Morgunblaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 77

Morgunblaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 77
til að vinna að uppbyggingu Norðuráls, var framkvæmdastjóri hjá Norðuráli 1997-2004, var for- stjóri Alcoa-Fjarðaáls og Alcoa á Ís- landi 2004-2011, forstjóri Alcoa í Evrópu og Mið-Austurlöndum með aðsetur í Genf 2012-2014 og er for- stjóri framleiðslu Alcoa á heimsvísu frá 2014, sem spannar námuvinnslu, súrálsframleiðslu, orkuvinnslu, ál- framleiðslu og völsun. „Það var afar skemmtilegt og lærdómsríkt að vinna að uppbygg- ingu Norðuráls. En hjá Alcoa fékk ég einstakt tækifæri til að starfa með frábæru fólki að uppbyggingu Fjarðaáls frá grunni. Hvort tveggja hefur verið frábær lífsreynsla. Frá því ég hóf störf í New York hef ég búið heima og flakkað á milli. En ég nýt þess að eiga frábæra stórfjölskyldu sem heldur utan um þræði þegar ég er á þvælingi vegna vinnu.“ Tómas sat í stjórn Samtaka iðn- aðarins í sex ár, var formaður Við- skiptaráðs í þrjú ár, hefur setið í framkvæmdastjórn Evrópskra ál- framleiðenda, í stjórn Alþjóðlegra álframleiðenda, stjórn Evrópsk- Ameríska viðskiptaráðsins, stjórn Evrópskra málmframleiðenda, í stjórn American-Scandinavian Foundation, auk fjölda nefnda og ráða. Fjölskylda Eiginkona Tómasar var Ólöf Nor- dal, f. 3.12. 1966, d. 8.2. 2017, lög- fræðingur, MBA, alþingismaður, innanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Foreldrar Ólafar: Jóhannes Nordal, f. 11.5. 1924, fyrrv. seðlabankastjóri, og k.h., Dóra Guðjónsdóttir Nordal, f. 28.3. 1928, d. 26.5. 2017, píanóleikari og húsfreyja. Börn Tómasar og Ólafar eru Sig- urður Tómasson, f. 29.11. 1991, hag- fræðingur og háskólanemi; Jóhann- es Tómasson, f. 13.1. 1994, háskóla- nemi; Herdís Tómasdóttir, f. 8.4. 1996, nemi, og Dóra Tómasdóttir, f. 15.9. 2004, nemi. Systur Tómasar eru Kristín Vil- borg Sigurðardóttir, f. 24.5. 1972, myndlistarmaður og kennari á Sel- tjarnarnesi, og Sigríður Björg Sig- urðardóttir, f. 3.5. 1977, myndlistar- maður í Reykjavík. Foreldrar Tómasar: Sigurður Kristján Oddsson, f. 22.1. 1940, d. 22.8. 2009, tæknifræðingur og þjóð- garðsvörður á Þingvöllum, og k.h., Herdís Tómasdóttir, f. 26.5. 1945, textílhönnuður. Tómas Már Sigurðsson María K. V. Cl. Thoroddsen húsfr. í Rvík Sigurður Thoroddsen landsverkfr. og yfirkennari MR Sigríður Thoroddsen húsfr. í Rvík Tómas Jónsson borgarritari og borgarlögm. í Rvík Herdís Tómasdóttir textílhönnuður Kristín Magnúsdóttir húsfr. á Eyvindarstöðum og á Grímstaðah. Jón Tómasson hreppstj. á Eyvindarstöðum á Álftanesi, síðar á Grímsstaðaholti Guðmundur Oddsson fyrrv. yfirlæknir við Borgarspítalann Gunnar Thoroddsen forsætisráðherraÁsgeir Thoroddsen lögmaður Þórður Thoroddsen læknir og alþm.Emil Thoroddsen tónskáld Þorvaldur Thoroddsen náttúrufræðingur Anna Kristín Thoroddsen Kress matreiðsluk. í RvíkHelga Kress prófessor emeritus Margrét Herdís Thoroddsen viðskiptafræðingur María Lovísa Einarsdóttir lyfjafræðingur og kennari Valgard Thoroddsen rafmagnsveitustj. ríkisins Sigurður Hákon Thoroddsen arkitekt Jón Tómasson fyrrv. ríkislögm. og borgarritari Dagur Sigurðarson skáld Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Signý Thoroddsen sálfræðingur í Rvík Sigurður S. Thoroddsen alþm. og verkfr. í Rvík Skúli Thoroddsen ritstj. og alþm. á Ísafirði og í Rvík Oddur Kristjánsson byggingam. á Akureyri Sigríður Grímsdóttir húsfr. í Saurbæ Kristján Friðfinnsson b. í Saurbæ Eyjafirði Úr frændgarði Tómasar Más Sigurðssonar Sigurður Kristján Oddsson tæknifr. og þjóðgarðsvörður á Þingvöllum Vilborg Jónsdóttir húsfr. á Hafursá Guðmundur Andrésson Kjerúlf b. á Sandhaga og Hafursá í Fljótsdal, sonarsonur Jörgens Kjerúlfs læknis á Brekku, Fljótsdal Guðbjörg Guðmundsdóttir Kjerúlf húsfr. á Hafursá og á Akureyri Þorgeir Þorsteinsson lögreglustjóri í Keflavík Sigríður Þorgeirsdóttir prófessor Herdís Þorgeirsdóttir prófessor Þorvarður Kjerúlf fyrrv. sýslum. á Ísafirði Ólína Þorvarðardóttir fyrrv. borgarfulltr.,skólastj. og alþm. Jón Þorsteinsson læknir í Reykjavík Sigríður Þorvarðardóttir húsfr. í Hermes á Búðareyri Þorvarður Kjerúlf Andrésson læknir og alþm. á Ormarsstöðum ÍSLENDINGAR 77 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018 Júlíus Kristján Linnet fæddist íReykjavík 1.2. 1881. Foreldrarhans voru Hans Dithlev Lin- net, bókhaldari í Reykjavík, og Gróa Jónsdóttir, húsfreyja á Akranesi. Hans var sonur Hans Adolph Lin- net, kaupmanns í Hafnarfirði, og Ragnheiðar H. Linnet, f. Seerup, húsfreyju, afkomanda Holgers Jak- obæusar, kaupmanns í Keflavík Joh- anssonar, af dönsku og sænsku kon- ungsættinni, en meðal forfeðra hans voru Caspar Bartholin, einn virtasti vísindamaður 17. aldar og Christ- opher Hansen, borgarstjóri í Kaup- mannahöfn. Foreldrar Gróu voru Jón Guðmundsson, sjómaður í Vallarhúsum í Grindavík, og Guðrún Þórðardóttir húsfreyja. Systir Krist- jáns var Hansína Linnet, móðir Reg- ínu Þórðardóttur leikkonu. Eiginkona Kristjáns var Jóhanna Eyjólfs Ólfía Seymour Júlíusdóttir húsfreyja en börn þeirra voru Hen- rik Adolf héraðslæknir í Bolung- arvík og í Vestmannaeyjum, síðar í Reykjavík; Elísabet Lilja, húsfreyja í Reykjavík; Stefán Karl, loftskeyta- maður í Reykjavík; Hans Ragnar, skrifstofumaður í Ástralíu; Bjarni Eggert Eyjólfur, stöðvarstjóri Pósts og síma í Kópavogi, og Anna Kristín húsfreyja í Reykjavík. Kristján lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1899 og embættisprófi í lögfræði frá Hafnarháskóla 1907. Kristján var yfirréttarmálflutnings- maður í Reykjavík frá 1907 og jafn- framt lögreglustjóri á Siglufirði sumrin 1909 og 1910, settur sýslu- maður í Dalasýslu 1914-15 og í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu 1917- 18, fulltrúi bæjarfógetans í Reykja- vík 1918, skipaður sýslumaður í Skagafjarðarsýslu 1918-24 og bæjarfógeti í Vestmannaeyjum 1924-40. Þá flutti hann til Reykjavík- ur og starfaði við endurskoðun í fjár- málaráðuneytinu til 1948. Kristján orti og samdi skop- greinar undir dulnefninu Ingimar. Auk þess skrifaði hann greinar um dulræn fyrirbrigði í Morgunblaðið. Kristján lést 8.9. 1958. Merkir Íslendingar Kristján Linnet 85 ára Birna Björnsdóttir Gylfi Pálsson Kristján Gissurarson Sigríður R. Þorvaldsdóttir Skúli Geirsson 80 ára Guðrún Jónsdóttir 75 ára Guðbjörn Geirsson Pétur H. Björnsson Ragnheiður Óskarsdóttir Steinunn Þorleif Hauksdóttir Þorsteinn S. Jónsson 70 ára Anton Helgi Antonsson Guðríður Guðjónsdóttir Jonas Algis Ziziunas Valborg Stefánsdóttir Valdís Sveinbjörnsdóttir Þórunn Ólafsdóttir 60 ára Andrzej Ignacy Kobierzynski Bjarney B. Ríkarðsdóttir Brynhildur Birgisdóttir Guðmundur Þorbjörn Björnsson Ófeigur Guðmundsson Ólöf Jóna Þórarinsdóttir Rannveig Raymondsdóttir 50 ára Berghildur Erla Bernharðsdóttir Bryndís Jónsdóttir Eyjólfur Lárusson Guðmundur Áskelsson Jóhann Rúnar Pálsson Khattab Almohammad Tómas Már Sigurðsson Waeota Duangjan 40 ára Ataman Vega Vega Atli Ström Dragoslav Majkic Guðmundur Snorri Sigurðsson Halldór Gíslason Hallgrímur Þormarsson Jón Atli Bjarnason Júlíus Freyr Valgeirsson Kristinn Benediktsson Kristján Geir Þorsteinsson Ragnheiður Arna Höskuldsdóttir Therése Möller Víðir Starri Vilbergsson 30 ára Arnar Þór Sigurðsson Bjarki Ásbjarnarson Brigita Slapsinskiene Donatas Jakeliunas Elfa Berglind Hákonardóttir Elísabet Þórunn Jónsdóttir Gísli Þór Kristjánsson Hafdís Inga Ingvarsdóttir Hildur Sigurðardóttir Hlynur Ólafsson Ívar Guðmundsson Joy Lucky Jóna Björk Jóhannsdóttir Magdalena Joanna Michna Patrycja Katarzyna Rusów Ragnar Bjarni Gröndal Sigrún Buithy Jónsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Ragnar býr í Reykjanesbæ, er Íslands- meistari í rallý og rekur fyrirtækið Vélar og dekk. Maki: Emelía Rut Hólm- arsdóttir, f. 1998, Íslands- meistari í rallý og vinnur hjá Vélum og dekkjum. Dóttir: Emelía Ósk, f. 2010. Foreldrar: Sigríður Sig- urðardóttir, f. 1967, leik- skólakennari, og Bjarni Ragnar Gröndal, f. 1965, bílamálari. Ragnar Bjarni Gröndal 30 ára Ívar ólst upp á Álftanesi, býr í Kópavogi, lauk sveinsprófi í mat- reiðslu frá MK og er kokk- ur á Grillmarkaðnum. Maki: Jónína Klara Pét- ursdóttir, f. 1990, kenn- aranemi. Dætur: Emma Karen, f. 2014, og Kamilla Katrín, f. 2016. Foreldrar: Linda Bald- ursdóttir, f. 1964, og Guð- mundur Meyvantsson, f. 1955. Ívar Guðmundsson 30 ára Hlynur ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk atvinnuflugmannsprófi og er flugmaður hjá Ice- landair. Maki: Elín Ósk Hjartar- dóttir, f. 1990, sem er að ljúka prófi í hjúkr- unarfræði. Börn: Sylvía Ýr, f. 2014, og Theodór Birnir, f. 2017. Foreldrar: Auður Tryggvadóttir, f. 1953, og Ólafur Sævar Sigurgeirs- son, f. 1952, d. 1995. Hlynur Ólafsson VOR 2018 Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.