Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Qupperneq 63
12. MAI 1998 •
um heílsugæslu
brigðis, kynning á skaðsemi tóbaks í
versiunum, heilbrigðiskannanir í anda
heilsueflingar, fyrirlestrar fyrir sam-
starfsfólk og/eða aðra hópa eru allt
dæmi um aðgerðir sem hjúkrunar-
fræðingar geta staðið fyrir. Þá er
hægt að bjóða kaffi og köku á kaffi-
stofu vinnustaðarins. Það vekur
einnig athygii á deginum og getur
hvatt til umræðna um heilbrigði og
hjúkrun.
Framkvæmd 12. maí verður
nánar kynnt í næsta hefti Tímarits
hjúkrunarfræðinga sem kemur út í
apríl nk.
Frekari upplýsingar veitir
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir,
hjúkrunarfræðingur,
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga,
Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík,
sími: 5687575,
myndsími: 5680727,
Netfang: adalbjorg@hjukrun.is.
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 74. árg.
Heilbrigði er allra hagur er slagorð
Alþjóðasamtaka hjúkrunarfræðinga
(ICN) á alþjóðadegi hjúkrunarfræð-
inga 12. maí í ár. Slagorðið á að
hvetja til almennrar þátttöku í heilsu-
eflingu. í gögnum sem ICN hefur
sent til aðildarfélaga sinna af þessu
tilefni segir m.a.:
Með samráði er átt við að sam-
félög taki þátt í ákvörðunum um
eigið heilbrigði, s.s. um heilbrigðis-
þarfir, heilbrigðisáætlanir og mat á
heilbrigðisþjónustu í þeim tilgangi að
efla almannaheill.
Samráð er eitt af alþjóðlegum
gildum hjúkrunarfræðinga og með
því er átt við að stilla saman krafta til
að ná sameiginlegum markmiðum
eins og auknu heilþrigði og réttlæti.
Heilbrigði samfélags veltur á
vinnu með fólki - en ekki fyrir fólk.
Það krefst víðtækrar þátttöku aðila
með fjöiþreytta reynslu og þekkingu.
Markmið með samráði eru:
■ Sterk tengsl samfélags og heil-
brigðiskerfis.
• Þróun samfélagsins í heil-
brigðisátt.
• Að heilbrigðisþjónustan sé í sam-
ræmi við þarfir samfélagsins.
• Samábyrgð heilbrigðiskerfisins og
samfélagsins á heilsu almenn-
ings.
• Varanlega bætt heilbrigðis- og
félagsleg þjónusta.
Tvær grundvallarreglur eru mikil-
vægar:
1) Fólk verður að geta hugsað og
unnið saman að betri lífsgæðum.
2) Að þekkingu, færni, ábyrgð og
úrræðum sé deilt með almenningi
til að stuðla að sanngjarnri
skiptingu og sjálfstæði fólks í heil-
brigðislegum skilningi.
í gögnum ICN eru einnig settar
fram nokkar hugmyndir að málefnum
sem hjúkrunarfræðingar geta beitt
sér fyrir t.d.:
• Vinna með foreldrum, kennurum,
fjölmiðlum og félagasamtökum að
fræðslu fyrir ungt fólk um smit-
sjúkdóma eins og HIV/AIDS,
ótímabæra þungun og góðar
matarvenjur.
• Aðgerðir sem miða að því að
draga úr ofbeldi á heimilum og
annars staðar.
• Aðgerðir sem beinast gegn mis-
notkun áfengis og lyfja.
• Aðgerðir gegn ölvunarakstri og
umferðarslysum.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
mun að vanda standa fyrir dagskrá
sem víðast um landið þriðjudaginn
12. maí. Hvatt er til þátttöku sem
flestra hjúkrunarfræðinga til að gera
þennan dag eftirtektarverðan og til
gagns fyrir notendur íslenskrar
heilbrigðisþjónustu, hjúkrun og
hjúkrunarfræðinga. Þeir sem hafa
áhuga geta fengið gögn um málefni
12. maí hjá Félagi íslenskra hjúkrun-
arfræðinga. Æskilegt er að dagskráin
sé sem fjölbreyttust en uppákomur
þurfa ekki að vera stórar í sniðum
eða dýrar til að eftir þeim sé tekið.
Blóðþrýstingsmælingar á fjölsóttum
stöðum, gönguferðir í nafni heil-
Hjukrunarfrœðingar
Forvöm er
mikilvœg!
Líka fyrir ykkur í starfi
Hver þekkir ekki
byrjunareinkenni
bláœðavandamála?
• verkir
Gnpw inn i tim
MEDÍ sjúkrasokkar
falleg áferð, I
þtegilegir,
tískulitir
ItSTOO
Trönuhrauni 8 Sími S6S 288S