Heimsmynd - 01.08.1994, Blaðsíða 18
/?
rigningarkvöldi í maí 1986
sat ungt par í Reykjavík og
velti fyrir sér hvort borgaði
sig að halda áfram vísitölub-
aslinu í borginni eða breyta
tíl og flytja út á land. Hana hafði lengi langað
tíl þess síðamefnda en hann var tregur í taumi
enda borinn og barnfæddur Reykvíkingur.
Atta ámm síðar reka Páll ÞórJónsson og
Dóra Vilhelmsdóttir blómlega ferðaþjón-
ustu á Húsavík. Þau eiga og starfrækja gisti-
heimilið Arból og 52% af Hótel Húsavík er í
þeirra eign og Björns Hólmgeirssonar um-
boðsmanns Flugleiða á Húsavík. Páll Þór hef-
ur verið hótelsgóri frá sl. október og Dóra sér
um Arból. Þau em í góðu samstarfi við sviss-
neska ferðaskrifstofu, Saga Reisen og hafa
bætt sjóferðum á Skjálfandaflóa við hefð-
bundnar skoðunarferðir að Mývami, Dettifosi
ogjökulsárgljúfmm. En ævintýrið átti sér tölu-
verðan aðdraganda, eins og Sigríður Pét-
ursdóttir komst að.
„Daginn eftír að \4ð Dóra ákváðum að kanna
möguleika á að flytja út á land nefndi ég það
við vinnufélaga mína í Teppalandi og þótt
ótrúlegt megi virðast leið ekki nema tæpur sól-
arhringur þar til mér bauðst staða sem deild-
arstóri byggingavömdeildar Kaupfélags Þing-
eyinga“ segir Páll. „Hvorugt okkar hafði til
Húsavíkur komið en eftír eina heimsókn leist
okkur svo vel á staðinn að við ákváðum að slá
til. Ijúlí 1986 fluttum við norður og í fyrstu
leigðum við íbúð, ég vann hjá Kaupfélaginu
og Dóra kenndi við Gagnfræðaskóla Húsavík-
ur. Vorið 1989 vomm við orðin þreytt á óör-
ygginu sem fylgir því að búa í leiguhúsnæði og
byijuðum að líta í kringum okkur eftir hús-
næði. Sú leit endaði með því að við keyptum
neðri hæð hússins sem nú er heimili okkar og
gistiheimilið Arból. Þá var húsið í daglegu tali
kallað „sýslumannshúsið" vegna þess aðjúlíus
Hafstein sýslumaður bjó þar lengi. Húsið var
byggt árið 1903 og var starfrækt sem hótel tíl
1920 að minnsta kosti. Þess vegna barst það
oft í tal hve tilvalið væri að koma þar upp gistí-
aðstöðu, húsið hreinlega bauð upp á það.
Þegar við keyptum neðri hæðina töldu margir
okkur ansi bjartsýn því húsið var í mikilli nið-
urníðslu. Það fóru ófáar vinnustundir í að
endurnýja húsnæðið og við það nutum við
dyggrar aðstoðar bræðra Dóm en einu iðnað-
armennirnir sem við fengum vom rafvirkjar
og pípulagningamenn,“ segir Páll og brosir.
Að sögn Dóm og Páls vom þau ekki ein um
18) ágúst - september / Heimsmynd
Páll Þór og Dóra meö börnunum, Vilhelm Gauta,
Hákoni og Auði Guðbjörgu.