Morgunblaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is Sími: 535 9000 | bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð Vottaðir hágæða VARAHLUTIR í flestar gerðir bifreiða Siðan 1962 Bílanaust er einnig í Kópavogi – Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum Faxaflóahafnir hafa birt yfirlit yfir landaðan afla í höfnum fyrirtækisins á árinu 2017. Heildaraflinn var 118.915 tonn eða heldur meiri en ár- ið 2016 þegar hann var 112.361 tonn. Aukning milli ára nemur 6.500 tonn- um eða tæplega 6%. Munar mest um aukningu á uppsjávarfiski sem land- að var á Akranesi. Landaður afli í Reykjavík var tæp 100 þúsund tonn, um 6.900 tonnum minni á milli ára. Samdráttur var bæði í botnfiski og uppsjávarfiski. Væntanlega hefur sjómannaverk- fallið í byrjun ársins haft hér áhrif. Á Akranesi var landað rúmlega 19 þúsund tonnum. Þar af var upp- sjávarfiskur 16.540 tonn. Aðeins var landað 969 tonnum af botnfiski, litlu meira en árið áður. Má þessi mikli fyrrverandi útgerðarbær muna sinn fífil fegri. Til samanburðar má nefna að árið 2005 var landað 16.585 tonn- um af botnfiski á Akranesi. Erlend skip lönduðu heldur meiri afla hjá Faxaflóahöfnum í fyrra en árið áður eða rúmlega 16 þúsund tonnum. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Norðurgarður Löndun undirbúin úr hinum nýja togara Engey RE. Heildaraflinn tæp 119 þúsund tonn Fimmtíu ár verða brátt liðin frá sjó- slysunum miklu í Ísafjarðardjúpi í byrjun febrúar 1968, en þá fórust 26 sjómenn af tveimur breskum tog- urum og einum íslenskum vélbáti. Af þessu tilefni verður haldin athöfn um borð í varðskipinu Óðni til minn- ingar um þá sem týndu lífi þennan örlagaríka sólarhring og jafnframt til að minnast þess björgunarafreks sem áhöfnin á Óðni vann. Athöfnin hefst klukkan 16 á mánudag. Sex manna áhöfn Heiðrúnar II frá Bolungarvík var á meðal þeirra sem fórust, auk 19 manna áhafnar breska togarans Ross Cleveland, en einn skipverja togarans, Harry Eddom, bjargaðist við illan leik. Sama dag strandaði breski togarinn Notts County á Snæfjallaströnd, en áhöfn Óðins vann hetjudáð þegar hún bjargaði skipverjum hans. Einn þeirra var þegar látinn er Óðinn komst á slysstað. Fyrir tilstilli áhafnar Óðins, með Sigurð Þ. Árnason skipherra í farar- broddi, varð 18 mannslífum bjargað þennan dag. Minningarathöfnin fer fram í þyrluskýli Óðins og mun sr. Hjálmar Jónsson fara með minningarorð og Michael Nevin, sendiherra Breta á Íslandi, mun jafnframt ávarpa sam- komuna. Í kjölfarið verður boðið upp á kaffiveitingar í messa skipsins, sam- kvæmt upplýsingum frá Sjóminja- safninu. Þar mun Gylfi Geirsson, formaður öldungaráðs Landhelgis- gæslunnar og fyrrverandi starfs- maður hennar, fjalla um björgunar- afrekið sem áhöfn Óðins vann. Óðinn liggur við festar við Sjóminjasafnið í Reykjavík, við Grandagarð 8, og hef- ur tilheyrt safninu síðan 2008. sh@mbl.is Minnast þeirra sem fórust fyrir fimmtíu árum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Súðavíkurhlíð Fjölmargir togarar, íslenskir og breskir, höfðust við í Djúpinu á meðan hamfaraveðrið gekk yfir. Varðskip Óðinn á siglingu. Tveir stýrimenn úr áhöfn skipsins fóru á bát yfir til togarans Notts County. Áhöfn Óðins vann hetjudáð þegar hún bjargaði skipverj- um togarans Notts County. Síðan er liðin hálf öld. Allt um sjávarútveg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.