Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Side 92
A u ð u r S t y r k á r s d ó t t i r
92 TMM 2018 · 2
að bömpa í Hollívúdd með Karonsamtökunum! Í gulldressinu! Og Vigdís
var forseti!“
Það fer ánægjukliður um hópinn á bakkanum.
„Jaaaaháa,“ stynur einhver og annar tekur undir: „Og Vigdís var forseti!“
„Og nú reynir svakalega mikið á!“ gellur í Foringjanum og við leggjumst á
magann á stéttina og gerum armbeygjur meðan Foringinn telur í.
„Ha, er Reynir mættur!“ hrópar einhver á hverjum morgni.
„Nei, Reynir er kominn og farinn!“ tilkynnir Foringinn.
Reynir er einn þeirra sem mætir í laugina á hverjum morgni um leið og
opnað er kl. 6:30. Þessi hópur gengur undir nafninu Húnarnir því þeir hanga
á hurðarhúninum þegar starfsfólkið opnar. Hinir elstu af Vinum Dóra eru
komnir í Húnahópinn; þangað stefna fleiri á næstu árum. Reyni er alltaf
boðið í jólafrúkost Vina Dóra sem haldin er á Kaffivagninum úti á Granda
eftir æfingar þriðja föstudag í desember. Þar þenur hann nikkuna sína við
þróttmikinn söng sundfélaganna. Vigdís mætir og fleiri gamlir vinir.
„Og beint í Müllerinn! En ekki miða á prestinn!“ Foringinn stillir sér
upp eins og hann sé að spenna ímyndaðan boga. Við gerum slíkt hið sama.
„Prest urinn er farinn!“ hrópar einhver. „Nei, nei, hann er farinn og kominn!“
hrópar annar á móti um leið og við skjótum af bogunum út í loftið. Prestur-
inn birtist alklæddur í dyrunum með nokkur kaffimál í hendi.
Séra Ólafur er alvöru prestur. Sumarið áður gaf hann saman Kristjönu og
Bob á laugarbakkanum. Við þekktum Kristjönu en Bob hafði ekkert okkar
séð áður. Við vorum auðvitað öll í sundfötum. Kristjana var í bikini og hafði
nokkur blóm í hárinu og Bob var á sundskýlu með pípuhatt á höfði. Müll-
ersmenn fluttu þrjá stutta ritningarlestra og við sungum öll saman tvö lög,
„Bjartar vonir vakna“ eftir Árna úr Eyjum við lag Oddgeirs Kristjánssonar og
„Litla flugan“ eftir Sigurð Elíasson við lag Sigfúsar Halldórssonar. Reynir lék
ameríska brúðarvalsinn á nikkuna, „Here comes the bride.“ Það var óvenju
kalt í veðri þennan júlímorgun, aðeins 4,6 stig samkvæmt mælinum. Napur
norðanvindur blés en sólin skein. Það kann að hafa átt sinn þátt í því að víða
hrutu tár af hvörmum. Brúðhjónin viknuðu bæði og buðu öllum kaffi og
kökur á eftir.
„Hrönn!“ þrumar nú Foringinn. „Byrja!“
Við lyftum öðrum fæti beinum aftur fyrir okkur, teygjum handleggi út til
hliðanna og höllum okkur fram, eins og við séum að fljúga.
Hrönn syngur hressilegri, hljómmikilli röddu:
„Nú fegurð og hógværð og fimi má sjá!“
Við tökum öll undir:
„Hífið allir sem einn!
Hrönn heldur áfram:
„Er Foringinn kemur með flotann á stjá!“
Við botnum:
„Hífið nú bræður allir sem einn!“