Morgunblaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018 AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR SKODA • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is Þingið er rétt hafið eftir langtjólafrí og þingmenn Pírata eru þegar „búnir á því“. Í umræðum á þriðjudag kvartaði Halldóra Mogen- sen undan því að fá ekki nægar upplýs- ingar um dagskrá þingsins.    Halldóra sagðiþingmenn vinna mikið en sagð- ist ekki geta unnið á kvöldin því að þá væri hún „bara búin á því“. Svo lagði hún málræktarátaki þingsins lið og sagði það „bara vera „basic“ virðing við okkur þingmenn að geta haft dag- skrána tilbúna fyrr“.    Allt er þetta auðvitað mjög átak-anlegt og erfitt, þó að þing- forseti hafi að vísu upplýst um að dagskráin hafi verið tilbúin með fyrirvara. Og fyrrverandi forseti tók undir þetta og sagði „allt með sóma og miklum og góðum brag“.    En píratar gáfu sig ekki og erf-iðið er meira að segja slíkt að vinnuþjarkurinn Jón Þór Ólafsson safnaði kröftum til að fara í ræðu- stól og taka undir gagnrýni Hall- dóru. Og fulltrúi systurflokksins, Oddný Harðardóttir, kom þétt á hæla hans og fann að skipulagningu þingforseta.    Fyrir þá sem sjá út fyrir naflaþingsins og þurfa jafnvel stundum að vinna á kvöldin án þess að hafa fengið tæpan mánuð í jólafrí eða nokkra mánuði í sumar- frí, hljómar þetta allt stórundar- lega.    En Píratar vilja fá sitt frí. Er nokkur ástæða til að hindra þá í því? Halldóra Mogensen Alveg búin á því og þrá meira frí STAKSTEINAR Jón Þór Ólafsson Veður víða um heim 31.1., kl. 18.00 Reykjavík 0 léttskýjað Bolungarvík -2 skýjað Akureyri -1 snjókoma Nuuk -9 snjókoma Þórshöfn 3 skúrir Ósló 0 snjókoma Kaupmannahöfn 5 rigning Stokkhólmur 1 súld Helsinki -3 skýjað Lúxemborg 5 rigning Brussel 6 skúrir Dublin 4 léttskýjað Glasgow 2 rigning London 5 rigning París 8 rigning Amsterdam 6 léttskýjað Hamborg 7 rigning Berlín 9 skýjað Vín 6 heiðskírt Moskva -5 snjókoma Algarve 16 heiðskírt Madríd 13 heiðskírt Barcelona 15 heiðskírt Mallorca 15 léttskýjað Róm 12 skýjað Aþena 14 heiðskírt Winnipeg -18 heiðskírt Montreal -16 léttskýjað New York -7 léttskýjað Chicago 2 heiðskírt Orlando 17 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 1. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:08 17:16 ÍSAFJÖRÐUR 10:29 17:04 SIGLUFJÖRÐUR 10:13 16:46 DJÚPIVOGUR 9:42 16:41 Mikill munur er á kostnaði við skóladagvistun og skólamáltíðir hjá sveitar- félögum, en mun- urinn á lægstu og hæstu gjöld- um nemur 127 þúsund krónum á ári. Verðlags- eftirlit ASÍ kann- aði breytingar á gjaldskrám frá 2017 til 2018, og námu hækkanir frá 0 til 4,6 pró- sentustigum. Hæst eru gjöldin í Garðabæ, en þar kostar skóladag- vistun ásamt hádegismat og síð- degishressingu 37.114 krónur. Lægst eru gjöldin í Vestmanna- eyjum, eða 24.360 krónur. Munur- inn nemur því 52%, eða 12.754 krónum sem gera 127.540 krónur á ári miðað við tíu mánaða vistun. Mesta hækkun á heildarkostnaði á milli ára var hjá Kópavogsbæ, eða 4,6%, en Reykjavík fylgdi á eftir með 4,5% hækkun. Í Hafnarfirði, Reykjanesbæ og í Vestmanna- eyjum hækkuðu gjöldin ekkert á milli ára. Munar 127 þúsundum á dagvist  Dýrast í Garðabæ, ódýrast í Eyjum Dagvistun Miklu munar gjöldum sveitarfélaga. Rúmur helmingur þeirra sem leit- uðu til Bjarkarhlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis, á síðasta ári hefur glímt við sjálfsvígshugsanir í tengslum við ofbeldi. Það er eitt af þeim atriðum sem koma forsvars- mönnum Bjarkarhlíðar á óvart. „Það er mjög sláandi að sjá hversu margir eru komnir á þann stað. Okkur finnst það mikið áhyggjuefni,“ segir Hafdís Inga Hinriksdóttir, félags- ráðgjafi í Bjarkarhlíð. Bjarkarhlíð hóf starfsemi sína 2. mars 2017. Frá þeim degi og til loka ársins höfðu alls 316 einstaklingar leitað til miðstöðvarinnar. Yfir 90% þeirra voru konur, Íslendingar í miklum meirihluta og stærsti hluti þjónustuþeganna var á aldrinum 18 til 29 ára og samtals tæp 70% á bilinu 18 til 39 ára. Hafdís Inga segir að það hafi komið á óvart hversu margt ungt fólk hafi leitað til Bjarkarhlíðar. Sumir séu komnir í slæma stöðu, til dæmis með örorku. Hún telur að skýringin geti verið sú að unga fólk- ið sé að leita sér aðstoðar fyrr, sé að reyna að koma sér út úr heimilis- ofbeldi. Mikilvægt samstarf Flest málin voru vegna heimilis- ofbeldis, eða 74%. Þar af voru 46% gerenda fyrrverandi maki, 14% þá- verandi maki og í 13% tilvika var gerandi ættingi viðkomandi. Bjarkarhlíð er samstarfsverkefni margra stofnana og samtaka. Flest- um þjónustuþegum var vísað í sitt annað viðtal til starfskvenna Kvennaathvarfsins, eða 26%, lög- reglan fengu litlu færri mál og Stíga- mót fékk 12% málanna. Hafdís Inga segir að tölurnar sýni að mikil þörf sé fyrir þjónustuna. Það skipti miklu málið að fólk geti leitað á einn stað. helgi@mbl.is Helmingur með sjálfsvígshugsanir  316 þolendur ofbeldis leituðu aðstoðar hjá Bjarkarhlíð á fyrsta starfsári
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.