Morgunblaðið - 01.02.2018, Qupperneq 42
ÁSKRIFTARHAPPDRÆTTI MORGUNBLAÐSINS
Barcelona Drögum alla fimmtudaga í 10 vikur og nöfn vinningshafa verða birt í Morgunblaðinu á föstudögum.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018
F
áar borgir eru jafn áþreifan-
lega lifandi og Barcelona,
hin 2000 ára gamla höfuð-
borg Katalóníuhéraðs. Það
má næstum finna púlsinn slá þegar
maður leggur lófann á gangstéttina
á Römblunni – hinni víðfrægu Las
Ramblas – og engin leið að standast
stemninguna. Heimamenn gera
heldur ekki minnstu tilraun til þess
og það skyldir þú ekki gera heldur.
Mættu bara og láttu berast með
straumnum.
Heimsborg með
heillandi strönd
Stundum þarf maður að gera upp
á milli þess að heimsækja heillandi
borg með öllu tilheyrandi – menn-
ingu, listum, veitingastöðum og
verslunum – og þess að komast á
rúmgóða sandströnd. Barcelona
býður upp á hvort tveggja í senn;
einn daginn skoðar þú Picasso-
safnið við Carrer Montcada, þann
næsta flatmagar þú á sólarströnd,
hlustar á öldurnar gæla við sandinn
og hleður batteríin. Það má!
Þegar líkami og sál eru svo klár í
frekari landvinninga innan borgar-
markanna er nauðsynlegt að skoða
nokkur helstu kennileiti hins goð-
sagnakennda arkitekts Antoni
Gaudí, en fingraför hans munu setja
svip sinn á Barcelona um alla fram-
tíð. Hinn flæðandi, lífræni og nánast
lifandi stíll hans einkennir meðal
annars húsin Casa Batlló við Pas-
seig de Gracia og Casa Mila við
Provença. Þá má ekki sleppa heim-
sókn í almenningsgarðinn Parc Gü-
ell, rétt utan við miðborgina uppi á
Carmel-hæð, né heldur að sjá hina
einstöku kirkjubyggingu La Sagr-
ada Familía, en bygging hennar
hefur staðið yfir síðan 1882 og lýkur
að vonum árið 2026, en það ár verð-
ur öld liðin frá dánardægri Gaudí.
Góður tapas í gotnesku hverfi
En það er sitthvað fleira en
Gaudí sem gerir Barcelona svo
heillandi. Elsti hluti borgarinnar,
gotneska hverfið (Barri Gótic), er
að finna nálægt höfninni og þar er
lag að leggja frá sér leiðarvísinn og
ramba um þröngar steinilagðar göt-
ur, þvers og kruss, með eldfornum
og óhemju fallegum húsum.
Mörgum finnst þess hluti borgar-
innar mest sjarmerandi og veitinga-
staðirnir eiga ekki minnstan þátt í
því. Þarna er nefnilega að finna fjöl-
marga frábæra tapas staði, þar sem
hver smárétturinn er öðrum ljúf-
fengari – bragðsinfónía í einum
munnbita! Ef göngumóða langar í
einfaldari mat þá má fá hina dásam-
legu hráskinku, jamón ibérico, víð-
ast hvar og þá er góður ostbiti og
drykkur með akkúrat málið.
Skemmtilegast er að uppgötva stað
upp á eigin spýtur en fyrst um sinn
má mæla með Piscolabis keðjunni,
þar sem ljúffengir tapas-réttir fást
á góðu verði, og svo Vila Viniteca
við Carrer Dels Agullers, með um
7.500 mismunandi vín á lager ásamt
350 ostum og hráskinku í hæsta
gæðaflokki.
Gleymdu ekki að næra andann!
Maður lifir víst ekki á brauði einu
saman, segir í frægri bók, og það er
ekki áhyggjuefni í Barcelona. Í
borginni eru ótalmörg listagallerí
með spennandi verkum, ásamt söfn-
um sem hýsa einstök meistaraverk
magnaðra listamanna. Fyrst er að
nefna Picasso-safnið við Carrer
Montcada. Safnkosturinn telur um
4200 verk eftir Picasso, sem einkum
varpa ljósi á mótunarár hans sem
listamanns og um leið á sérstætt
samband hans við borgina. Museu
Nacional d’Art de Catalunya,
skammstafað MNAC, er aftur á
móti hið ómetanlega listasafn Kata-
lóníu og er staðsett í Palau Nacional
við Parc de Montjuïc. Ekki má
gleyma Fundació Joan Miró þar
sem verk Miró eru til sýnis ásamt
verkum ýmissa spennandi samtíma-
listamanna. Loks má benda á að
þeir sem þekkja til hins magnaða
Barcelona-fjórleiks um grafreit
hinna gleymdu bóka (bækurnar eru
Skuggi vindsins, Leikur engilsins,
Fangi himinsins, og loks Völundar-
hús andanna sem kemur út síðar á
þessu ári) eftir katalónska rithöf-
undinn Carlos Ruiz Zafón, geta
fengið tveggja og hálfrar klukku-
stundar leiðsögutúr um sögustaði
bókanna í Barcelona.
Svo er það þessi Messi ...
Í framhaldinu er svo ekki úr vegi
að minnast á lágvaxinn Argentínu-
mann sem skírður var Lionel
Andrés Messi Cuccittini, en flestir
þekkja líklega sem Leo Messi. Þessi
fótboltasnillingur er nefnilega svo
hæfileikaríkur í sinni íþrótt að
margir segja að hann ætti hreinlega
að vera á listamannalaunum. Hann
iðkar einmitt galdur sinn í treyju
fótboltaliðsins FC Barcelona og þar
sem heimavöllur félagsins, Camp
Nou, tekur hvorki fleiri né færri en
99.354 manns í sæti er allt eins lík-
legt að áhugasamir geti krækt í
miða og séð kappann leika listir
sínar. Skoðunarferðir um völlinn
eru líka í boði til að auka á upplifun-
ina og þar sem Messi skorar oftar
en ekki þá má vel vera að gestir á
vellinum upplifi hinn ótrúlega
hljómvegg sem myndast þegar
næstum hundrað þúsund áhorf-
endur fagna marki snillingsins ein-
um rómi. Meira að segja gæsahúðin
fær gæsahúð.
En það er svosem tilfinning sem
oft lætur á sér kræla í Barcelona.
Borg lista, til-
finninga, tapas
og fótbolta
Morgunblaðið/Ómar
Langtímasmíði Sagrada Família-kirkjan í Barcelona
er verk í vinnslu og hefur verið í meira en 135 ár.
Engu að síður er ómissandi að skoða snilldina.
AFP
Listamaður Kunnugleg sjón á
Camp Nou; Leo Messi skilur mót-
herja sinn eftir í grasinu og heldur
áleiðis að marki gestaliðsins hvar
hann mun að öllum líkindum skora,
einu sinni eða oftar, undir trylltum
fagnaðarlátum áhorfenda í alsælu.
Draumahús Casa Batlló stendur við Passeig de Gracia og
er eitt þekktasta sköpunarverk Antoni Gaudí. Húsið er
eiginlega draumkennt að sjá og hefur ýmist verið kallað
„Beinahúsið“ eða „Neðansjávarhúsið“. Ástæðan er augljós.
Gotneskja Hinar þröngu og á stundum dimmu steinilögðu götur
gotneska hverfisins hafa óviðjafnanlegan sjarma, og allir tapas-
staðirnir hafa þar ekki minnst að segja. Unaðsreitur í borginni.
Morgunblaðið/Ómar
Markaður Sælkerar mega alls ekki láta hjá líða
að heimsækja matarmarkaðinn La Boqueria
sem stendur við Römbluna í Barcelona. Þar má
fá nánast alla þá matvöru sem hugsast getur.
Veisla Það er engu logið þegar sagt er að vel samansettur tapas-
réttur sé bragðsinfónía í einum munnbita. Oft og iðulega kemur
hin unaðslega bragðgóða hráskinka jamón ibérico við sögu.
Morgunblaðið/Ómar
Sólarströnd Það er ómetanlegt að eiga þess kost
að taka sér hlé frá borginni og bregða sér á
ströndina við Barcelona til að ná sér í nauðsyn-
legt D-vítamín, slaka á og safna kröftum.