Morgunblaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018
Vordagar í Dublin
sp
ör
eh
f.
Vor 7
Spennandi ferð til Dublin á Írlandi þar sem við kynnumst
höfuðborg eyjunnar grænu ásamt næsta nágrenni hennar.
Við förum í dagsferð suður af borginni, skoðum Wicklow
fjöllin, smábæinn Avoca og kastalaþorpið Glendalough.
Við heimsækjum bæinn Waterford og margfrægar
kristalverksmiðjur og ökum um einstaklega falleg héruð.
9. - 13. maí
Fararstjóri: Gísli Einarsson
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 139.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
„Almennt hefur farið vel með veður
og illviðri hvorki mörg né langvinn.
Hálka hefur sett svip á mánuðinn
enda talsvert frost í jörð en hiti í
lofti oft í kringum frostmarkið,“
segir Trausti Jónsson veðurfræð-
ingur þegar hann er beðinn að
gera upp nýliðinn janúarmánuð.
Að tiltölu hefur verið kaldast inn
til landsins um landið vestan- og
norðvestanvert, en hlýjast á Aust-
fjörðum, hiti þó alls staðar undir
meðallagi síðustu tíu ára. Þegar
einn dagur var eftir af mánuðinum
var meðalhiti í Reykjavík -0,2 stig,
+0,4 stigum ofan meðallagsins
1961-1990, en -1,5 neðan meðaltals
sömu daga síðustu tíu ár. Á Akur-
eyri er meðalhitinn -1,3 stig, +0,9
ofan 1961-1990 meðaltalsins, en -1,2
neðan meðaltals síðustu tíu ára.
Þetta verður þriðji eða fjórði
kaldasti janúar á öldinni nýju, en
hann er í miðjum hópi sé miðað við
lengri tíma, segir Trausti. Úrkoma
í Reykjavík hefur mælst rúmir 100
millimetrar og er það nokkuð ofan
meðallags. Á Akureyri er úrkoma í
meðallagi. Sólskinsstundir hafa
verið fleiri en í meðalári í Reykja-
vík.
Nýliðinn janúar er mun kaldari
en janúar í fyrra. Þá var tíð lengst
af hagstæð og samgöngur greiðar.
Fremur hlýtt var í veðri og með
snjóléttara móti á láglendi. Úr-
koma var ekki fjarri meðallagi.
Minna var um illviðri en venjulegt
er á þessum tíma árs. Meðalhiti í
Reykjavík mældist 1,4 stig og var
það 2,0 stigum ofan meðallags ár-
anna 1961 til 1990, en 0,4 stigum
ofan meðallags síðustu tíu ára á
undan. Á Akureyri var meðalhitinn
0,2 stig, 2,4 stigum ofan meðallags
1961 til 1990 og 0,6 stigum ofan
meðallags síðustu tíu ára þar á
undan.
Morgunblaðið/Hari
Reykjavík Nýliðinn janúar er mun kaldari en janúar í fyrra. Fallegt vetrarveður var í höfuðborginni í gær.
Illviðri hvorki mörg
né langvinn í janúar
Hitinn í nýliðnum mánuði undir meðallagi um land allt
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
„Ég hef engar upplýsingar um það að
okkur hafi borist kvörtun um þennan
einstakling áður. Ég mun hins vegar
velta við öllum steinum til að komast
að því hvort svo hafi verið,“ segir
Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri Barnaverndar
Reykjavíkur, spurð hvort stofnun-
inni hafi borist kvörtun vegna stuðn-
ingsfulltrúa barnaverndar sem er
grunaður um gróf kynferðisbrot
gagnvart ungum dreng á árunum
2004 til 2010. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var Barnavernd
Reykjavíkur tilkynnt um slíkt en
maðurinn hefur áður verið kærður til
lögreglunnar fyrir kynferðisbrot
gegn barni.
„Mér skilst að þetta mál sem átti
að hafa verið tilkynnt til okkar 2008
hafi snúið að tveimur drengjum sem
þá voru orðnir fullorðnir og væntan-
lega hefur fólkinu verið vísað beint á
lögreglu, því það var ekki barna-
verndarmál í sjálfum sér. Svo veit
maður ekki hvort þetta var nafn-
leyndartilkynning og hvernig þessu
var komið til okkar. Þetta er ég bara
að reyna finna út, hver mögulega tók
þessi símtöl og hvernig voru þau af-
greidd,“ segir Halldóra og bætir við
að hún muni að sjálfsögðu skoða mál-
ið til hlítar og hefur Barnavernd haf-
ist handa við að spyrja þáverandi
starfsmenn stofnunarinnar um
málið.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
ákvað í gær að fara af stað með at-
hugun á ferli málsins hjá sér en málið
var kært til lögreglu 22. ágúst og var
maðurinn ekki handtekinn fyrr en 19.
janúar. „Það er bara verið að skoða
feril þessa máls og afgreiðslu þess
frá upphafi,“ segir Árni Þór Sig-
mundsson, yfirmaður kynferðis-
brotadeildar lögreglunnar, sem vildi
ekki tjá sig frekar við fjölmiðla fyrr
en slíkri athugun væri lokið.
Verður að bæta verkferla
Frá því að maðurinn var kærður
og þar til hann var handtekinn starf-
aði hann áfram með börnum sem
stuðningsfulltrúi hjá skammtíma-
heimili fyrir börn og unglinga í
Breiðholti. „Við erum náttúrulega
bara í áfalli hérna. Ég og allir aðrir
starfsmenn,“ segir Sigurður Hólm
Gunnarsson, forstöðumaður skamm-
tímaheimilis fyrir unglinga í Hraun-
bergi. „Það verður að bæta þessa
verkferla, að koma upplýsingum til
skila, það virðist að upplýsingar hafi
borist fyrir 2010 og ég ræð hann í
vinnu í maí 2010 þannig að það hefði
kannski verið gott að vita af þessu,“
segir Sigurður sem fékk að vita af
málinu seinni part miðvikudags 18.
janúar. Hann segir að skammtíma-
heimilið hafi brugðist við samstundis.
„Það fer strax í gang vinna við það að
ræða við börnin. Það eru ýmist sál-
fræðingar sem þau eru að hitta hvort
sem er og svo eru það ráðgjafar hjá
Barnavernd. Það eru bara 4 börn hér
í einu og eru búin að vera mislengi,
sum bara í nokkra daga. Svo fer í
gang líka ferli til að hafa samband við
forráðamenn þeirra einstaklinga sem
eru ennþá börn og hafa verið hér.“
Sævar Þór Jónsson, lögmaður og
réttargæslumaður drengsins, segir
spurður að það sé mögulegt að
skaðabótaskylda hafi myndast vegna
óhóflegs dráttar málsins. „Það er
hugsanlegt að það hafi myndast
skaðabótaskylda en það þarf að
kanna og það er ekki hægt að full-
yrða það,“ segir Sævar. „Ef það er
hægt að sýna fram á að brot hafi átt
sér stað eftir að kæra liggur fyrir,
það hafi orðið dráttur á málinu og ef
það hefði hugsanlega verið hægt að
koma í veg fyrir brotið ef lögreglan
hefði gripið rétt inn í, þá er hugs-
anlega skaðabótaskylda. Það þarf
bara að skoða þetta mál þegar niður-
staða liggur fyrir í rannsókn máls-
ins.“
Ferill málsins hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
19. Janúar7. september
Lögreglan
úthlutar málinu
September, október og nóvember
Réttargæslumaður og fulltrúar hringja
í lögreglu og ýta á eftir málinu
18. desember
Skýrslutaka
hjá lögreglu
Maðurinn er
handtekinn
22. ágúst
Málið kært til
lögreglunnar
2017 20185. desember
Réttargæslumaður drengsins
sendir aftur tölvupóst á lögreglu
1. desember
Réttargæslumaður drengsins
sendir tölvupóst á lögreglu
Barnavernd veltir öllum steinum
Barnavernd Reykjavíkur athugar nú hvort tilkynning um fyrri kynferðisbrot starfsmanns hafi borist
stofnuninni Ferill málsins hjá lögreglunni athugaður Grunlausir samstarfsmenn geranda í áfalli
Morgunblaðið/Eggert
Kynferðisbrot 5 mánuðir liðu frá kæru þar til maðurinn var handtekinn.
Auður Jónsdóttir hefur verið sýknuð af meiðyrðakæru
Þórarins Jónssonar, eiganda Laxness hestaleigu í Mos-
fellsdal, vegna greinar sem hún skrifaði og birt var á
Kjarnanum í júní árið 2016. Greinin var skrifuð í tilefni
af forsetaframboði Andra Snæs Magnasonar og gróður-
mál í Mosfellsdal rædd sérstaklega.
Þórarinn fór fram á að þrenn ummæli í greininni væru
dæmd dauð og ómerk. Auður hafði skrifað að hann
stundaði dýraníð og náttúruníð, að hann væri með
dollaraseðlana upp úr rassskorunni og að hann hugsaði
ekki um náttúruna heldur bara peninga. Í dómi héraðsdóms segir að um-
stefnd ummæli hafi verið liður í almennri þjóðfélagsumræðu og eigi stoð í
fyrri umfjöllun um ástand gróðurs. Telur dómurinn að Auður hafi ekki við-
haft móðgun eða ærumeiðandi aðdróttun í garð Þórarins.
Rithöfundur sýknaður af meiðyrðakæru
Auður Jónsdóttir