Heimsmynd - 01.08.1994, Blaðsíða 35
og er 1554 metra hátL Þverártindsegg stendur
við hringveginn og rétt austan Jökulsárlóns.
Þar stingstKálfafellsdalur inn í mikið hálendi
og gnæfir Þverártindsegg yfir hann vestan-
megin. Þverártindsegg er hæsta fjallið við
Kálfafellsdal og ef frá eru taldir Öræfajökull
og EyjafjalJajökull er það hæsta fjall Suður-
lands. Þetta fjall er lítið þekkt en ofboðslega
fallegt.
Þegar rnaður sér Þverártindsegg tilsýndar úr
Kálfafellsdal lítur það út eins og stór og núkill
tindur í Ölpunum. Við myndum fara á fjallið
úr þessum dal. Þaðan liggur leiðin yfir mjög
úfinn skriðjökul og síðan upp ísfláa sem er
óskaplega bröttjökulbrekka austanmegin í
fjallinu. Fram úr fjallinu fellur rnikilljrikuJfoss
og fyrir ofan jöJtulinn eru Jóðréttir hamrar. I
gegnum hamrana skerast nokkrar ísrásir og
myndum við velja oldkur einhveija þeirra til að
komast upp á fjallstoppinn. Frá botni Kálfa-
fellsdals tekur ferðin upp á toppinn aldrei
styttri tima en 10 -15 klukkusúmdir því þetta
fjall er nærri því tvöfallt hærra en Esjan. Fjöll-
in sem eru nær þjóðveginum eru svo há að
maður sér aldrei almennilega fiá þjóðvegin-
um inn á Þverártindsegg fyrir þeim. Það er því
nauðsynlegt að fara inn í Kálfafellsdal til að sjá
fjallið í heild sinni. Inn í dalinn liggur hins
vegar enginn vegur en hægt er að komast
þangað með því að ganga eða bröltayfir stór-
grýti og árkvíslar á mjög stórfættum jeppa.“
FERÐAFÖGGUR:
Alstífir skór með mannbroddum
Tvær ísaxir
Lína
Skrúfur
Sigbelti til að binda línuna í
Allur annar ísklifurbúnaður
Álpoki
Benedikt Eyjólfsson
Bílabúö Benna
Setrið fyrir fjölskylduna
„Fjölskylduferðin mín yrði farin í Setrið
sem er skáli Ferðaklúbbsins 4x4 upp við Hofs-
jökul, við Kisubotna.
Þegar þangað er farið er keyrt upp Biskups-
tungur, að Gullfossi og Geysi, norður Kjöl
upp Bláfellsás og þaðan fram hjá Hvítámesi.
Þaðan er síðan afleggjarinn farinn inn að
Kerlingarijöllum, norður fyrir Loðmund og
austur milli Hofsjökuls og Kerlingarfjalla.
Loks er farið meðfram Hlahrauni og þá komið
í Setrið við Kisubotna. Setrið er einn besti skál-
inn á fjöllum og hefúr hann gistirými fyrir 60 -
80 manns. Hann er 240 fermetra stór og hit-
aður með rafmagni.
Það eru margir athyglisverðir staðir nálægt
skálanum og má þar nefna Þjórsárver rétt
austan hans. Þjórsárver er friðland og eitt
stærsta Heiðargæsavarp í heimi. Utsýnið frá
Kisubomum er mjög fallegt og þaðan séstyfir
á Hofsjökul og Kerlingatfjöll.
Ég mundi dvelja í Setrinu í einn til tvo daga
með fjölskylduna. A þessum árstíma myndum
við örugglega hitta annað jeppafólk þar og
sonum mínum finnst óskaplega gaman að
koma í Setrið því þar hitta þeir alltaf krakka
sem þeir þekkja og geta leikið sér við. Tíman-
um yrði svo eytt í afslöppun og jafnvel göngu-
túra upp að Hofsjökli.
„Við færum ekki sömu leið heim heldur
myndum við keyra austur að Þjórsá, leið sem
kölluð er Gljúfurleit. Þá leið færum við að
ánni Kisu, en hún getur verið mjög varasöm
fyrir illa búna bíla. Þaðan færum við niður
með Þjórsá að Dalsá og svo tiltölulega greiða
leið að Búrfellsvirkjun. Ef veður er gott væri
tilvalið að stoppa við Stöng og þeir sem hefðu
áhuga gætu gengið þaðan upp að verulega
fallegum fossi sem nefnist Háifoss, en að hon-
um er ekki bílfærL"
FERÐAFÖGGUR:
Sæmilega útbúinn jeppi
Skófla
Tóg
Vöðlur
Helstu verkfæri
Fjarskipti (mjög mikilvægt að láta vita
hvert ferðinni er heitið því ár geta vaxið
mikið á stuttum tíma og veður breyst)
Skjólfatnaður
Matur
„Með vinum mínum færi ég í öllu ruddalegri
ferð. Hún yrði mun erfiðari en þó myndi ég
nú alveg treysta mér til þess að fara með fjöl-
skylduna í hana. En vinahópurinn færi á
Grímsfjall á Vatnajökli. Yfirleitt fer fólk upp á
Vatnajökul við Jökulheima en vegna fram-
hlaups Síðujökuls og hreyfmga Túnáijökuls
er jökullinn ófær þá leið. Við færum því upp
að Sigöldu, norður Sprengisandsleið að Nýja-
dal. í góðu veðri er fallegt útsýni þaðan til
þriggja, jafnvel fjögutTajökla. Frá Nýjadal fær-
um við austur Gæsavatnsleið og gistum í
Gæsavötnum. Úr Gæsavötnum færum við
slóð inn aðjöklinum við Gæsahnjúk. Þaðan
lægi leiðin á Vatnajökul suð - austur með
Bárðarbungu og austur fyrir Grímsvötn á
Grímsljall. A Grímsfjalli er skálijöklarann-
sóknafélags Islands og þar myndum við gista,
því betri skáli á íslenskumjökli finnst ekki. I
honum er heitt vam, gufubað, klósett og hús-
ið er hitað upp með gufti. Grímsvöm em ein
stærsta og virkasta eldstöð landsins. Útsýnið,
náttúrufegurðin og íshellar sem myndast þar
vegna jarðhita eru með því stórkostlegasta
sem maður sér á Islandi. Skáli Jöklarann-
sóknafélagsins stendur á gígbarmi, 50 metra
frá honum er 300 mett-a hár klettur beint nið-
ur. Þetta er mjög hættulegt svæði og því verð-
ur að fara varlega þar.
Frá þessum skála yrði haldið niður í Grims-
vöúi og að morgni þriðja dagsins farið suð -
austur eftir Vatnajökli, í átt að Öræfajökli og á
Snæbreið. Snæbreið er 2040 metra há og í
góðu skyggni sér maður Hvannadalshnjúk,
fjöllin inn á Skaftafelli, Mýrdalsjökul, Síðujök-
ul og allt sem kemur austur úr Vatnajökli.
Þessi sjón er ólýsanlega fögur.
Loks yrði sama leið farin til baka, um það bil
tólf kílómetra að Hermannaskarði. Suður fyr-
ir Mávabyggðir við Esjufjöll en þar er annar
skálijöklarannsóknafélagsins. Niður Breiða-
merkuijökul að Jökulsárlóni og þá værum við
komnir niður á Þjóðveg 1.
FER0AFÖGGUR:
Mönnum er alls ekki ráðlagt að fara
á jökla nema með vönum eða kunn-
ugum mönnum
Vel útbúinn jeppi er skilyrði
Leiðsögutæki í fleirum en einum bfl:
GTS, Lóran, áttavitar osfr.
Góð kort
Nægar eldsneytisbirgðir
Mikið af góðum mat
Dráttartóg
Stuðaratjakkur
Verkfæri
Skóflur
Dekkjaviðgerðarsett
Spil er æskilegt á a.m.k. einn bíl
Fjarskiptaútbúnaður; farsími, Gufu-
nes og CP-talstöð á milli bíla
Góður fatnaður
Góðirskór
Alvöru svefnpokar
Jöklagleraugu
Sólaráburður
Heimsmynd / ágúst - september (35