Heimsmynd - 01.08.1994, Blaðsíða 43
jaki. Það er ekki hægt að leikstýra nema mað-
ur hafi fyrirlitningu á kvikmyndavélinni, ljós-
unum ogleikunmum.“
Stemberg ædaði sér að gera Marlene Dietiich
að alheimsstjömu. Hann setti hana í megrun,
og kenndi henni að klæða sig, hreyfa sig og
ganga. Hann kenndi henni allt um leyndar-
dóma kvikmyndalistarinnar, klippingu, sjón-
arhom og áhrif ljóss og skugga. Dietrich sagði
að hún hefði aldrei orðið neitt án Stembergs
og sjálfúr sagðist hann hafa skapað hana.
í Bláa englinum sýndi Dietiich hina fögru fót-
leggi sína og söng lagið sem fýlgdi henni alla
ævi, Falling in love again. Myndin tryggði Diet-
rich samning við bandaríska kvikmyndafyrir-
tækið Paramount. Einungis nokkrum klukku-
stundum eftir frumsýningu myndarinnar í
Berlín kvaddi hún eiginmann og dóttur og
hélt af stað sjóleiðis tíl Bandaríkjanna ásamt
Sternberg. Á sjóleiðinni til Bandaríkjanna
kynntist hún bandarískum hjónum og laðað-
ist að eiginkonunni. Bauð henni í klefa sinn
þar sem hún sýndi henni bók um ástarsiði
lesbía og horfði síðan spyrjandi á eiginkon-
una. Eiginkonan sýndi myndunum og Diet-
rich lítinn áhuga og Dietrich sagði: „I Evrópu
skiptir ekki máli hvort um karlmann eða konu
er að ræða. Við fömm í rúmið með þeim sem
okkur geðjast að.“
í Hollywwod hélt Dietrich áfram hinu ftjáls-
lega lífemi og fór á fjörur við nokkrar leikkon-
ur. Hin kornunga Ann Miller hafnaði boði
um að gerast ástkona hennar. Það gerði einn-
ig eina konan sem Clark Gable elskaði um æw
ina, Carole Lombard. Það er hins vegar sagt
Meö tveimur elskhugum sínum,
Maurice Chevalier og Gary Cooper.
að franskættaða leikkonan Claudette Colbert
hefði átt í stuttu en ástríðufullu sambandi við
Dietiich. Enska leikkonan Elisabeth Allen átti
það einnig og þær Dietrich mættu saman á
grímuball og héldust í hendur mestallan tím-
ann. Sternberg reyndi síst að fela lesbískar
hvatir stjörnu sinnar. í þeim myndum sem
hann gerði með Dietrich í Bandaríkjunum
komu fýrir atriði þar sem hann sýndi hana
klædda karlmannsfötum. Sá fatastíll Dietiich
varð að tískuæði í Bandatikjunum og Evrópu.
Þegar stjaman var spurð hvers vegna hún kysi
þennan klæðnað brostí hún sakleysislega og
sagði þetta þægilegustu fötin að klæðast. Þeim
sem þótti sú skýring ekki sannfærandi höfðu á
orði að Dietrich væri best klæddi karlmaður-
inn í Hollywood.
En hvernig sem hún klæddist þótti hún ein
glæsilegasta kvenstjarna í Hollywood. Og
maðurinn sem hafði gert hana að stjörnu
fylgdist með henni vökulum augum.
Enginn var í vafa um að samband Dietrich og
Sternbergs var óvenju náið. Sternberg sagði
að hún væri greindasta kona sem hann hefði
kynnst og sú umhyggjusamasta. Hann sagði
að hann gæti fengið hana til að gera hvað sem
er nema hætta að elska hann. Hún sagði að
hann væri maðurinn sem hún vildi helst
þóknast. Ýmsir veltu því fýrir sér hvort hún
hefði þoknast honurn í svefnherberginu, aðrir
sögðu það af og frá, sambandið hefði einungis
verið andlegs eðlis. En eiginkona Stembergs
var þess fullviss að eiginmaður hennar hefði
sótt eitthvað meira en andlega næringu tíl Di-
etrich og sótti loks um skilnað og sagði blaða-
mönnum að Dietrich hefði eyðilagt hjóna-
band sitt. „Hvaða kona sem er sent lækkar
röddina og skotrar augunum getur fengið á
sig þá ímynd að vera dularfull. Ég gæti það
sjálf ef ég legði mig eftir því,“ tilkynnti hún
þeim.
Stemberg var áhrifamesti maðurinn í líf Diet-
rich á 4. áramgnum og saman gerður þau sjö
kvikmyndir. Eftir það hvarf hann að mestu úr
„Sternberg reyndi síst að
fela lesbískar hvatir
w
stjörnu sinnar. I þeim
myndunum komu fyrir
atriði með Dietrich í karl-
mannsfötum og fatastíllinn
varð að tískuæði“
lffi hennar. En Stemberg var ekki eini elskug-
inn á fyrstu Hollywoodárunum, þótt hann
væri sá mikilvægasti. Gaiy Cooper lék á móti
Dietrich í fýrstu Hollywoodmyndinni,
Morocco, og varð elskhugi hennar við litla
hrifiúngu kærusm sinnar, leikkonunnar Lupe
Velez, sem hótaði að klóra augun úr Dietrich.
„Hann var hvorki greindur né menntaður,“
sagði Dietrich síðar um Cooper, þótt hún
hefði kært sig kollótta um greindarskortinn
meðan á sambandinu stóð. Um svipað leyti
kynntist hún franska sjarmörnum Maurice
Chevalier sem var giftur en leit ekki á hjóna-
bandið sem fyrirstöðu fýrir sambandi við Diet-
rich. Eiginkonan var hins vegar ekki á sama
máli, sóttí um skilnað og nefndi DieUich sem
hjónadjöfttl. Leikkonan lét sér á sama standa,
brosti við ljósmyndurum og lét niynda sig á
milli Cooper og Chevaiier. Eiginmaður henn-
Marlene og Douglas Fairbanks jr. árið 1936.
Heimsmynd / ágúst - september (43