Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 82

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Page 82
ÁRNI BERGMANN spítalanum sem skoðaður er og fylgir gestinum um allt og „svarar sjálfur öllum spurningum, sem þú spyrð ekki, til þess að komast hjá því að upplýsa þig um það sem þú vilt fá að vita... Enginn mun neita þér um neitt en þér verður fylgt um allt og kurteisin verður að aðferð til að hafa eftirlit með gestinum.“10 Með öðrum orðum: de Custine greinir hér frá aðferðum „sendinefndakerfisins“ sem fullkomnaðar voru á dögum Stal- íns: mönnum er sýnt allt mögulegt - en það er í gangi hugvitsamlegt kerfi yfirmáta gestrisni, sem kemur í veg fyrir að eitthvað óþægilegt fyrir ríkið og herra þess beri fýrir eyru eða augu. Óskaland píslarvotta frelsisins Rússland hið mikla og dularfulla gat orðið heimkynni vona evrópskra mónarkista um innilegt tilfinningasamband keisara (eða kónga) og þegna. En þegar á líður nítjándu öldina verður þetta „fangelsi þjóðanna“ í vitund óþolinmóðra róttækra gáfumanna Vesturlanda að hinu fyrir- heitna landi í þeim skilningi, að þeir gera Rússland að heimkynni pólit- ísks hetjuskapar og píslarvættis. Hér er landið þar sem hugrakkir sam- særismenn, sem lifa fýrir frelsis- og byltingarhugsjónina eina, leggja allt undir í baráttu við harðstjórnina og hreppa í staðinn dauðadóma eða þrælkun í Síbiríu. Rússland er þá sett upp sem andstæða við dauflegt pólitískt hjakk á Vesturlöndum og leiðinlegan smáborgaramóral, við það er fest byltingarómantík sem var að nokkru leyti undirbúningur þeirrar trúar á Sovétríkin sem síðar reið húsum. í þessari lotu Rússlandstrúar komu margir við sögu, til dæmis fagur- kerinn Oscar Wilde. Hann skrifaði árið 1885 leikritið Vera or the Nihilists þar sem teflt er saman heilögu ofstæki byltingarsinna og gjörspilltri harð- stjórn og allt getur gerst: bæði keisaramorð og svo það, að sjálfur ríkisarf- inn reynist vera einn af níhilistunum! Eftirtektarverðara er það, að annar helsti kenningasmiður marxism- ans, Friedrich Engels, lætur í fróðlegu bréfi til rússneskrar byltingarkonu árið 1885 í ljós vonir um að næsta stórbylting í Evrópu verði einmitt í Rússlandi. Þetta mat er nokkuð á skjön við þá meginhugmynd Marx sjálfs, að byltingar sé helst von þar sem verkalýðsstéttin sé fjölmenn og vel skipulögð í helstu iðnríkjum Evrópu. í bréfi þessu byggir Engels ein- mitt á þeirri sérstöðu Rússlands, að þar sé afar mótsagnakennt samfélag, bæði frumstætt og nútímalegt, sem haldið sé saman af harðstjórn sem með óbærilegu framferði sínu sé að magna upp gegn sér allskonar bylt- ingaröfl - nú þurfi, segir Engels, ekki annað en „hrinda skriðunni af stað“ til að bylting hefjist í slíku landi.11 80 TMM 2004 • 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.