Heimsmynd - 01.08.1994, Blaðsíða 93
Etdhúsdagbókin
Holl ráð
• Best er að stílla ísskápiim á
mesta kulda einni klukku-
stimd áður en ís, sem þið eruð
að laga, er settur í frystihólfið.
Þegar ísinn hefur frosið má
breyta stillingunni aftur í
fyrrahorf.
• Vatnsbaðið má ekki vera of
heitt þegar búðingur er bak-
aðm. Þá myndast bólur í hon-
um.
• Þegar hlaupi er hvolft úr
formi, er hentugt að væta fatið
sem hvolft er á. Þá er auðvelt
að færa hiaupið til ef það lend-
ir ekki á fatinu miðju.
• Ef myljaþarf kexer ágætt
að láta það í glæran eldhús-
poka og loka honum vel. Síð-
an er kökukefli notað til að
mylja með. Þannig fer ekkert
tilspillis.
• Rétt er að fara sér hægt þeg-
ar möndlur eru glóðaðar.
Glóðið þær við meðalhita og
snúið þeim oft. Ef hitinn er of
mikiU brúnast möndlumar of
mikið á jöðrum og af þeim
kemui' beiskt bragö.
• Úr meðalstórri sítrónu fást
um þrjár matskeiðar af safa
en úr vænni appelsínu að jafn-
aði fimm matskeiöar af safa.
• Með því að mylja nokkrar
marengskökur út í rjóma fáið
þið fyrirtaks meðlæti með
ábætisréttum. Makkarónu-
kökur er einnig hægt að nota
ásamahátt.
• Búið aldrei til kalda ábætis-
rétti í heitu eldhúsi.
Spurt og svarað
Við matreiðslu kvikna ótal spurn-
ingar, það þekkja allir bæði
lærðir og leikir. IVIatar- og vín-
klúbbur AB býður klúbbfélögum
upp á ráðgjafarþjónustu varðandi
mat og drykk. Sigurður L. Hall
matreiðslumeistari og ritstjóri
klúbbsins mun svara spurningum
um matreiðslu, EinarThoroddsen
læknir og áhugamaður um vín
leggur til fróðleik um vín og
Steinunn Ingimundardóttir hús-
stjórnarkennari svarar spurning-
um sem tengjast húsráðum. Við
hvetjum klúbbfélagatil að skrifa
okkur, utanáskriftin er: Matar-
og vínklúbbur AB, Nýbýlavegi 16,
200 Kópavogi.
Bjöm Guðmundsson skrif-
ar og spyr hvort hægt sé
að grilla lax í ofni með
góðum árangri?
Sigurður svarar: Auðvitað
er hægt að griila lax í ofni
sem hefur gott grill. En það
er ekki það sama og að
grilla á útigriUi, því þá er
laxinn settur ofan á glóðirn-
ar. Hitinn á glóðunum er
mjög mikill þannig að lax-
inn eldast hratt og safinn
helst vel í honum. Þegar lax
er grillaður í ofni þarf að at-
huga að grilla hann ekki of
lengi því þá þornar hann.
Best er að hafa hann frekar
neðarlega, því ef hann er
nálægt griliinu kemur grill-
húðin í gegn löngu áður en
laxinn er bakaður. Það þarf
að gæta þess að fylgjast vel
með þegar grillað er í ofni
því auðveldlega getur
kviknað í.
Sigríður Jónsdóttir spyr
hvaða rauðvín eigi að „de-
kantera" og hvernig sé
best að gera það.
Einar svarar: Að „dekant-
era“ vín er að hella víninu í
karöftu ýmist til að viðra
það eða til að greina það frá
botnfalh sem sest oft í göm-
ul og vönduð rauðvín. Það
fer þannig fram að víninu
er heht ofan af grugginu en
horft í gegnum flöskustút-
inn á ljós, ýmist kerta- eða
rafmagnsljós, og heht þang-
að til gruggið kemur fram í
stútinn. Þá er nóg komið og
gruggið situr eftir í flösk-
unni en vínið er hreint í
karöflunni.
MömmU
uppskriftin
Steiktar saltfiskbollur
800 g saltfiskur, flakaður og hein-
hreinsaður
1laukur
legg
3 msk. hveiti
2 msk. kartöflumjöl
örl. mjólk
salt og pipar
1. Hakkið saltfiskinn,
brytjið laukinn smátt og
hrærið saman í stórri skál.
2. Blandið egginu saman
við og síðan hveiti, kart-
öflimijöh og kryddi.
3. Hrærið vel saman og
þjmnið aðeins með mjólk
ef þurfa þykir.
4. Mótið litlar bohur og
steikið á pönnu upp úr
blöndu af ólívuolíu og
smjöri. Bohurnar eiga að
veróa vel brúnar án þess
að brenna og steikingar-
húðin stökk.
5. Gott er að bera með boh-
unum nýjar soðnar kart-
öfl.m' og smjör eða kalda
sósu úr hreinu jógúrti og
smátt skornum agúrkum.
Sælkerinn / Heimsmynd - ágúst / september (93