Heimsmynd - 01.08.1994, Blaðsíða 74
ælkerinn
Sælkerinn
tímarit um mat, vín og lífsstíL,
5. tbl. 2. árg. júní 1994.
Útgefandi
Matar- og vúildúbburima/Heimsmjmd
Nýbýlavegi 14^16,200 Kópavogi.
Ritstjóri og' ábyrgðarmadur
SLgurður L. HaH.
Blaöamaöui'
Sigríður Pétursdóttir.
Ljósmyndir Kristján Maack,Friðrik
Friðriksson og Svenni.
Umbrot Jökull Tómasson.
Prentun Prentsmiðjan Oddi hf.
Agætu klúbbfélagar. Um Leið og við
gefum út í annað sinn Sæikerann sem
blaðauka í nýrri og breyttri Heims-
mynd, viljum við nota tækifærið og
þakka góðar og umfram allt jákvæðar
undirtektir félaga í Matar- og vín-
klúbbnum og Lesenda almennt. Það
mælist vel fyrir að fjalla um mat, veit-
ingahús, uppskriftir og annað sem
fylgir þessa vinsæia áhugamáli og líf-
sstíl, sem matur og matargerð er.
Matur er menning og er þessi menn-
ing frekar ung hér á Landi. Þó er þessi
skemmtilega matarmenning grósku-
mikil og ört vaxandi. ísland er iíka
fyrst og fremst matarframleiðsiuland
og einnig hefur straumur erlendra
ferðamanna aukist hingað undanfarin
ár. Þetta setur pressu á okkur íslend-
inga að standa okkur í stykkinu. Við
verðum að fylgjast með, halda áfram
að framleiða framúrskarandi hráefni
og matreiða úr því úrvals rétti. Mark-
mið okkar í Matar- og vínklúbbnum er
að efla þekkingu allra þeirra sem hafa
þetta áhugamál og þann LífsstíL að
kunna að njóta þess að borða vel gerð-
an mat og drekka góð vín. Við kynn-
um veitingahús, birtum uppskriftir og
fjöllum um strauma og stefnur í mat-
argerð. Það borgar sig að vera félagi í
klúbbnum, því það býður uppá margs-
konar afslátt og tilboð sem félagar ein-
ir njóta. Með aukinni þekkingu, þros-
ka og áhuga á matargerð getum við
íslendingar stoltir framleitt bestu
hrávönma og framreitt fínan mat,
sem vekur aðdárui allra á gæðum
landsins.
Siguröur L. Hall,
matreiðslumeistari.
I
Matar -og vínklúbburinn kynnir
ereiitf.
Vandað, klassískt og alltaf gott
Hótel Saga var opnuð
fyrir rúmlega 30 ár-
um. Það má segja
að þá hafi verið
brotið blað í íslenskri hótel- og
veiúngasögu. Hótel Saga varð þá
fyrsta hótel okkar Islendinga sem
náði alþjóðlegum hótelstaðli. A
þessum tíma var Reykjavík stórt
þorp, staðsett í fallegu landi
lengst úti í Atlantshafi. Að vísu
voru þá ýmis smáhótel og gistihús
í Reykjavík og úti á landi, sem
höfðu á sér vandaðan hótelstimp-
il, en náðu samt aldrei þessum al-
þjóðlega hótelstandard sem við
Islendingar vildum státa af. Að
vísu áttum við m.a. Hótel Borg,
Hótel Kea, Naustið og síðast en
ekki síst Gullfoss, sem þá bauð
upp á einhverjar mesm lúxusveit-
ingar - í siglingum - sem mögu-
leiki var á að fá á þeim tíma. Fag-
menn marga áttum við góða. Því
er helst að þakka að margir af
þeim störfuðu og höfðu starfað á
Gullfossi og í Danmörku og
höfðu öðlast sína þekkingu það-
an. Var þessi danska fagmennska
hátt skrifuð á jreim tíma.
Þegar Hótel Saga var opnuð
1963 voru því aldrei vandkvæði
að manna hótelið af metnaðar-
fullum fagmönnum á öllum
þeim sviðum sem við koma hótel-
faginu. I dag getum við sagt að
þeir menn sem þar fylltu stöður
maheiðslumeistara, framreiðslu-
meistara og veitingasþóra séu
guðfeður íslenskrar veitingahúsa-
mennsku. Þessi undirstaðaogfl-
ló-sófía er það sem gerir Hótel
Sögu klassíska í dag. Þar er fag-
mennskan í fyrirúmi. Ur þessu
verður vandað hótel á heims-
mælikvarða og er Hótel Saga tal-
in með betri hótelum í heimin-
umídag.
Grillið — lúxusveitinga-
staður á efstu hæð
A áttundu hæð á Hótel Sögu er
Grillið eins og það er nefnt í dag-
legu tali. Reyndar hét þessi staður
Stjömusalur og vom allar skreyt-
ingar þar inni tengdar stjörnu-
merkjum. Þegar veitingastaður-
inn var opnaður á sínum tíma var
það í fyrsta sinn sem gestirnir
gátu fylgst með matreiðslunni og
kokkunum í gegnum opið eld-
húsið sem var staðsett í einu
homi salarins. Þetta var skemmti-
leg upplifun og nýjung fyrir mat-
argesti, að sjá kokkana matreiða
og steikja á fullri ferð ofan í þétt-
setínn salinn. Þama var matreitt
og steikt á stóm pönnu og bakað
í opnum ofnum undir grilli. Þetta
varð til þess að fólk byrjaði að
nefna staðinn „Grillið" og smátt
og smátt týndist Stjömusalsnafnið
þó að stjörnumerkin séu enn á
sínum stað. Það hefur ávallt verið
metnaður Hótel Sögu að Grillið
yrði í ffemstu línu veitingastaða á
Islandi. Það hefur gengið eftir
með úrvals starfskröftum. Fyrir
u.þ.b. 20 árum kom til starfa
franski matreiðslumeistarinn
Francis Louis Fons. Hélt hann
um stjórnvölin í Grillinu í fjölda
ára. Hann hafði gífurleg áhrif á
alla matargerð á Islandi á þeim
74) Sælkerinn / Heimsmynd - ágúst / september