Morgunblaðið - 01.02.2018, Page 20

Morgunblaðið - 01.02.2018, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018 Tillögur að breytingu á Aðalskipu- lagi Reykjavíkur 2010-2030 og deili- skipulagi fyrir reitinn Hraunbær- Bæjarháls í Árbæjarhverfi hafa ver- ið auglýstar á vef Reykjavíkur- borgar. Í breytingunum felst að opið svæði verður íbúðabyggð. Heimilt verður að byggja um 200 íbúðir á reit milli Hraunbæjar og Bæjarháls, sem áður var opið grænt svæði. Gert er ráð fyrir að húsin geti verið 2-5 hæðir. Markmið breytingartillagn- anna er að mæta aukinni eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði, stuðla að fjöl- breyttara húsnæðisframboði, bæta ásýnd svæðis og styrkja Árbæinn sem lífvænlegt hverfi til lengri tíma, segir á vef Reykjavíkurborgar. Borgarbúar geta kynnt sér tillög- urnar í þjónustuveri Reykjavíkur- borgar í Borgartúni 12-14, og á vef borgarinnar www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Borgin hvetur þá sem telja sig eiga hagsmuna að gæta til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og at- hugasemdum við tillöguna skal skila eigi síðar en 13. mars næstkomandi. sisi@mbl.is Tölvuteikning/A2F arkitektar Hugmynd að útliti Heimilt verður að byggja allt að 200 íbúðir á fjórum auðum lóðum við Hraunbæ. Íbúðirnar verða frá 35-50 m² upp í 111-150 m². Skipulagið auglýst  Byggðar verða 200 íbúðir við Hraunbæ  Frestur fram í mars Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, Ásmundur Daði Einarsson, velferðarráðherra og Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri sáu um að bjóða gestum kjötsúpu þegar Samhjálp fagnaði 45 ára starfsafmæli sínu í gær. Veislan fór fram í Kaffistofu Samhjálpar en árlega eru gefnar um 67.000 máltíðir á Kaffistofu Sam- hjálpar sem er opin 365 daga ársins. Í dag nýta sér að jafnaði 90 manns langtíma úrræði Samhjálpar sem m.a. rekur áfengis- og vímuefna- meðferðstöðina í Hlaðgerðarkoti í Mosfellsdal. Þá rekur Samhjálp fjög- ur áfanga- og stuðningsheimili. Áfangaheimilin eru í Reykjavík og eru ætluð þeim sem lokið hafa lang- tímameðferð. Stuðningsheimilin eru í Reykjavík og Kópavogi og eru rekin í samstarfi við velferðarsvið Reykja- víkurborgar og velferðarsvið Kópa- vogsbæjar. Vörður Leví Traustason, framkvæmdastjóri Samhjálpar, segir í samtali við Morgunblaðið að starf- semin hafi breyst mikið í gegnum ár- in en á upphafsárum sínum var Sam- hjálp starfandi í bílskúr. „Þetta byrjaði í bílskúr á Sogaveginum þeg- ar einn maður fór til Svíþjóðar í drykkjumeðferð. Hann kom heim og vildi hjálpa sínum gömlu drykkju- mönnum sem héldu til niðri á togara- bryggju,“ segir Vörður Leví og á þar við Georg Viðar Björnsson. Að öllu jöfnu eru 30 manns í rúmi hjá Hlaðgerðarkoti en upp- haflega var einungis pláss fyrir 14 manns. Árið 2016 tók Samhjálp við 300 manns í meðferðarúrræði en þurfti að hafna 600 einstaklingum. Úr gömlum drykkjumönnum í unga fíkla í hörðum efnum „Þegar þetta byrjaði þekktist ekkert annað en bara drykkjumenn- irnir. Þetta voru gamlir útbrunnir karlar sem komu í Hlaðgerðarkot en í dag er þetta meira unga fólkið sem er að koma úr hörðum efnum. Við tök- um ekki við yngri en 18 ára en þetta er sá hópur. Rúmlega 70% þeirra sem koma eru yngri en fertugt,“ segir Vörður. „Þau geta verið þarna í þrjá mánuði en síðan eru þau oft ekki tilbúin að fara út og eru þá í 6 til 8 mánuði, sem þýðir að veltan er ekki eins mikil hjá okkur en árangur betri. Það er fyrst og fremst verið að hugsa um það að fólk nái að snúa við lífinu.“ Samhjálp fagnaði 45 ára starfsafmæli Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Íslensk kjötsúpa Ásmundur Einar Daðason, Dagur B. Eggertsson og Guðni Th. Jóhannesson gáfu gestum súpu.  Starfsemi Samhjálpar stækkað og breyst mikið frá stofnun Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Fjallskilin þurfa að vera í lagi,“ segir Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Í vet- ur hefur verið nokkur misbrestur á því að fé sem rekið er á afrétt eða heimalönd til beitar að vori skili sér til byggða. Um 400 fjár hefur í vetur verið smalað fram til byggða á Austurlandi, svo sem í Fljótsdal og Loðmundarfirði. Þá bárust fyrir skemmstu fréttir af fé sem heldur sig í fjallinu Bjólfi ofan við Seyðisfjarðar. Matvælastofnun fylgist með þessum málum og veitir bændum aðhald og setur skilyrði. Úr öðrum héruðum má nefna að skömmu eftir nýár fóru bændur í Hrunamannahreppi á afrétt sinn og náðu þar fjórum kindum sem höfðu ekki skilað sér. Sex kindur eru enn ófundnar. Þá var um helgina farinn leiðangur í Staðarfjöll í Skagafirði og þar náð í sextán kindur sem höfðu gengið úti í allan vetur. Fyrir nokkr- um dögum komu svo fram kindur í Arnarfirði. Færri bændur og minni tími „Skýringarnar á því hvers vegna fé gengur úti eru eflaust misjafnar. Sumstaðar er raunin að bændum hef- ur fækkað, fólk hefur líka oft á tíðum minni tíma aflögu. Þessi veruleiki leysir fólk samt ekki undan ábyrgð í vandamáli sem verður að leysa,“ segir Oddný Steina. Í sveitum segir hún það vera skyldu hvers bónda að leggja til mannskap í smalamennsku. Landeigendur og sveitarfélögin beri einnig ábyrgð á því sem að þeim snýr. „Fólk verður einfaldlega að leita leiða til lausna og horfa á þetta sem verk- efni en ekki vandamál enda gefandi og gaman að verja fallegum haust- dögum í smalamennsku upp um fjöll og dali,“ segir Oddný Steina. Útigangsfé er víða vandamál  Fjallskilin vandi sem þarf að leysa Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sauðfé Stundum vantar ær í hjörð- ina og þá er vandi á höndum. Laugavegi 103, við Hlemm | 105 Reykjavík | Sími 551 5814 | www.th.is Vetrarhátíð í miðbænum 20-40% afsláttur af öllum vörum 1.-3. febrúar Grikkir gegn auðvaldi er yfirskrift fundar sem boðað hefur verið til í Safnahúsinu við Hverfisgötu laugardag- inn 3. febrúar kl. 12. Þar verður fjallað um stöðu og horfur í grískum stjórnmálum, með þátttöku tveggja baráttumanna sem hafa verið virkir leiðtogar í baráttu grísks almennings gegn alþjóðlegu auðvaldi, þau Zoe Konstantopoulou og Diamantis Karanastasis. Konstantopoulou er formaður nýs stjórnmálaafls í Grikklandi, Frelsisleiðarinnar, en hún var í fremstu víg- línu þegar Syriza vann sögulegan kosningasigur sinn í janúar árið 2015 og hefur í kjölfarið verið áberandi í grískum stjórn- málum. Karanastasis er margverðlaunaður leikari og leikstjóri. Hann er í framvarðarsveit Frelsisleiðarinnar svo og hreyfinganna „Réttlæti fyrir alla“ og „Nei við þeirra jái!“ Reiknað er með að fundinum verði lokið um kl. 13.30 í síðasta lagi, segir í fréttatilkynningu. Fundað um stöðuna í grískum stjórnmálum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.