Skírnir - 01.09.2017, Page 264
menn sem í því sitja hafa um áraraðir átt í nánu samstarfi við
Stofnun Sigurðar Nordal og Árnastofnun, og hefur Úlfar Bragason
rannsóknarprófessor og forstöðumaður reynst íslenskufræðing-
unum mikill haukur í horni.
Fyrstu skiptinemarnir
Susumu Okazaki sem stundaði nám í íslensku við Háskóla Íslands
seinni hluta árs 1958 er líklega fyrsti Japaninn sem kom til náms-
dvalar á Íslandi. Skömmu síðar, veturinn 1961–1962, stundaði Sadao
Morita, þá aðstoðarprófessor í ensku við Waseda-háskóla í Tókýó,
nám við Háskóla Íslands.52 Jarðfræðingurinn prófessor Tatsuro
Asai dvaldi í 50 daga við jarðfræðirannsóknir á Íslandi, líklega árið
1964. Séra Miyako Þórðarson (áður Kashima) er að öllum líkindum
fyrsti Japaninn sem lauk háskólagráðu á Íslandi, en hún útskrifaðist
frá guðfræðideild Háskóla Íslands árið 1978. Haustið 1963 hélt
Júlíus Sólnes, þá nýútskrifaður verkfræðingur frá Danmörku, í
framhaldsnám til Tókýó þar sem boðið var upp á ársnámskeið í
jarðskjálftafræðum. Í viðtali við Júlíus kom fram, að honum væri
ekki kunnugt um að íslenskir námsmenn hefðu dvalið í Japan á
undan honum. Allt bendir því til að Júlíus sé fyrsti Japansmenntaði
Íslendingurinn.53 Hann náði að ferðast víða um landið og lét vel af
dvöl sinni.54 Á árunum 1969–1972 stundaði Haukur J. Gunnarsson
nám við Waseda-háskólann í Tókýó, fyrst í japönsku og síðan í leik-
húsfræðum eins og áður er nefnt.
Það segir meira en mörg orð um mátt menningarinnar að Oka-
zaki kom til Íslands eftir að hafa lesið Sjálfstætt fólk á japönsku og
Haukur helgaði starfsferil sinn japönsku leikhúsi eftir að hafa séð
japanska danssýningu í Þjóðleikhúsinu. Okazaki og Morita áttu eftir
528 kristín ingvarsdóttir skírnir
rannsóknum í íslenskum fræðum og sama ár voru lög félagsins birt. Félagið heitir
á japönsku Nihon-Aisurando Kenky kai. Nánar má lesa um stofnun félagsins og
fyrsta félagsritið í ritdómi eftir Magnús Pétursson (1984: 208–209).
52 Sjá viðtal við Morita í Lesbók Morgunblaðsins („Um hálfan hnöttinn …“ 1962).
53 Viðtal við Júlíus Sólnes, ágúst 2017.
54 Sjá viðtöl við Júlíus eftir heimkomuna, m.a. í Vísi („Við hættum okkur ekki út
um helgar“ 1964) og Morgunblaðinu („Spjallað við Júlíus Sólnes…“ 1965).
Skírnir HAUST 2017 (13.10.2017).qxp_Layout 1 20.10.2017 13:46 Page 528