Morgunblaðið - 01.02.2018, Page 1
F I M M T U D A G U R 1. F E B R Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 27. tölublað 106. árgangur
Í SKUGGA SVEINS
Í GAFLARA-
LEIKHÚSINU
FYRIRHEIT UM
15 MILLJARÐA
TEKJUAUKA
FEGRUNARAÐ-
GERÐIR ÚLFALDA
BANNAÐAR
VIÐSKIPTAMOGGINN ÚLFALDAHÁTÍÐ 47MENNING 80
Annað fulla tungl ársins varð aðfaranótt 31. janúar. Vegna nálægðar sinn-
ar kallast það „ofurmáni“, en ofurmáni varð einnig 2. janúar síðastliðinn.
Seinna fulla tungl sama mánaðar er gjarnan kallað blátt tungl, segir á
Stjörnufræðivefnum. Tunglmánuðurinn, tíminn milli tveggja fullra tungla,
er 29,5 dagar og því verður ekkert fullt tungl í febrúarmánuði, sem aðeins
telur 28 daga. Það gerðist síðast árið 1999 og gerist næst árið 2037.
Blár ofurmáni vakti yfir landsmönnum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var Barna-
vernd Reykjavíkur tilkynnt um meint eldri kyn-
ferðisbrot starfsmanns stofnunarinnar sem nú situr
í gæsluvarðhaldi grunaður um gróf kynferðisbrot
gagnvart ungum dreng á árunum 2004 til 2010.
Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
Barnaverndar Reykjavíkur, segist ekki hafa neinar
upplýsingar um að stofnuninni hafi borist kvörtun
en nú sé verið að velta öllum steinum við til að at-
huga hvort slíkt reynist rétt.
Sigurður Hólm Gunnarsson, forstöðumaður
skammtímaheimilis fyrir börn og unglinga í Hraun-
bergi, þar sem maðurinn starfaði, segir skamm-
tímaheimilið ekki hafa fengið að vita af málinu fyrr
en seinni part miðvikudags 18. janúar. „Það verður
að bæta þessa verkferla, að koma upplýsingum til
skila. Það virðist að upplýsingar hafi borist fyrir
2010 og ég ræð hann í vinnu í maí 2010 þannig að
það hefði kannski verið gott að vita af þessu,“ segir
Sigurður í samtali við Morgunblaðið.
Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kynferðis-
brotadeildar lögreglunnar, segir að lögreglan rann-
saki feril málsins hjá sér frá upphafi en 5 mánuðir
liðu frá kæru og þar til maðurinn var handtekinn.
Starfaði hann áfram með börnum á því tímabili.
Leita að eldri kvörtunum
Barnavernd Reykjavíkur athugar hvort tilkynning hafi borist um meint eldri brot
starfsmanns „Verður að bæta þessa verkferla,“ segir fyrrverandi vinnuveitandi
MBarnavernd veltir ... »6
Flutningafyrirtækið Cargow sem
þrír Íslendingar og einn Norðmaður
stofnuðu árið 2012 hefur nú tekið við
fyrsta flutningaskipinu af fjórum
sem það hefur látið smíða í Kína.
Hlaut skipið nafnið Frigg við hátíð-
lega athöfn í Rotterdam síðdegis í
gær.
Skipin verða notuð til flutninga á
áli frá verksmiðjum Alcoa á Reyð-
arfirði og í Mosjøen í Noregi. Gera
má ráð fyrir að skipin fjögur muni
flytja um milljón tonn af vörum og
aðföngum fyrir Alcoa á ársgrund-
velli. Heildarfjárfestingin í skip-
unum fjórum nemur ríflega 8 millj-
örðum íslenskra króna.
Íslendingarnir sem standa að baki
fyrirtækinu sem skráð er í Hollandi
eru Bjarni Ármannsson, fyrrverandi
bankastjóri Glitnis, sem er stjórnar-
formaður þess, Karl Harðarson sem
átti frumkvæðið að stofnun fyrir-
tækisins ásamt Norðmanninum Øy-
vind Sivertsen, og Stefán H. Stef-
ánsson sem er framkvæmdastjóri
þess.
Skipin, eru smíðuð eftir sömu
teikningu, þau bera 834 gámaein-
ingar og eru 138 metra löng.
»ViðskiptaMogginn
Ljósmynd/Cargow
Skip Frigg, eitt skipa Cargow.
Ný skip
fyrir átta
milljarða
„Umferð einkabíla mun ekki
minnka jafn mikið og ferðum með
einkabílum fækkar.“
Þetta segir Þórarinn Hjaltason
umferðarverkfræðingur í aðsendri
grein í Morgunblaðinu í dag.
Vísar hann m.a. til rannsókna sem
gerðar hafa verið á áhrifum borgar-
lína í öðrum borgum heimsins. Þær
sýna að fyrrverandi bílstjórar
einkabíla hafi aðeins verið fjórð-
ungur eða þriðjungur af nýjum not-
endum. Í besta falli segir hann til-
komu borgarlínu munu minnka
umferð einkabíla um 5%. »52
Segir áhrif borgar-
línu ofmetin
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504