun. Það er athyglisverð breyting sem verður á skjól-
stæðingum deildarinnar við söng og gítarspil. Fólk sem
hefur mjög skert minni syngur gamla texta og þeir sem lítið
geta tjáð sig klappa höndum eða dilla sér.
Söngstund.
Mat á gæðum hjúkrunar á öldrunarlækningadeild
Þegar starfsemi öldrunarlækningadeildar hófst ákvað verk-
efnisstjóri að reyna að meta árangur dvalar á tvennan hátt:
a. Með staðhæfingalista NHP (Nottingham Health Profile).
Við komu var listinn lagður fyrir þá einstaklinga sem
álitið var að gætu svarað staðhæfingunum, listinn var
lagður fyrir áður en viðkomandi útskrifaðist og þegar
farið var í heimsókn mánuði eftir útskrift, samtals þrisv-
ar sinnum (Valgerður Jónsdóttir, 1997).
b. Þegar deildin hafði starfað í eitt ár sendi verkefnisstjóri
spurningalista til fyrrum skjólstæðinga. Markmiðið var
að reyna að kanna gæði dvalar á Kristnesi varðandi
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 74. árg. 1998