Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Page 90

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Page 90
A u ð u r S t y r k á r s d ó t t i r 90 TMM 2018 · 2 kolli þar til velflestir pottverjar voru farnir að standa upp á ákveðnum tíma- punkti og teygja úr sér. Dóri, sem þá var ungur gutti að eigin sögn, byrjaði að bæta í teygjurnar og svo fann hann upp á kallinu: „Kominn tími!“ Smám saman þróuðust þessar mjúku teygjur yfir í grjótharðar Müllersæfingar. Skjöldinn á veggnum lét hópurinn gera á 20 ára afmæli æfinganna. Þórbergur Þórðarson rithöfundur gerði Müllersæfingar frægar, kannski að endemum. Filmubúturinn, sem sýnir hann kviknakinn einhvern tíma á sjöunda áratugnum í fjörunni úti á Eiðsgranda, teygjandi kríthvíta skanka sína út í loftið, varð ekki til þess að auka hróður æfinganna meðal almenn- ings. Hinir sjálfsöruggu láta sér hins vegar almenningsálitið í léttu rúmi liggja og Müllersæfingar hafa nú verið stundaðar á barmi Vesturbæjarlaugar vel á fjórða áratug klukkan 7:30–7:40. Að vísu fer hér enginn úr fötunum, eins og höfundur æfinganna, hinn danski leikfimikennari Jens Peter Müller, ætlaðist til, enda bannað að bera sig í laugarbörmum borgarinnar. Foringinn sveiflar höndunum til beggja hliða. „Nú er það sveiflan ógurlega!“ „Gylfi er að takast á loft!“ hrópar einhver. Gylfi hefur stundað æfingar svo lengi sem elstu menn muna og er ætíð fyrstur upp úr pottinum og byrjar að sveifla sínum löngu og grönnu handleggjum nokkuð á undan okkur hinum. „Og horfa upp í heiðskíran!“ Rödd Foringjans er hvell en jafnframt undur þýð. Sannkölluð foringja rödd. Henni getum við ekki annað en hlýtt. Við teygjum armana upp til himins, fyrst þann hægri og síðan þann vinstri. Einn, tveir, þrír, fjórir, fimm – og skipta – sex, sjö, átta, níu oooog tíu! „Þá er það flata, gjörsamlega niður í stein! Og ekki beygja hnén!“ er næsta skipun Foringjans. Einhver hrópar í aumingjalegum tón: „Þetta hefur lengst!“ Foringinn þrumar á móti: „Nei! Þetta er nákvæmlega jafn langt og í gær!“ Við leggjum lófana í jörðu, eða a.m.k. fingurbroddana, og höldum hnjánum beinum. Þetta tekur í svona snemma morguns. Ég þarf tvær til þrjár atrennur áður en lófarnir ná flatir niður á steypuna. „Og þá skellum við okkur beint til Jennýjar!“ „Sem er væntanleg 7. júní!“ hrópar Kolla með sinni langdrægu rödd. Ef hún er ekki mætt, af einhverjum ástæðum, tekur Flosi þessa setningu. Hann á þá næstu: „Er það með Dreamliner?” „Nei! Það er með nýju Max vélinni!“ þrumar Foringinn. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti, stundaði Müllersæfingarnar um árabil. Eitt sinn hafði hún með sér konu sem var í heimsókn hjá henni. Það var umrædd Jenný. Hún þótti viðræðugóð og henni fannst sundferðin og kynnin af sundfélögum Vigdísar með því eftirminnilegasta sem fyrir hana bar í Íslandsferðinni. Þetta tjáði hún Vigdísi sem færði Vinum Dóra umsögnina við góðar undirtektir. Á facebooksíðu Vina Dóra er mynd af þeim í lauginni, Vigdísi og Jennýju, og geisla báðar af gleði og hreysti. Þá var
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.