Morgunblaðið - 01.02.2018, Síða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018
VIÐTAL
Atli Rúnar Halldórsson
atli@sysl.is
Mömmumatstofan varð bara til si
svona fyrr í vetur og flokkaðist
framan af sem þokkalega varðveitt
leyndarmál í veitingabransanum á
Akureyri. Orðsporið aflétti leynd-
inni smám saman og umsvifin juk-
ust, enda sýndi sig fljótt að maturinn
hennar mömmu á sér marga, dygga
formælendur.
Staðurinn er Norðurslóðasetrið að
Strandgötu 53 á Akureyri og stund-
in er hádegið alla sjö daga vikunnar.
Arngrími Jóhannssyni, stofnanda og
eiganda Norðurslóða, og Aðalsteini
Bergdal staðarhaldara datt í hug í
fyrrahaust að bjóða upp á í hádeginu
það sem þeir kalla einfaldlega
mömmumat: fisk, bollur úr fiski,
farsi eða kjöti, grjónagraut, svikinn
héra og fleira álíka kunnuglegt úr
heimaeldhúsum landsmanna. Einn
ákveðinn rétt í hvert sinn. Einfalt
mál. Þetta spurðist brátt út og
starfsfólk í fyrirtækjum á Eyrinni
fór að mæta og mætir enn.
Á Þorláksmessu komu 160 manns
í skötu og þá var þrísetið í salnum.
Þrjú fyrirtæki hafa nú samið við
Norðurslóð um hádegismat handa
starfsmönnum sínum. Þarna mæta
því daglega fastir kostgangarar og
svo hinir og þessir, ferðamenn á
Akureyri og fastbúandi.
Þverskorna ýsan gekk ekki
Mesta annríkið er að jafnaði á
föstudögum. Þá er til skiptis á mat-
seðlinum saltkjöt og baunir eða kjöt
og kjötsúpa. Máltíðin kostar 1.500
krónur alla daga, súpa og kaffi inni-
falið. Ekki fælir verðlagið frá.
Viðbrögðin hafa orðið til þess að í
bígerð er að selja líka mat tvö kvöld í
viku til að byrja með. Matstofan er
að sjálfsögðu með öll tilskilin leyfi til
veitingahúsareksturs, þar með talið
vínveitingaleyfi.
„Við prófuðum að vera með þver-
skorna ýsu á matseðli einn dag í viku
en það gekk ekki,“ segir Arngrímur.
„Á daginn kom að yngra fólkið kunni
ekki að beinhreinsa fiskstykkin og
vildi fá eitthvað annað á diskinn
sinn. Þannig er nú komið fyrir
sjávarútvegsþjóðinni!“
Eldskírn sem kokkur til sjós
Aðalsteinn Bergdal sér um mat-
reiðsluna. Hann hefur hingað til ver-
ið þekktari fyrir leiklist en matarlist.
Á daginn kemur að staðarhaldarinn
kann meira fyrir sér í eldamennsku
en margan grunar.
„Ég neyddist til þess að læra að
búa til hafragraut sjálfur áður en ég
fór í skólann á Akureyri forðum
daga. Mamma vann við hreingern-
ingar hjá Jóni G. Sólnes í Lands-
bankanum og fór að heiman snemma
á morgnana. Sonurinn varð þá ein-
faldlega að bjarga sér. Þetta vatt
upp á sig, reyndar svo mjög að síðar
var ég kokkur til sjós um hríð og
kröfuharðari kostgangara er vart
hægt að finna. Ég hef alltaf haft
gaman af því að elda og tek mér góð-
an tíma til að búa til mat handa mér
einum heima. Föndra við réttina og
nýt þess mjög,“ segir Aðalsteinn.
Viðhafnarveisla við
sjóndeildarhringinn
Norðurslóðasetrið var opnað í jan-
úar 2017 og fagnaði því eins árs af-
mæli á dögunum. Það hvarflaði
hvorki að Arngrími né öðrum þá að
ári síðar yrði veitingarekstur orðinn
sá vaxtarsproti setursins sem raun
ber vitni. Hann segir að viðtökurnar
komi sér þægilega á óvart.
„Vænst þykir mér um að sjá fleiri
og fleiri sveitunga mína, heimamenn
á Akureyri, hérna í hádeginu. Við
höfum hvergi auglýst matsöluna,
heldur látið umtalið annast kynn-
inguna út á við.
Fljótlega förum við að selja líka
mat á kvöldin en byrjum rólega með
því að hafa eingöngu opið í fyrstu á
föstudags- og laugardagskvöldum.
Sjáum svo til. Við höfum ekki tíma-
sett upphafið en alla vega liggur fyr-
ir að byrja með stæl. Valinkunnir
snillingar munu sjá um elda-
mennsku og umsjón með tímamóta-
veislunni fyrsta kvöldið: Friðrik V.
og Adda (Friðrik V. Karlsson og
Arnrún Magnúsdóttir) og Axel Jóns-
son, eigandi Skólamatar í Keflavík.
Hvað sem öðru líður hugsum við
fyrst og fremst vel um kúnnana í há-
deginu, enda vinir okkar sem koma
hingað dag eftir dag til að hylla mat-
inn hennar mömmu,“ segir Arn-
grímur.
Mömmumatur laðar og lokkar
Matstofan á Norðurslóðarsetrinu á Akureyri nýtur sívaxandi vinsælda Fastir kostgangarar
mæta daglega Þrjú fyrirtæki hafa samið við Norðurslóð um að elda mat fyrir starfsmenn sína
Ljósmyndir/Atli Rúnar Halldórsson
Matstofa Aðalsteinn Bergdal og Arngrímur Jóhannsson í matstofu Norðurslóðasetursins á Akureyri.
Fars Gjörðu svo vel! Aðalsteinn með farsbollur með soðnu káli,
kartöflum og bræddu smjöri í hádeginu á mánudögum.
Skíðaslys, HM í Rússlandi og útitón-
leikar í Viðey eru meðal viðfangsefna
sem 300 framhaldsskólanemar víða
af landinu fást við í hinum árlega Há-
skólahermi sem fram fer í Háskóla
Íslands í dag og á morgun.
Háskólahermirinn er nú haldinn í
þriðja sinn en þar gefst framhalds-
skólanemum tækifæri til að taka
virkan þátt í háskólasamfélaginu og
kynnast námsframboði skólans með
lifandi og oft óvæntum hætti, segir í
fréttatilkynningu.
Markmið verkefnisins er að efla
frekar samstarf Háskóla Íslands við
framhaldsskóla landsins og gefa
ungu fólki tækifæri til að kynnast
starfsemi háskólans af eigin raun og
um leið styðja það í að taka upplýsta
ákvörðun um nám og starf í framtíð-
inni.
Öll fimm fræðasvið skólans hafa
undirbúið fjölbreytta dagskrá sem
bæði kennarar og nemendur Háskól-
ans standa að en lögð er áhersla á að
dagskráin á sviðunum gefi mynd af
hagnýtingu námsins að því loknu.
Skráning í Háskólaherminn fór
fram í gegnum vef verkefnisins fyrr í
janúar og reyndist áhugi framhalds-
skólanema svo mikill að öll 300 sætin
fylltust á innan við klukkustund.
Morgunblaðið/Ómar
Háskóli Framhaldsskólanemar glíma við ýmis verkefni í dag og á morgun.
Háskólahermir
framhaldsskólanna
Skíðaslys og HM meðal viðfangsefna