Morgunblaðið - 03.05.2018, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 03.05.2018, Blaðsíða 63
63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2018 SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki. Dóra Magnúsdóttir dora@mbl.is Á afar blæbrigðaríkum baráttudegi verkalýðsins mælti blaðakona sér mót við Kolbrúnu Kristínu Karls- dóttur, verkefnastjóra vefþróunar hjá rafrænni þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar, og Nínu dóttur hennar. Dagurinn stærir sig af öllum tegundum veðurs; það skiptist á að vera skýjað, logn, rigning, sól, hvasst, snjór og slydda. Svolítið eins og sumar fjölskyldur, endalausar breytingar og fjölbreytni. Íslensk orðabók Menningarsjóðs segir fjöl- skyldu einfaldlega vera „foreldra og börn þeirra“. Vísindavefur HÍ ber þó meira skynbragð á nútímann og seg- ir fyrirbærið fjölskyldu vera „hóp einstaklinga sem á sameiginlegt heimili þar sem þeir deila saman tómstundum, hvíld, tilfinningum, efnahag, ábyrgð og verkefnum. Með- limirnir eru oftast fullorðnar mann- eskjur af báðum kynjum eða ein- staklingur, ásamt barni eða börnum (þeirra). Þau eru skuldbundin hvert öðru í siðferðilegri, gagnkvæmri hollustu“. Kolbrún Kristín og Nína tilheyra minnstu mögulegu fjölskyldueining- unni, sem er eitt foreldri og eitt barn. Hún segir það að tilheyra lítilli fjölskyldu hafa kosti og galla, eins og allt, en hún upplifi ekki að það vanti neinn. Hins vegar fær hún þau skila- boð oft úr umhverfinu að einhverja vanti. Síðastliðið sumar til dæmis fór litla fjölskyldan í sumarfrí suður á bóginn. Þá var gjarna spurt á veit- ingastöðum og víðar: „Hvenær koma hinir?“ eða „eruð þið bara tvær?“ „Já,“ svaraði Kolbrún alltaf, „við erum tvær.“ Hún segist einnig fá þessi viðbrögð hérlendis en þetta hafi verið enn meira áberandi í fríinu á Grikklandi. Duglegar að sækja sér félagsskap Aðspurð hvort þetta pirri hana, að fá þessi skilaboð reglulega að ein- hvern vanti, segir hún svo ekki vera. Sér finnist sjálfri engan vanta og að þær tvær séu fín fjölskylda. „Við sækjum okkur bara aukafólk þegar á þarf að halda. Við erum alveg dug- legar að mæta stundum í kvöldmat hjá öðru fólki til dæmis og heim- sækja fólk ef ég hef þörf fyrir að tala við fleiri en Nínu. Ég fór í bústað ný- lega með vinkonu minni sem er líka einstæð móðir því það er líka nota- legt að hafa einhvern fullorðinn að tala við á kvöldin, deila með reynslu, upplifunum og svona. Í sumar fer ég með annarri vinkonu minni til út- landa sem er nýfráskilin og á eitt barn. Mér finnst bara frábært að hafa þetta val,“ segir Kolbrún. Hins vegar telur Kolbrún að hug- myndin um fjölskyldur mætti ef til vill vera opnari. Þurfa til dæmis fjöl- skyldumeðlimir endilega að búa und- ir sama þaki? Ömmur og afar eru oft miklir þátttakendur í lífi barna sinna og barnabarna. Einnig systkini for- eldranna, sér í lagi ef þau eru sjálf barnlaus. „Við höfum tilhneigingu til að hugsa of ferkantað um það hvað fyrirbærið fjölskylda sé. Við Nína sækjum mikið í okkar nærfjölskyldu, kannski meira en stærri fjölskyldur, af því við erum bara tvær en það fólk er líka hluti af okkur sem fjölskyldu. Bara á annan hátt,“ segir Kolbrún. Hún er afar virk með dóttur sinni í frítíma þeirra mæðgna. Þær fara mikið á alls kyns viðburði fyrir bæði börn og fullorðna, kaffihús, róló og hitt og þetta. Sumu deilir hún á sam- félagsmiðlum og þeir sem þekkja hana þar hafa veitt þessum dugnaði hennar eftirtekt. „Ég vil miklu frek- ar gera eitthvað með henni og skapa góðar minningar en gefa henni marga hluti. Og kannski pósta ég myndum af sumu af því sem við bröllum saman á Instagram til að einmitt deila með fleirum og fá end- urgjöf. Af því við erum bara tvær.“ Langt þungunarferli fékk góðan endi Nína kom ekki fljúgandi í fangið á Kolbrúnu og þess vegna er hún ef til vill enn betur meðvituð en margir foreldrar um hvílíkt kraftaverk hvert barn er og hve tíminn er dýr- mætur með henni. Hún segist hafa verið orðin 33 ára árið 2009 og ekki í sambúð þegar hún ákvað að hún vildi eignast barn upp á eigin spýtur. Hún hóf það ferli hjá Art Medica en þá hafi komið í ljós að hún er ein fjöl- margra kvenna sem þjást af endó- metríósu, einnig kallað legslímu- flakk, sem oft er sársaukafullur sjúk- dómur sem orsakast af því að frumur úr innra lagi legsins finnast á öðrum stöðum í kviðarholinu og fara ekki út úr líkamanum við blæðingar eins og undir venjulegum kringumstæðum. Þessi sjúkdómur getur valdið ófrjó- semi eða verulegum vandkvæðum hjá konum að verða óléttar. Kolbrún segist hafa fundið fyrir einkennum þegar hún var yngri en fann að öðru leyti ekki mikið fyrir þessu ástandi. Til þess hins vegar að geta orðið ólétt varð hún að fara í tvo uppskurði sem hún og gerði. Í fyrstu ætlaði hún að eignast barnið með góðum vini sem var tilbúinn að gefa sæði en leyfa Kolbrúnu að eignast barnið á eigin forsendum. Það gekk hins veg- ar ekki því eftir tvær tilraunir til tæknifrjóvgunar hafði hún ekki orðið ólétt. Hins vegar kynntist hún barnsföður sínum í miðju þessu ferli og hóf samband með honum. Hann var til í að taka þátt í þessu ævintýri með henni og á endanum varð glasa- frjóvgun leiðin til að kalla Nínu í heiminn. Allt ferlið hjá Kolbrúnu að eignast barn tók um fimm ár, og var síbreytilegt eins og veðrið þennan dag sem hún rifjar þessa sögu upp ; oft erfitt og krefjandi en líka mikil birta og sól inn á milli, og ekki erfitt að skilja að Nína er alveg sérstakur gimsteinn í augum móður sinnar. Kolbrún segir að hún hafi verið heppin því fyrsta glasafrjóvgunar- meðferðin hafi gengið vel og hún orðið þunguð. Meðferðin sé erfið og hún ánægð að hafa ekki þurft að fara aftur. Aukið líkindamat á Downs- heilkenni hafi þó valdið henni hugar- angri og hún ákveðið að fara í fylgju- sýnistöku til að fá sem nákvæmastar upplýsingar um stöðuna. „Ég vildi fyrst og fremst vera tilbúin ef hún reyndist vera með Downs-heilkenni en var alveg ákveð- in að ég myndi alltaf halda barninu,“ segir Kolbrún. Sem betur fer reynd- ist allt vera í lagi, sem var að sjálf- sögðu gríðarlegur léttir, loksins þeg- ar Kolbrúnu hafði tekist að verða ólétt, en þessi staða, að hægt sé að rannsaka nákvæmlega hvort Downs- heilkennið fyrirfinnist og aðra þætti í sambandi við fóstrið, finnst Kol- brúnu umhugsunarverð. „Hvað ef einhvern tíma verður til dæmis hægt að skima fyrir einhverfu, viljum við það?“ Hún segir að eftir þessa reynslu finnist henni mikilvægt að dæma enga konu út frá þeim ákvörð- unum sem hún tekur varðandi eigin meðgöngu. Aðstæður fólks séu afar ólíkar og virða beri val kvenna. Dagurinn í dag er núna Mæðgurnar eru tvær í dag en hlutirnir geta vissulega breyst, rétt eins og veðrið. Kolbrún segist vera opin fyrir sambandi og sambúð ef rétti maðurinn kemur í leitirnar og því gæti fjöldi fjölskyldumeðlima breyst í framtíðinni. Ef það gerist er ólíklegt að þjónar á veitingastöðum suður í höfum spyrji hvort þau séu bara þrjú, það er nokkuð ljóst. Kannski og kannski ekki, kemur í ljós og skiptir ekki öllu máli. Dag- urinn í dag er núna og þær mæðgur eru á leiðinni í kröfugöngu í slydd- unni, sem reyndar breyttist í sólskin fáeinum mínútum síðar. „Já, við erum bara tvær“ Kolbrún Kristín og Nína tilheyra minnstu mögu- legu fjölskyldueining- unni, sem er eitt foreldri og eitt barn. Hún segir það að tilheyra lítilli fjöl- skyldu hafa kosti og galla, eins og allt, en hún upplifi ekki að það vanti neinn. Morgunblaðið/Hari Lítil fjölskylda Kolbrún Kristín og kraftaverkabarnið Nína eru duglegar að gera eitthvað saman og skapa minningar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.