Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Side 113

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2004, Side 113
Þjóðlegt flóð? lega minnugir á þá pústra sem hann veitti sjálfur. En í Borgum og eyði- mörkum er semsagt íjallað um nokkra daga í lífi Kristmanns meðan á frægum réttarhöldum við Thor Vilhjálmsson stóð árið 1964. Sagan er ekki eindregið varnarrit fyrir Kristmann eins og ætla mætti. Og hún er að því leyti ólík Höfundi íslands að hið menningarsögulega samhengi verður smám saman það sem vekur minnstan áhuga manns. Öllu áhugaverðari er persónusköpunin í sögunni. Sá Kristmann sem þar birtist er bitur og ósveigjanlegur og blindur á eigin galla. Líkt og í öðrum verkum Sigurjóns verður þó algert íroníuleysi til þess að gera söguna þrúgandi og eintóna. Umræðan sem reynt var að starta í kjölfarið þar sem heimtað var að Thor Vilhjálmsson stæði fyrir máli sínu og tæki þátt í einhverju uppgjöri fannst mér alveg út í hött. Hún var eins og eftirlíking af eftirlíkingu, til- raun til að endurtaka lítið breytta þá arfavitlausu og leiðinlegu umræðu sem spratt af Höfundi íslands. Og þá komum við að Hallgrími Helgasyni. Hallgrímur hefur aldrei endurtekið sig nema að einu leyti, allar skáldsögur hans, að þeirri fyrstu, Hellu, undantekinni, eiga það sameiginlegt að þær hafa stuðning af eldra bókmenntaformi sem er teygt, togað og skrumskælt á ýmsan hátt. Þessi leikur við hefðina er svo notaður til að varpa ljósi á samtímann, hvort sem það er ástandið í þeim andapolli sem kallaður er íslenskt menningar- líf, tilvistarkrísa samtímamannsins í heimi tómra tákna eða arfur sveita- menningarinnar í menningar- og bókmenntasögu tuttugustu aldar. Herra Alheimur er auðvitað byggður á svolítið svipaðri formúlu þar sem í hóp fyrirmyndanna Swifts, Shakespeares og Halldórs Laxness bætist ameríska bíómyndin í öllu sínu veldi. Það klikkar ekkert í skopstæling- unni frekar en fyrri daginn. Bestu sprettirnir í bókinni eru þegar verið er að byggja upp heim himnaríkis þar sem sagan gerist að stórum hluta, skipa í hlutverk og raða sálum saman í framhaldslífinu. En ég verð að viðurkenna að ég sé ekki hvaða erindi allt þetta á við okkur. Það þarf ekki lengur að sanna að Hallgrímur Helgason getur gert um það bil það sem honum dettur í hug á ritvellinum og því miður finnst mér þessi bók ekki sýna mér neitt annað. Það að Guð sé ekki dauður heldur bara svolítið þreyttur er ekki sérlega merkt framlag til umræðu um stöðu trúar- bragðanna og viðbrögð Guðs við nýjungum í erfðafræði varpa litlu ljósi á vandamál sem fylgja vísinda- og tæknihyggju nútímans. Það er áberandi hversu fáar skáldsögur komu út effir konur síðasta ár. Ég þekki svo sem engar skýringar á því nema þá sem ég vona að sé rétt, semsagt að íslenskar bókmenntir eru litlar og það þarf ekki stórar sveifl- ur til að meiriháttar ójafnvægi komi í ljós. Ef þetta er rétt fáum við vænt- anlega fjölda spennandi bóka eftir konur á næsta ári. TMM 2004 ■ 1 111
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.