Morgunblaðið - 01.02.2018, Page 56

Morgunblaðið - 01.02.2018, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018 Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt KAFFE JILLIAN BLAZER St. 34-46 Verð 11.990,- BUXUR St. 34-46 Verð 8.990,- Ný sending Elínrós Líndal elinros@mbl.is Aðspurð hvernig maður viti hvort maður er raunverulega í réttu vinnunni segir hún „Þegar þú sofnar á kvöldin og vaknar á morgnana þá hlakkarðu til að mæta í vinnuna, það er góður mælikvarði á starfið sem þú ert í,“ segir Gunnhildur og bætir við að það sé ekki nóg að hlakka til held- ur þarftu að vita í hjarta þínu að þú hafir skilað af þér góðu verki yfir daginn í vinnunni. „Það er ekki verra ef starfi þínu fylgja ákveðnir mælikvarðar sem mæla afköst og ánægju til dæmis við- skiptavina þinna, því þannig verða verk þín meira lifandi inni í fyrir- tækinu. Það er gefandi fyrir þig sjálfa og gerir þig að betri mann- eskju á hverjum degi.“ Flæði í vinnunni Gunnhildur segir að þú verðir að vera í ákveðnu flæði í vinnunni og það sé alltaf ánægjulegt ef vinnan samræmist áhugasviði fólks. „Starfsfólk sem starfar við það sem það hefur áhuga á, gleymir stað og stund og dagurinn flæðir áfram ánægjulega í þeirra huga.“ Hún lýsir þessu sem átakalitlu og eðlilegu ferli. Aðspurð um ráð til þeirra sem eru að leita sér að vinnu og séu opnir fyrir allskonar valmögu- leikum segir Gunnhildur. „Ef þú ert opinn fyrir mörgu er gott að átta sig á hvað maður vill ekki gera. Sem dæmi ef þú vilt ekki starfa í kringum mikið af fólki áttu ef til vill meira heima í bakenda fyrir- tækis heldur en í framenda þess. Ef þú getur ekki hugsað þér að starfa við tölvu allan daginn, þá er það góð vísbending um hvað þú átt ekki að sækja um tengt vinnu og svo framvegis. Ég tel mikilvægt að við horfumst í augu við það þegar við leitum okkur að vinnu að við erum aldrei gerð fyrir allt, við höf- um öll okkar einstöku hæfileika og það ber að varðveita,“ segir hún. Við eigum okkur margvísleg hlutverk Hvað með þá sem standa á krossgötum, hafa kannski verið látnir fara úr sinni síðustu vinnu. Hvaða ráð áttu til þeirra? „Að mínu mati er varla til sú mann- eskja sem tekur það ekki nærri sér að vera látinn fara úr starfinu sínu, það kemur vanalega öllum að óvörum, ekki síst þeim sem eftir sitja í fyrirtækinu. Í þessu sam- hengi er einnig gott að hafa í huga að breytingar eru miklar á at- vinnumarkaði og þú ert ekki sá eini/sú eina sem ert að upplifa breytingar. Það sem er einnig gott að hafa í huga er sú staðreynd að við sinnum mörgum hlutverkum í þessu lífi. Starfið okkar er eitt hlutverk okkar í lífinu, en svo sannarlega ekki okkar eina. Við erum mörg hver foreldrar, börn foreldra okkar, sinnum félags- störfum og svo eigum við áhuga- mál. Það sem ég mæli því með þegar fólk er á krossgötum tengt vinnu er að fókusera á hin hlut- verkin í lífinu og muna að það er enginn betri til í heiminum til að takast á við breytingar en þú. En rannsóknir hafa sýnt að Íslend- ingar eru heimsmeistarar að þessu leyti, enda höfum við alist upp við breytilegt veðurfar og marga aðra óvissuþætti sem við höfum þurft að aðlagast.“ Gríðarleg tækifæri geta falist í að tapa vinnu og fá nýja Er það ekki áskorun mitt í áfalli að fara bara að hafa gaman og njóta? „Jú heldur betur, en við eigum að líta á þetta sem tæki- færi. Auðvitað förum við í gegnum nokkur stig sem felast í því að lenda í áfalli, sem er afneitunin, þar sem við hugsum: „Ég trúi ekki að þetta sé að koma fyrir mig.“ Síðan kemur reiðin. Þar næst sjálfsásökunin, síðan förum við á stigið þar sem við verðum forvitin og viljum svör Síðan koma vana- lega nýju tækifærin. En ef þú átt- ar þig ekki á þessum þrepum þá getur þú verið að hringsóla í þess- um stigum án þess að komast út úr því og þá missir þú af tækifær- inu til að komast á réttan stað. Þegar þú sérð hins vegar að þú ert komin/inn í bata þá byrjar þú að upplifa aukinn styrk úr þessari reynslu, ásamt því að finna til samkenndar með öðrum sem hafa upplifað það sama og það eru verðmæti fyrir samfélagið í heild sinni.“ En af hverju hafa mannauðs- málin heillað Gunnhildi? „Ég bara elska að sjá fólk vaxa og dafna og veit ekkert skemmtilegra en að að- stoða fólk við að komast í réttar stöður og sjá það vaxa og dafna. Það er á þeim tímapunkti sem fólk hefur innleitt m.a. HR Monitor Það er enginn betri að takast á við breytingar en þú Gunnhildur Arnardóttir framkvæmdastjóri CEO Huxunar þekkir vel til mannauðsmála og hefur um árabil veitt stjórnendum og fyrirtækjum leiðbeiningar þegar kemur að því að auka ánægju starfsmanna, en ásamt því er hún áberandi í starfsmannaráðningum og nýjustu fræðum þegar kemur að atvinnumálum í landinu.  ,,Lífið er hverfult, það er fullt af breytingum, sem láta okk- ur vaxa,“ segir Gunnhildur Arnardóttir. Hér er hún með hundinum sínum Naski sem fór yfir móðuna miklu í fyrra.  SJÁ SÍÐU 58

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.