Heimsmynd - 01.08.1994, Blaðsíða 6
Margir halda að
^pabm sé bróðir minn
Hvemig er að vera 15 ára, búiirn að leika
stórt hlutverk í kvikmynd, starfa í ung-
lingavinnunni, vera á leið í 10. bekk Æf-
ingadeildar Kennaraháskólans og eiga
einn helsta rokkara íslands fyrir föður?
Qrri Helgason svarar því.
Um Bíódaga
„Það var ofsalega gaman að leika í Bíó-
dögum. Fólkið sem vann að myndinni
var skemmtilegt og góður andi yfir öllu.
Ég hef áður leikið í Þjóðleikhúsinu og
Borgarleikhúsinu og það er miklu erfið-
ara en í bíómynd. Þó maður klúðri ein-
hverju við kvikmyndatökur er það ekki
einhver dauðadómur því það er hægt að
taka atriðið aftur.“
Um unglingavinnuna
„Unglingavinnan er ömurleg. Hjá mér
gengur hún út á það að reyta arfa á
Miklatúni og halda garðinum hreinum.“
Um skólann
„Mér finnst hundleiðinlegt í skólanum
en iíklega eru aiiir skólar hundleiðinleg-
ir, að minnsta kosti til lengii tíma. Ég fer
samt örugglega í menntaskóla eftir sam-
ræmdu prófin. Stúdentspróf er nauðsyn-
legt til að komast inn í Leiklistarskól-
ann.“
Um leiklistina
, JVIér finnst gaman að leika og það getur
vel verið að ég geri það í framtíðinni. Ég
er samt rosalega óákveðinn í sambandi
við framtíðina. En leiklistin er eitt af
stóru áhugamálunum, önnur eru að
hanga með vinum mínum og fótbolti."
Um tónlist
„í augnablikinu lít ég á pabba sem
söngvara því hann hefur ekki leikið á
sviði frekar lengi, þótt hann sé lærður
leikari. Tónlistin sem hann og hljóm-
sveitin eru að gera finnst mér vera allt í
lagi, SSSÓL er svona skást af þessum
rokkhljómsveitum sem eru í gangi á Is-
landi. Og miðað við hljómsveit eins og
Vini vors og blóma, sem geta svæft mig á
nokkrum mínútum, er SSSÓL mjög góð.
Ég er alæta á tónlist en hlusta aðallega á
rapp, fönk og danstónlist en líka á Pearl
Jam og þess konar tónlist.
Um það að vera sonur
Helga Bjöms
Pabbi er kannski frekar frægur á Is-
landi. Ég sé að fólk horfir svolítið á hann
þegar við löbbum saman á götu. Margir
halda að hann sé bróðir minn því við er-
um svipaðir á hæð og náttúrulega iíkir í
útliti. Það er ofboðslega mikið hringt í
pabba og á kvöldin verðum við að skrúfa
niður í símanum til að fá frið. Stundum
hringir fólk heim klukkan fjögur á næt-
umar sem þekkir hann ekki neitt, en vill
endilega bjóða honum í partý.
Heima er hann auðvitað bara pabbi og
þótt hann þurfi oft að vera fjarverandi þá
myndi ég samt ekki vilja hafa hann í
venjulegri níu til fimm vinnu. Það ætti
alls ekki við hann.
Sambandið milli okkar er fínt og við
skemmtum okkur vel þegar við gerum
eitthvað saman."
Um íraintíðina
„Ég efast stórlega um að ég eigi eftir að
fara í lögfræði í Háskólanum. í augna-
blikinu tel ég leiklistina vera líklegasta
framtíðarmöguleikann." /JVG
Án filmu og
framköllunar
Myndavél sem þaifnast ekki filmu er uppfinn-
ing sem fair bjuggust við að væri nothæf. I maí
á þessu ári setti tölvufyrirtækið Apple- Macint-
osh myndavél, sem ber nafnið Apple Quick-
Take, á maikað og er með henni hægt að taka
hágæða litmyndir og geyma í allt að eitt ár.
Þaðan eru myndimar fluttar yfir í Macintosh-
tölvu og birtast þær á skjánum í yfir 16,7 millj-
ónum lita. Töluverður áhugi virðist vera fyrir
vélinni en til að byrja með em líklegir notend-
ur tiyggingarfélög og festeignasalar.
Apple QuickTake er einungis byrjunarskref
nýrrar kynslóðar staffænna myndavéla og á ef-
laust eftir að bæta ffekar við geymsluminni og
upplausn hennar. Eins og er rúmar minni
hennar 32 myndir ívenjulegri upplausn eða 8
myndir í hágæða upplausn. Verðið er kannski
ekki eins og í Bónus en viðráðanlegt eða
85.025 krónur staðgreitt. Atvinnuljósmyndar-
ar munu þó að öllum líkindum enn um sinn
halda sig við gamaldags aðferðir eins og hand-
virkar myndavélar og filmur./JVG
*
Nú eiga
fseturnir að
njóta sín
Fætur og fótabúnaður em áhersluauiði í tísku
vetrarins. Og ekki bara á einn máta. I fyrsta
lagi eru upphá stígvél það sem nota skal og
nokkuð sem var áberandi á vetrarsýningum
allra helstu tískuhönnuða í ár. I öðm lagi er
það staðreynd að háhælaðir kvenlegir og að
marga mati kynþokkafyllstu skómir em mætt-
ir á svæðið aftur og spáð langlífi. Þriðja áhersl-
an á fæturnar í vetrartískunni eru svo háu
sokkamir sem ná upp á mið læri. Tími fegurra
fódeggja er sem sé mnninn upp.
6) ágúst - september / Heimsmynd