Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Page 59

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Page 59
sömu og taxtalaun annarra háskólamanna. Raunveruleg dagvinnulaun hjúkrunarfræðinga voru hins vegar mun lakari en raunveruleg dagvinnulauna margra annarra háskólamanna því hjúkrunarfræðingar hafa ekki notið yfir- borgana í sama mæli og margir aðrir háskólamenn. Þessi launamunur var hvergi skráður, vinnuveitendur neituðu oft að hann væri til staðar og því var mjög erfitt að taka á honum. Nú er hann að koma fram í mörgum af þeim stof- nanasamningum sem búið er að gera þar sem óunnin yfirvinna hefur verið færð inn í launataxta svo þeir endur- spegla nú betur en áður raunveruleg dagvinnulaun. Þetta er mjög til bóta og í raun nauðsynlegt til að unnt sé að taka á og jafna raunverulegan launamismun kynjanna. 4. Meiri iaunahækkanir á samningstímabilinu eða um 21-22% í stað 16,5%. 4.5% af launahækkunum á samn- ingstímanum eru beint tengdar tilfærslu yfir í nýtt launakerfi. Það er mat Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga að hagsmuna hjúkrunarfræðinga verður betur gætt í nýju lau- nakerfi heldur en ef hjúkrunarfræðingar hefðu setið fastir í gamla launakerfinu. Það mun eflaust taka sinn tíma fyrir hjúkrunarfræðinga að læra á og feta sig áfram í nýju launa- kerfi og árangurinn mun að endingu ráðast af ásetningi og vilja hjúkrunarfræðinga sjálfra! Yfirlýsing atvinnurekenda með kjarasamn- ingi um jöfnun á launamuni karla og kvenna Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga þrýsti á um að fá svohljóðandi yfirlýsingu um launajafnrétti inn í kjarasamn- ing um nýtt launakerfi: Það er yfirlýst stefna ríkis og Reykjavíkurborgar að jafna þann launamun karla og kvenna sem ekki er hægt að útskýra nema á grundvelli kyns. Með nýju launakerfi gefst tækifæri til að vinna að þeim markmiðum. Með það í huga munu fjármálaráðherra og Reykjavíkurþorg láta gera úttekt á áhrifum nýs launakerfis á launamun karla og kvenna starfandi hjá stofnunum sínum á samningstímaþilinu. Flér lýsa fjármálaráðherra og Reykjavíkurborg því yfir að: 1. stefnt skuli að jöfnun launamismunar karla og kvenna 2. nota eigi nýtt launakerfi til að vinna að þeim markmiðum 3. gera eigi úttekt á áhrifum kerfisins á samningstímabilinu. Fulltrúar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa nú þegar gengið á fund fjármálaráðherra og borgarstjóra og óskað eftir svörum við því á hvern hátt fjármálaráðherra og borgarstjóri ætla að nýta nýtt launakerfi til að vinna að markmiðum launajafnréttis. Hvað er framundan? Fulltrúar félagsins hafa undanfarnar skipulagt marga vinnustaðafundi þar sem hjúkrunarfræðingum hefur verið skýrt frá stöðu mála og miklar umræður hafa einnig átt sér stað meðal hjúkrunarfræðinga. Komið hefur fram að hjúkr- unarfræðingar eru mjög óánægðir með kjör sín í dag og krefjast leiðréttingar. Hjúkrunarfræðingar munu áfram reyna til þrautar að ná stofnanasamningum en ef það tekst ekki á einhverjum stofnunum mun úrskurðarnefnd vænt- anlega kveða upp sinn dóm í þeim efnum. Fulltrúar félagsins eru einnig þessa dagana að ganga á fundi með ráðamönnum þar sem m.a. er skýrt frá stöðu mála, óánægju hjúkrunarfræðinga og leitað svara við fyrirheitum jafnréttisyfirlýsingar með kjarasamningi. Margir hjúkrunarfræðingar að hugleiða að hverfa til annarra starfa Fulltrúar félagsins hafa orðið varir við það að margir hjúkrunarfræðingar eru að hugleiða að hverfa til annarra starfa þar sem þeim bjóðast mun betri kjör fyrir oft mun léttari og ábyrgðarminni störf. Þetta er alvarleg staða, sérstaklega í Ijósi þess að nú vantar mjög marga hjúkrunarfræðinga til starfa bæði á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Þrátt fyrir þetta virðist engum vinnuveitenda hjúkrunarfræðinga detta í hug að laða þá til starfa í dag með því að hækka launin! möguleikar nýju launakerfi Nýtt launakerfi, sem mörg aðildarfélög BHM hafa samið um, gefur í vissum tilfellum möguleika til launa- hækkana sem ekki voru fyrir hendi í gömlu kjarasamn- ingunum. Félögum BHM er sérstaklega bent á að kynna sér samkeppnis- og samningalög vel. í nýja launakerfinu geta sumir launþegar, sem búa yfir verðmætri sérþekkingu, t.d. samið við vinnuveitendur um að festa sig í starfi í gegn hærri launum. Slíkum samning- um fylgir yfirleitt loforð um að ráða sig ekki í starf hjá samkeppnisaðila í tiltekinn tíma eftir að samningstíma lýkur. Sé samningurinn rofinn af launþega getur vinnu- veitandinn hins vegar krafist skaðabóta. Rjúfi vinnu- veitandinn samninginn með uppsögn launþega er hann laus undan samningnum og getur krafist skaða- bóta ef rök fyrir uppsögninni eru ekki haldgóð. Við samningana þarf launþeginn að hafa tvennt í huga: 1. Festa sig ekki í starfi nema gegn launahækkun. 2. Semja um hámark skaðabóta sem vinnuveitandi getur krafist sé samningur rofinn af launþega. Félögum í BHM er einnig bent á að kynna sér höfundarréttarlög. Höfundarréttarlög gilda um bók- menntaverk t.d. samið mál í ræðu og riti og ýmis hugverk t.d. uppdrætti, teikningar, mótanir, líkön og önnur þess háttar gögn sem fræðslu veita um málefni eða skýra þau. Þau gilda einnig um tölvuforrit. Höf- undar verkanna eiga höfundarrétt að þeim nema í tilf- ellum þar sem þeir eru sérstaklega ráðnir til að sinna slíkum verkefnum. Launþeginn á hins vegar höfundar- réttinn ef hann, að eigin frumkvæði, semur fræðsluefni sem kemur að notum í starfinu. Ef vinnuveitandinn hefur áhuga á að nýta sér verkið á einhvern hátt getur launþeginn framselt höfundarréttinn gegn ákveðnu, umsömdu gjaldi. Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 74. árg. 1998 59

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.