Morgunblaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 86

Morgunblaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 86
86 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2018 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bíó Paradís og Goethe Institut í Danmörku standa fyrir Þýskum kvikmyndadögum í Bíó Paradís í ní- unda sinn frá og með morgundeg- inum til 11. febrúar, í samstarfi við þýska sendiráðið á Íslandi. Sex kvik- myndir, nýjar eða nýlegar, verða sýndar auk þess sem sérstök partísýning verð- ur á Toni Erd- mann sem sló í gegn á hátíðinni í fyrra. Ein mynda hátíðarinnar, Hördur - Zwisc- hen den Welten, verður eingöngu sýnd einu sinni á sérstakri skólasýn- ingu. Opnunarmynd hátíðarinnar er Aus dem Nichts, eða In the Fade eins og hún heitir á ensku, eftir leik- stjórann Fatih Akin en aðalleikkona myndarinnar, Diane Kruger, hlaut verðlaun í Cannes í fyrra fyrir frammistöðu sína í henni. „Í fyrra vorum við með svolítið stríðsþema og uppgjör Þjóðverja við eftirmál seinni heimsstyrjaldarinnar en í ár erum við með svolítið öðruvísi fókus, við erum að skoða fjölmenn- ingarsamfélagið. Í þessari mynd er Diane Kruger að leika konu sem heitir Katja og er gift manni af músl- ímskum uppruna. Það fer allt í bál og brand og þarna koma við sögu kynþáttafordómar og hið nýja Þýskaland, hvernig fjölmenningar- samfélagið þrífst. Þetta er mjög spennandi mynd sem fer víða,“ segir Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri í Bíó Paradís, um hátíðina í ár og opn- unarmyndina. „Sögurnar sem eru að koma núna frá Þýskalandi eru svolítið að fjalla um hið nýja Þýskaland,“ bætir hún við. Ljúfsárt uppgjör Ása bendir einnig á heimildar- mynd um myndlistarmanninn Jos- eph Beuys sem þyki afbragðsgóð, Wilde Maus sem fjalli um miðaldra, hvítan karlmann í krísu og stofu- dramað In Zeiten des abnehmenden Lichts, eða Á tímum þverrandi ljóss en sú mynd fjallar um fjölskyldu þýskra kommúnista og vísar mikið í Tsékhov, að sögn Ásu. Ólíkar kyn- slóðir mætist þar í ljúfsáru uppgjöri. „Þetta eru alltaf þessar sömu spurn- ingar: hvernig er Þýskaland, hvern- ig aðskildist það í fyrsta lagi og af hverju? Hvernig sjáum við það, hvernig sjá hinir það og hvernig sér bókmenntaarfurinn það? Hvernig er að segja frá þessu því túlkun er allt- af bundin við skilning og skilningur er svo margbreytilegur og fer eftir forsendum, forsendurnar skipta meira máli en sagan sem sögð er.“ Fyrir framhaldsskólanema Eins og sjá má er íslenskt karl- mannsnafn í titli einnar myndar há- tíðarinnar, Hörður, en Hörður er hestur í myndinni og ein af aðal- persónum hennar. Ása segist ekki vita af hverju hesturinn heiti Hörður en líklega sé verið að heiðra íslenska hestinn með nafngiftinni. Í myndinni er rakin saga 17 ára stúlku og músl- íma sem lendir í vandræðum. „Hún þarf að sinna samfélagsþjónustu í hesthúsum á vegum bæjarins og þar hittir hún þennan hest sem heitir Hörður og þetta er hennar yfirsýn yfir sína framtíð og drauma,“ segir Ása. Kvikmyndin er ekki á almennri dagskrá hátíðarinnar heldur sýnd framhaldsskólanemum 5. febrúar kl. 16. Þýskukennarar geta skráð nem- endur á sýninguna og verður mynd- in sýnd með enskum texta. Sósíalistar með sérsýningu Þess má að lokum geta að ein af hátíðarmyndunum er Le jeune Karl Marx, eða Karl Marx ungur sem fjallar um Karl Marx og Friedrich Engels, höfunda Kommúnista- ávarpsins, unga að árum og hvernig hugmyndafræði þeirra þróaðist. Sósíalistaflokkur Íslands og Bíó Paradís munu bjóða til sérstakrar sýningar á myndinni og umræðna fyrir og eftir hana á laugardaginn, 3. febrúar, klukkan 14. Fyrir myndina mun heimspekingurinn Viðar Þor- steinsson minnast Marx og þess er- indis sem kenningar hans eiga við samtímann og eftir sýningu verða opnar umræður með Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR, Birgittu Jónsdóttur, fyrrverandi þingmanni og kapteini Pírata, og Sólveigu Önnu Jónsdóttur, frambjóðanda til for- manns Eflingar. Frekari upplýsingar um hátíðina má finna á bioparadis.is. Í bál og brand Úr opnunarmynd Þýskra kvikmyndadaga, Aus dem Nichts. Fjölmenningarsam- félagið í brennidepli  Þýskir kvik- myndadagar í níunda sinn Ása Bald- ursdóttir Aus dem Nichts Veröld Kötju hrynur þegar eigin- maður hennar og sonur láta lífið í sprengjuárás. Sorgarferlið tekur við en eftir nokkurn tíma fer Katja að hyggja á hefndir. Kvikmyndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra og hlaut aðalleikkona hennar, Diane Kruger, verðlaun sem besta leikkona hátíðarinnar. Myndin hlaut Golden Globe verðlaunin á dögunum í flokki erlendra kvik- mynda. Leikstjóri er Fatih Akin og aðalleikarar eru Diane Kruger, Denis Moschitto og Numan Acar. Wilde Maus Georg missir vinnuna sem tón- listargagnrýnandi á þekktu dag- blaði í Vínarborg. Hann og eigin- kona hans Jóhanna eru að reyna að eignast barn og hann ákveður að leyna hana atvinnumissinum og hefna sín á fyrrum yfirmanni sínum. Dramatísk gamanmynd sem keppti um aðalverðlaunin á kvikmyndahá- tíðinni í Berlín í fyrra. Leikstjóri er Josef Hader og aðalleikarar Georg Friedrich, Josef Hader og Jörg Hart- mann. Beuys Heimildarmynd eftir Andres Veiel um einn áhrifamesta myndlistar- mann 20. aldarinnar, þýska flúxus- listamanninn Joseph Beuys. Myndin keppti um um Gullbjörninn, aðal- verðlaunin á alþjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Berlín í fyrra. Le jeune Karl Marx Kvikmynd um Karl Marx á hans yngri árum, þegar hann bjó í París með eiginkonu sinni Jenny árið 1844, þá 26 ára að aldri og kynni hans af Friedrich Engels. Leikstjóri er Raoul Peck og aðalleikarar Aug- ust Diehl, Stefan Konarske og Vicky Krieps. In Zeiten des abnehmenden Lichts Kvikmynd byggð á hálf-ævisögu- legri skáldsögu Eugen Ruge frá árinu 2011 en í henni fjallar hann um örlög og afdrif fjögurra kyn- slóða austur-þýskrar fjölskyldu. Leikstjóri er Matti Geschonneck og með aðalhlutverk fara Angela Win- kler, Bruno Ganz og Alexander Fehling. Hördur – Zwischen den Welten Hefð er fyrir því að sýna kvik- mynd fyrir framhaldsskóla á Þýsk- um kvikmyndadögum og að þessu sinni er það kvikmynd sem fjallar um Aylin, 17 ára stúlku sem kemst upp á kant við lögin og þarf að sinna samfélagsþjónustu í hesthúsum á vegum bæjarins. Sjálfskoðun og djúp tengsl við hestinn Hörð fleytir henni áfram í að skoða drauma sína og þrár, segir á vef Bíós Paradísar. Leikstjóri er Ekrem Ergün og aðal- leikarar Almila Bagriacik, Hilmi Sö- zer og Felicitas Woll. Toni Erdmann Sérstök partísýning verður hald- in á þessari gamanmynd sem sýnd var á Þýskum kvikmyndadögum í fyrra. Í henni segir af stirðu sam- bandi föður og dóttur, hún er framakona í viðskiptum en hann spaugsamur píanókennari. Kvik- myndin hefur hlotið fjölda verð- launa og mikið lof gagnrýnenda. Partísýningin verður haldin 10. febrúar og þeir sem mæta með hár- kollu fá frían drykk á barnum og frí- miða í Bíó Paradís. Leikstjóri er Maren Ade og með aðalhlutverk fara Peter Simonischek og Sandra Hüller. Hestur að nafni Hörður, Joseph Beuys og Marx KVIKMYNDIRNAR Á ÞÝSKUM KVIKMYNDADÖGUM Örlagasaga Bruno Ganz í In Zeiten des abnehmenden Lichts. Áhrifamikill Joseph Beuys. Tengsl Aylin og Hörður. Í krísu Karl í klípu í Wilde Maus. Marx Úr Le jeune Karl Marx.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.