Morgunblaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018 Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Sólrún Lilja Ragnarsdóttir „Mér varð það ljóst að þessi listi yrði aldrei samþykktur óbreyttur hér á þinginu,“ sagði Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra sem sat fyrir svörum á opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis um ákvarðanir dómsmála- ráðherra og verklag við vinnslu til- lögu Alþingis um skipan dómara í Landsrétt í gærmorgun. Sigríður vék frá mati sérstakrar hæfnisnefndar sem mat fimmtán umsækjendur um dómarstöður hæfasta, en hún gerði fjórar breyt- ingar þegar hún skipaði í stöðurn- ar. Í desember komst Hæstiréttur Íslands að þeirri niðurstöðu að ráð- herrann hefði brotið stjórnsýslulög með því að fara ekki eftir mati nefndarinnar um hæfi umsækj- enda. Á fundinum sagðist Sigríður hafa farið yfir andmæli umsækjenda þegar hún fékk tillögu hæfnis- nefndar í hendurnar, sem hafi verið mjög vel unnin. Í ljósi þess að til stóð að leggja tillögurnar fyrir á Alþingi og að þingið hefði ákvörð- unarvald hafi hún ákveðið að ræða við formenn flokkanna. Henni hafi verið gert ljóst að listinn yrði ekki samþykktur og því hafi hún verið tilneydd til að gera breytingar. Ákvörðunarvaldið Alþingis Í kjölfarið mun hún hafa farið betur yfir andmæli umsækjenda og hlustað á sjónarmið þingmanna. Sagðist hún hafa talið réttast að dómarareynsla yrði metin meira. „Ég tók þá dómara sem höfðu ára- tugareynslu af dómarastörfum ég lagði þá að jöfnu við þá sem voru taldir hæfastir.“ Þá stóðu eftir 24 einstaklingar í stað fimmtán. Sigríður segist þá hafa skoðað málið til hlítar og gert þær tillögur sem hún gerði, en þar vék hún frá mati nefndarinnar í fjórum tilfellum. Tillaga Sigríðar var samþykkt á Alþingi. Þá vitnaði Sigríður í máli sínu í ritið Stjórn- skipunarrétt eftir Björgu Thor- arensen, þar sem segir að þegar ráðherra beri skipan dómara fyrir Alþingi hafi Alþingi ákvörðunar- valdið, þegar formaður stjórnskip- unar- og eftirlitsnefndar, Helga Vala Helgadóttir, innti hana að því hvort hún væri enn á þeirri skoðun að Alþingi bæri ábyrgð á málinu. Sigríður sagði ýmislegt benda til þess að hátt skipunar í embætti sem þessi þyrfti að endurskoða, og benti á að dómur Hæstaréttar lyti að því hvort hún hefði rannsakað málið nægilega vel, og kvaðst geta setið undir því að hafa ekki rann- sakað málið nægilega vel á þeim tveimur vikum sem hún hafði til verksins. „Það sjá allir sem vilja sjá að ráðherra sem settur er í þá stöðu að þurfa að taka ákvörðun á tveimur vikum, honum verður ekki gert að rannsaka málið með sama hætti og dómnefnd sem hefur til þess marga mánuði.“ Krafa um jöfn kynjahlutföll Í máli sínu vék Sigríður einnig að þeirri kröfu flestra þingmanna að Landsréttur yrði skipaður konum og körlum til jafns, og vísaði til þess anda sem skapaðist á Alþingi í febrúar þar sem þau mál voru rædd, og vitnaði þar í ræðu ónefnds þingmanns þar sem fram kom að „ef það ferli sem nú fer í gang skilar ekki þeirri niðurstöðu þá er okkur að mæta“. Í samtölum sínum við nokkra formenn þeirra flokka sem sitja á þingi segist Sigríður hafa fundið fyrir því sjónarmiði að niðurstaða nefndarinnar sem kvað á um að fimm konur væru í hópi hinna fimmtán hæfustu væri ekki ásætt- anleg. Sagði hún að hefði einhverj- um dottið í hug að skipta karli út fyrir konu hefði ráðherra verið í þeirri stöðu að öllu öðru óbreyttu að sá umsækjandi hefði farið í dómsmál og unnið það. Þá sagði hún nefndina hafa talið ómögulegt að líta á þær konur sem komu fyrir neðan fimmtán hæfustu jafnhæfar jafnvel þó þær hefðu áratug- areynslu og sætu sem skipaðir dómarar. Ákvörðun hennar um að líta til hinna skipuðu dómara hafi svo leitt til þeirrar ánægjulegu nið- urstöðu að konum hafi fjölgað um tvær í tillögunum. Aðeins einn hæsta- réttardómari Sigríður sagði eðlilegt að menn rökræddu dóma Hæstaréttar og að út á það gengi lögfræðin, að menn skoðuðu og greindu dóma Hæsta- réttar. Þá benti hún á að í dómi Hæstaréttar hafi aðeins setið einn hæstaréttardómari, aðrir hafi verið sérstakir varadómarar sem Hæsti- réttur valdi. Hún sagði að þar hefði ákveðin sérfræðiþekking fengist, því þar hefði setið einn fyrrverandi nefndarmaður hæfnisnefndarinnar sem sat í dóminum, og einn fyrr- verandi varamaður nefndarinnar. Þennan dóm sagði hún líklega verða hafðan í huga við kennslu í lögfræði í framtíðinni. Ákvörðunarvaldið verið Alþingis  Dómsmálaráðherra sat fyrir svörum stjórnskipunarnefndar um landsréttarmálið  Jöfn kynjahlut- föll hafi verið ánægjulegur ávinningur  Sérfræðingar úr nefndinni hafi setið í dómi Hæstaréttar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hörð sókn Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra sat fyrir svörum á opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í gærmorgun. Dómsmálaráðherra » Sigríður Á. Andersen segir ljóst að tillaga nefndarinnar hefði ekki verið samþykkt á Al- þingi. » Þegar ráðherra beri skipan dómara fyrir Alþingi hafi Al- þingi ákvörðunarvaldið » Ráðherra sé ekki gerlegt að rannsaka málið til hlítar á tveimur vikum. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Von er á 23 kvótaflóttamönnum frá Sýrlandi og Írak til Vestfjarða. Áætlanir gera ráð fyrir að fólkið komi jafnvel þegar um miðjan þenn- an mánuð. Um er að ræða fimm fjöl- skyldur og eru þær frá þriggja og upp í sex manna. Ísafjarðarbær, Bolungarvíkur- kaupstaður og Súðavíkurhreppur eru sameiginlega með þetta verkefni í samvinnu við Rauða krossinn og hafa unnið að því samkvæmt samn- ingi við velferðarráðuneytið. Sædís María Jónatansdóttir, deildarstjóri félagsþjónustu Ísafjarðarbæjar, sagði að búið sé að finna húsnæði fyrir þrjár fjölskyldur á Flateyri, eina í Súðavík og eina á Ísafirði. Hún sagði að fólkið væri nú flóttamenn í Jórdaníu. Vel sóttur upplýsingafundur Upplýsingafundur um móttöku flóttafólksins var haldinn í Stjórn- sýsluhúsinu á Ísafirði í fyrradag. Sædís sagði að fundurinn hafi verið mjög vel sóttur og salurinn fullset- inn. Fulltrúar sveitarfélaganna, vel- ferðarráðuneytisins og Rauða kross- ins gerðu þar grein fyrir verkefninu. Rauði krossinn hefur auglýst eftir sjálfboðaliðum við söfnun húsmuna, standsetningu íbúða, stuðning við flóttafólkið, íslenskuæfingar o.fl. Ísafjarðarbær hefur tvisvar áður tekið formlega þátt í svona verkefni. Fyrst var það 1996 þegar 30 flótta- menn komu frá Júgóslavíu fyrrver- andi. Þeir aðlöguðust ágætlega og eru nú allir fluttir að vestan. „Við teljum að það verkefni hafi gengið afskaplega vel. Að vísu fluttu þau burtu, en við lítum ekki svo á að það sé slæmt heldur merki um góða að- lögun,“ sagði Sædís. Haustið 2016 kom lítill hópur flóttamanna úr hópi hælisleitenda vestur og hefur það gengið mjög vel. Fimm fjölskyldur vestur Ljósmynd/Sædís María Jónatansdóttir Ísafjörður Upplýsingafundurinn um móttöku flóttafólksins var vel sóttur. Aðstandendur verkefnisins finna fyrir velvilja gagnvart því fyrir vestan.  Von er á 23 kvótaflóttamönnum frá Sýrlandi og Írak  Þeir munu setjast að á Flateyri, Súðavík og Ísafirði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.