Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Qupperneq 72
Júlían Meldon D’Arcy og Guðmundur Sæmundsson
Eru Norðurlöndin og ísland úti á kantinum?
Samnorrænn sögu- og bókmenntaarfur er einkar ríkur af þemum,
minnum, einstökum persónulýsingum og atburðum sem gefa tilefni til
íþróttabókmenntafræðilegra vangaveltna. Noregskonungasögur, íslend-
inga sögur, samtímasögur eins og Sturlunga saga og loks hinar ævintýra-
legu Fornaldarsögur Norðurlanda eru rannsóknarvettvangur sem fræði-
menn á þessu sviði geta ausið af næstu árin. Nokkur rit hafa verið til-
einkuð íþróttum fornmanna, vopnaburði og hetjuskap, t.d. bókin íþróttir
fornmanna á Norðurlöndum eftir Björn Bjarnason (Björn Bjarnason
1908). Hún var skrifuð á dönsku sem doktorsritgerð, en síðan þýdd og
umrituð yfir á íslensku. Bókin var endurútgefin árið 1950, óbreytt. Hún
er í rauninni eina yfirlitsverkið um íþróttir og vopnaburð norrænna
fornmanna sem ritað hefur verið til þessa. Nokkrar ritgerðir og greinar
hafa einnig verið skrifaðar um fornnorrænar íþróttabókmenntir (t.d.
Martin 2002 og Meinander 2000). Þá skrifaði Þorsteinn Einarsson
íþróttafulltrúi stutt yfirlit yfir sögu íþrótta, þar sem örlítið er minnst á
íþróttir fornmanna en mest fjallað um íþróttir á 19. og 20. öld (Þorsteinn
Einarsson 1977). íslendingar hafa því í rauninni staðið sig ágætlega varð-
andi fræðilega umfjöllun um íþróttir í bókmenntum.
Nýrri norrænar bókmenntir snerta að sjálfsögðu oft efni sem tengjast
íþróttum og íþróttaiðkun. Gott dæmi um það er bókin Fótboltaengillinn
(Fodboldenglen) effir danska höfundinn Hans-Jorgen Nielsen (1981,
1983). Rannsóknir og fræðimennska eru þó skammt á veg komnar á
þessu sviði, rétt eins og annars staðar í Evrópu. Þó væri ósanngjarnt að
nefna ekki þá umræðu sem einmitt Fótboltaengillinn hefur leitt af sér,
m.a. í íslensku tímariti (Jorgensen 1983), en þó aðallega á dönskum vett-
vangi eins og skiljanlegt er (Nielsen 1980, Mogensen 1981, Kyndrup
1983, Kuntze 1985, Braad 1990, Moller 2001, Stjernfelt 2001, Barfod
2001, Örum 2001). Einnig er rétt að nefna nýlega danska bók, Fodbold:
Forfattere om Fœnomenet, sem út kom árið 2002 (Christiansen og Stjern-
felt 2002).
Norrænt seminar í Árósum 16. og 17. janúar 2004, Norrœnar bók-
menntir um íþróttir og líkamsmennt — þverfagleg sjónarhorn, var mjög
merkur áfangi í að mynda samstarfsgrundvöll til frekari rannsókna og
umfjöllunar um norrænar íþróttabókmenntir. Þar kom það einna helst
fram um norrænar íþróttabókmenntir sem fræðigrein að þær eru á væn-
legum byrjunarreit meðal bókmenntafræðinga, en hins vegar virðast
fjölmiðlafræðingar og blaðamenn, auk félagsfræðinga, sálfræðinga o.fl.,
hafa fjallað talsvert mikið um hlutverk íþrótta í fjölmiðlatextum, ævi-
70
TMM 2004 ■ 3