Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Blaðsíða 58
nefndarinnar. Hvor aðili um sig, félag eða stofnun, getur
vísað deilunni til úrskurðarnefndar.
Samningar annarra háskólamenntaðra
faghópa:
Utan heilbrigðisstofnana:
Ýmsir samningar hafa verið gerðir í nýju launakerfi hjá
háskólamenntuðum starfshópum sem starfa utan heii-
brigðisstofnana. Þessir samningar eru mjög mismunandi
að gerð og innihaldi milli stofnana og stéttarfélaga en
raunverulegt innihald þeirra kemur ekki í Ijós fyrr en reynt
hefur verið á framkvæmd þeirra. í mörgum samningum er
verið að taka yfirborganir inn í taxta að hluta til eða öllu
leyti, sums staðar í áföngum, og því leiðir röðun starfs-
manna í launaramma og launaflokka í þessum samningum
til mun betri kjara en verið er að bjóða hjúkrunarfræðingum
í stofnanasamningum. T.d. er í mörgum samningum
kveðið á um það að launarammi A skuli eingöngu notaður
fyrir nema og byrjendur í starfi.
Innan heilbrigðisstofnana:
Það gengur mjög hægt að gera stofnanasamninga innan
heilbrigðisstofnana og á það við um alla háskólamenntaða
faghópa sem þar starfa. Innan heilbrigðisstofnana hafa
aðeins verið gerðir þrír stofnanasamningar, áðurnefndir
tveir samningar hjúkrunarfræðinga á Akranesi og húsavík
og samningur milli Ríkisspítala og verk- og tæknifræðinga.
Gildistaka á nýju launakerfi hjá öðrum háskólamönnum en
hjúkrunarfræðingum er yfirleitt frá 1. desember 1997 en
fæstar af þessum stéttum hafa náð að gera stofnana-
samningum innan heilbrigðisstofnana þó margir samn-
ingar séu í höfn utan heilbrigðisstofnana, sbr. umfjöllun hér
að framan. Það kemur í Ijós í allri umræðu og vinnu við
gerð stofnanasamningana að heilbrigðisstofnanir eru yfir-
leitt þær ríkisstofnanir sem greiða háskólamönnum lægstu
launin og bjóða mun lakari samninga en margar aðrar
stofnanir ríkis og borgar. Þetta er ein helsta ástæða þess
hve illa gengur að gera stofnanasamninga á heilbrigðis-
stofnunum.
Sem dæmi um þetta þá hefur Félag íslenskra náttúru-
fræðinga hefur gert marga ágæta stofnanasamninga utan
heilbrigðisstofnana en ekki náð neinum árangri á Ríkisspít-
ölum og hafa nú Ríkisspítalar vísað ágreiningi við Félag ís-
lenskra náttúrufræðinga tii úrskurðarnefndar. Niðurstöðu
úr því máli er líklega að vænta í lok febrúar eða byrjun mars.
Einn hópur háskólamanna á heilbrigðisstofnunum hefur
þó nýlega gengið frá kjarasamningi þar sem samið var um
verulegar hækkanir á launatöxtum en það eru læknar.
Hjúkrunarfræðingar hljóta að samgleðjast læknum yfir
bættum kjörum en jafnframt að krefjast endurskoðunar á
sínum kjörum ekki síst í Ijósi yfirlýsinga ráðamanna um að
markvist beri að vinna að því að draga úr miklum launa-
mun karla og kvenna hér á landi. Á bls...... er nánari
umljöllun um kjarasamning lækna og samanburður á
taxtalaunum lækna og hjúkrunarfræðinga.
Staða hjúkrunarfræðinga í nýju launakerfi
Ákvörðun hjúkrunarfræðinga að fara í nýtt launakerfi sl. vor
byggðist einkum á eftirfarandi sjónarmiðum:
1. Nauðsynlegur samanburður við aðra háskólamenn.
Allir háskólamenntaðir starfsmenn í opinberri þjónustu
utan lækna og grunn- og framhaldsskólakennara eru í nýju
launakerfi. Það er nauðsynlegt fyrir hjúkrunarfræðinga að
geta borið laun sín saman við aðra háskólamenn í opin-
berri þjónustu og gera á þann hátt kröfur sér til handa. Til
þess að það sé unnt þá þurfa hjúkrunarfræðingar að vera í
launakerfi sem býður upp slíkan samanburð og býður
hjúkrunarfræðingum upp á sömu möguleika til launa-
hækkunar.
2. Sveigjanlegra launakerfi. Nýtt launakerfi býður upp á
aukna möguleika til að taka tillit til sérstöðu starfsmanna
og stofnunar. Meiri möguleikar eru á umbun bæði vegna
sérstöðu einstakra starfa og vegna hæfni og frammistöðu
starfsmanna.
3. Launakerfi sem býður upp á aukna möguleika á að
taka á launamuni kynjanna. Fyrir gildistöku nýja launakerf-
isins voru taxtalaun hjúkrunarfræðinga að meðaltali hin
58
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 74. árg. 1998