Heimsmynd - 01.08.1994, Blaðsíða 8
Kanntu að kaupa tölvu?
Haustið er tími tölvukaupa, að minnsta kosti
þegar kemur að heimilistölvum og tölvum fyr-
ir fólk í námi. Skilyrðin sem slíkar tölvur þurfa
að uppfylla eru að bjóða upp á vinnslu með
þokkaleg ritvinnslufomt, töflureikna, heimilis-
bókhaldsforrit og oftar en ekki er álíka mikil
áhersla lögð á að tölvurnar ráði við almenn
leikjaforrit. Tölvur sem flokkast undir heimil-
is/námsmannatölvur eru yfirleitt 486-PC-véfar
eða Macintosh tölvur af LC-III gerð eða LC-
475. Þessar tölvur eru yfirleitt á verðbilinu 100 -
130 þúsund krónur og upp úr. Þá er að sjálf-
sögðu um borðtölvur að ræða, en með sílækk-
andi verði hafa fartölvur orðið algengari sem
vinnutæki námsmanna í ffamhaldsskólum og
Háskólanum. Má þar nefna fartölvur eins og
t.d. Laser LT421 SCL fartölvuna sem er PC- vél
og Macintosh Powerbook 150, en báðar kosta
nú um 130 þúsund krónur. En algengastar
eru borðtölvumar og áður en lagt er út í kaup
á slíkum vélum er ekki úr vegi að rifja upp
hvað táknar hvað í tölvunni og til hvers það er.
Orgjörvinn: Orgjörvinn er hjarta tölvunnar og
heili. I svonefndum PC-samhæfðum eða bara
PC-tölvum er örgjörvinn yfirleitt af Intel-gerð,
eða sambærilegur. Orgjörvi í Macintosh-tölv-
tmi er allt öðmvísi og almennt er ekki hægt að
nota PC-forrit á Macintosh-tölvum og öfugt.
Núorðið er algengasti örgjörvinn svonefndur
486-örgjörvi. Eldri gerð er 386, sem er nánast
horfin af markaðnum. Nýrri tölvur eru með
svonefiida Fimmu, eða Pentium-örgjörva, sem
er öflugasti örgjörvi sem fáanlegur er í dag fyrir
PC tölvur og dýr eftir því. Ohætt er að mæla
með tölvum með 486-örgjörvum, enda ráða
þeir við alla venjulega notkun og þá má fá af
ýmsum gerðum og með ýmissi tiftíðni.
Tiftíðni: Tiftíðnin ræður vinnsluhraða örgjörv-
ans, þ.e. hvað hann vinnur hratt. Tiftíðnin er
mæld í milljónum sveifla á sekúndu, MHz, eða
MegaHerz. Algengir örgjörvar eru til að
mynda 25 MHz, sem er prýðis hraði fyrir alla
venjulega vinnslu, svo sem ritvinnslu og flesta
Ieiki. Þegar leikimir fara að verða viðameiri og
önnur forrit öflugri, borgar sig að fá sér hrað-
virkari örgjörva, til að rnynda 33 MHz, eða 66
MHz. (Þess má geta að á næstu mánuðum
kemur á markað 100 MHz 486- örgjörvi.
Enn annað sem gæta þarf að með örgjörvann
er hvort hann er svokallaður 486Sx eða bara
486.486Sx-örgjörvarnir eru ekki eins öflugir
og hinir. Það kemur sjaldnast að sök, en held-
ur er talið betra, upp á framtíðarútgáfur af
Windows forritum a.m.k., að kaupa ekki
486Sx-örgjörva
Minni: Innra minni tölvunnar, RAM, eryfir-
leitt mælt í milljónum bæta, Mb, í dag og segja
má að tvö Mb sé algjört lágmark fýrir tölvu.
Sumir vilja reyndar meina að fjögur Mb séu
lágmarkið, en reglan er að því fleiri sem Mb-in
eru í innra minni, þeim mun betur vinnur
tölvan að vissu marki. Hvert Mb er tiltölulega
ódýrt og ef hægt er að stækka minnið á móð-
urborði má kaupa viðbót síðar.
Harður diskur: Margur vilja rugla saman innra
minni, RAM og svonefndum hörðum disk.
Segja má að ef innra minnið sé spjaldskráin,
þá er harði diskurinn sjálfur slyalaskápurinn
þar sem allt er geymt; stýrikerfi, forrit, gögn og
fleira. I árdaga þótti rosalegt að hafa 20 Mb
harðan disk, en nú borgar sig varla að kaupa
sér tölvu með minni hörðum disk en 100 Mb
eðajafnvel með 200 Mb, eða þar um bil. Eftir
því sem fonit hafa orðið fullkomnari og þægi-
legri í notkun, hafa þau stækkað og stækkað.
Þannig þarf vel yfir 10 Mb fyrir Windows not-
endaskilin, sem eru á öllum PC tölvum nú til
dags, og ef bæta á við ritvinnsluforriti, til að
mynda Word eða WordPerfect, er annað eins
eða meira farið. Þegar svo er bætt inn á tölv-
una leikjum eða gagnagrunni, til að mynda
Excel, er diskur fljótur að fyllasL
Aukahlutir: Hveni tölvu fylgir vitanlega disk-
lingadrif og allajafnan er það drif svonefnt
31/2“ drif með litlum disklingum sem eru í
hörðu plasthylki. Þeir leysa af 51/4“ diskana,
sem voru sveigjanlegir og ekki eins öruggir.
Geymslurými á litlu disklingunum er líka
meira, eða 1,44 Mb.
Sumum tölvum fylgir I/ka svonefnt geisladrif,
eða CD ROM-drif. Það er fýrir sérstaka geisla-
diska sem geyma forrit eða ýmis gögn. Einnig
er hægt að leika venjulega geisladiska í drifinu
og þá hlusta á tónlist í heyrnartól, eða í hátal-
ara ef tölvan er með innbyggt hljóðkort. CD
ROM-drif og -diskar eiga eftir að skipta gríðar-
lega miklu máli í framtíðinni, þó ekki haft út-
breiðsla þeirra orðið eins ör og margur spáði
fýrir ári eða svo. Segja má því að slíkt drif sé
ekki bráðnauðsynlegt, en á eftir að verða það.
Annað sem margar tölvur eru með núorðið
eru hljóðkort, en það er sérstakt spjald sem sett
er í tölvuna og gefur möguleika á fýrsta flokks
hljómgæðum, þannig að nota má tölvuna sem
hljóðfæri, þ.e. semja lög á henni með þar til
gerðurn forritum og leika þau beint eða inn á
segulband. Helsti kostur hljóðkortanna í aug-
um ungmenna er þó að þau gæða alla leiki
nýrri vídd og gera þá raunverulegri. Strangt til
tekið er hljóðkort ónauðsynlegt og þar sem
það er tiltölulega ódýrt má kaupa það síðar.
Með ofangreind atriði í huga er ljóst að það
sem skiptir máli að vita við kaup á heimil-
is/námsmannatölvu eru eftirtalin atriði:
Minni (lágmark 2 MB, helst 4 Mb)
Örgjörvi (lágmark 486Sx 25 MHz)
Harður diskur (lágmark 100 Mb)
Hugbúnaður (lágmark DOS 6.x og Windows
3.x, mús fýlgi)
LASER UltraSlimline Í486SX borötölva frá Heimil-
istækjum meö 213 Mb höröum disk, 2 Mb minni
14“ lággeisla litaskjá, D0S, Windows, lyklaborði og
mús, kostar 119.900 krónur.
Aðal skólatölvan hjá EJS þessa dagana er DAEW00
D2600R PC-vél meö 4 Mb vinnsluminni, 14“ lita-
skjá, 170 mb disk, D0S, Windows og mús. Hún kost-
ar kr. 113.000.
MACINTOSH LC 475 er helsta heimilis- og náms-
mannatölvan frá Apple núna. Hún kostar með 4 Mb
skjáminni, 80 Mb innra minni, 14“ litaskjá, lykla-
borði og mús kr. 129.000
8j ágúst - september / Heimsmynd