Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Page 131

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Page 131
U m s a g n i r u m b æ k u r TMM 2018 · 2 131 greinis) tekið móður sína í sátt þrátt fyrir höfnun hennar en bróðir hennar Gústi hefur ekki gert það og vill ekkert af fyrir hugaðri listsýningu vita. Kamilla er aftur á móti öll af vilja gerð að aðstoða við uppsetningu sýningarinnar. Í því skyni heldur hún í ferðalag til vestur- strandar Bandaríkjanna þar sem hún kynnist syni fyrrverandi elskhuga móður sinnar, háskólakennaranum William (Bill), sem varðveitir muni úr dánarbúi föður síns, meðal annars nokkur lista- verk Sirríar, auk bréfa hennar til elskhug- ans sem skrifuð voru á tólf ára tímabili, frá 1973 til 1982. Í gegnum það bréfasafn kynnist Kamilla móður sinni betur og kemst að ýmsu sem rótar upp í tilfinn- ingalífi hennar og í ljós kemur að kannski hefur hún ekki unnið eins vel úr fortíðinni og hún vill vera láta. Listakonan og skilyrði hennar Íslenskar skáldkonur hafa skrifað um sköpunarþrána og árekstur hennar við skylduna í sögum og ljóðum allt frá því þær hófu penna á loft, jafnvel mætti tala um þessa togstreitu sem eitt helsta þema kvennabókmennta.1 Í íslenskri kvenna- bókmenntasögu má sjá að framan af þótti varla annað koma til greina en að bæla sköpunarþrána, að fórna sér fyrir heimili og börn var heilagasta skylda allra kvenna og fórnina átti að færa af gleði og heilum hug. Þegar íslenskar konur höfðu sent frá sér bækur (þótt fáar væru) í um hálfa öld (á þriðja og fjórða áratug tuttugustu aldar) fóru að koma brestir í þessa mynd; fórnin varð æ erfiðari og leiddi jafnvel til harma og ógæfu. Af eldri íslenskum skáldsögum sem glíma við þennan árekstur listiðk- unar og kvenhlutverks á áhugaverðan hátt má til dæmis nefna Dísu Mjöll, þætti úr lífi listakonu (1953) eftir Þór- unni Elfu Magnúsdóttur og Villibirtu (1969) eftir Unni Eiríksdóttur. Báðar endurspegla þessar skáldsögur vel sam- tíma sinn og þann vanda sem konur með listdrauma áttu við að etja. Einnig eru heimspekilegar pælingar gildur þáttur þeirra og í Villibirtu má líka sjá athyglisverðar formtilraunir. Í Dísu Mjöll segir á einum stað: „Kona er þó alltaf kona, hvaða hæfileikum, sem hún kann að vera búin, og hún verður að lifa lífi sínu í samræmi við siðvenjur síns þjóðfélags, sinnar stöðu í þjóðfélaginu“ (187) og jafnframt: Í okkar samfélagi er alloftast örðugt að vera listamaður, þó enn örðugara að vera listakona, til konunnar eru gerðar grimmdarlegar kröfur, hún á að afneita einstaklingseðli sínu, bæla niður hæfi- leika sína og þrár, hvenær sem það er talið bezt henta umhverfi hennar. Hve- nær er eftirspurn eftir afburðakonum? Ef þær koma fram, er það nær undan- tekningarlaust í illvígu þrássi við allt. Þær fíngerðustu og næmlyndustu eru bornar ofurliði af skilningsleysi, ruddaskap og úlfúð grófgerðrar manntegundar, sem er svo sorglega algeng. (229) Við fyrstu sýn virðist sem Sirrí velji list- ina fram yfir börnin sín án verulegra efasemda um að það sé hið eina rétta í stöðunni, en þegar nánar er að gáð kemur þó annað í ljós. Í gömlu blaðavið- tali segir hún til að mynda: „Á tímabili hélt ég að listsköpunin væri forsendan fyrir lífskraftinum og hamingjunni, en það er ekki svo einfalt. Maður er líka að lepja dauðann úr skel og kveljast á barmi helvítis þótt maður skapi og skapi og telji sér trú um að öðlast með því hamingju.“ (49) Þótt hún viðurkenni að hafa í „sinni einföldustu og yfirborðslegustu mynd“ fórnað fjölskyldulífinu fyrir listina þá bætir hún við að það sé „samt aldrei hægt að snúa baki við upprunanum og því sem maður skilur eftir sig. Það hang- ir á eftir manni í löngu bandi og maður
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.