Heimsmynd - 01.08.1994, Blaðsíða 26
Útlitið
ar úr sykurreyr, fyrir daglega endumýj-
um húðariimar.
Kremin á snyrtistofum
Nýju kremin sem ætluð eru snyrtistof-
um eru almennt virkari en þau sem fást í
verslunum, enda um að ræða meðferðir
með virkari vörum sem aðeins snyrtisér-
fræðingar eru með og eiga að veita enn
meiri árangur. Franska Akademie-
merkið er búið að senda frá sér nýja
krenilínu fyrir húðmeðferð á snyrtistof-
um og er í kremunum að finna bæði
ávaxtasýrur og ýmsar olíur og vítamín
til að stórbæta húðina á tiltölulega
skömmum tíma. Einnig eru nýkomnar
á markaðinn bandarískar snyrtivörur
M.D. Formulations sem aðallega inni-
halda glýkól-sýrur, eru mjög virkar og
geta tekist á við erfið húðvandamál með
góðum árangri. Annað, einnig nýkomið
frábandarískum vísindamönnum, eru
Gly Derm-kremin með bæði ávaxta- og
sykurreyrssýrum. Allar þessar nýju vör-
ur sem nú eru komnar á snyrtistofur
hafa verið notaðar af læknum og húðsér-
fræðingum. Og ef konur eiga við erfið
húðvandamál að etja þá er ekki úr vegi
að leita til slíkra sérfræðinga, því þeir
„luma“ á ýmsum smávægilegum úthts-
aðgerðum og léttmn „peeling-meðferð-
um“ sem geta gert mikið fyrir okkur.
Við höfum nefnilega aldrei verið nær því
að horfa til hrukkulausrar framtíðar en
einmitt nú.
Hvaö meö sólina?
Við vitum allar að of mikil sóldýrkun
veldur hrukkum. Enda var það ekki að
ástæðulausu að barónessur fyrri tíma
áttu sólhlífar við öll tækifæri. En ef við
vilj um hafa góðan lit, án þess að ýta und-
ir hraðari hrukkumyndun húðarinnar
en þarf, getum við auðveldlega gert það.
Við getum fengið á okkur fallegan gull-
brúnan lit án þess að brenna eða eyði-
leggja húðuna og möguleikarnir hafa
aldrei verið fleiri. Við þurfum að passa að
nota alltaf andlitskrem með sólvörn (já,
líka á íslandi).
• Borða mikið af ávöxtum og grænmeti.
• Prófa okkur áfram með „self-bronz-
ing“-krem, það er komin alveg ný kyn-
slóð slíkra krema á markað.
• Nota „sólarpúður".
Nokkur góð ráð
• Hin svokölluðu „Self-bronzing“-krem,
eða svokölluð brúnkukrem eru nú orðin
allt öðruvísi en þegar þau komu fyrst á
markaðinn. Þau eru til í ljósum og dökk-
um tónum og auðveld í notkun. Góðar
leiðbeiningar fylgja með og konur þurfa
ekki lengur að hræðast að vakna brún-
flekkóttar morguninn eftir notkun.
• Þegar brúnkukremin eru notuð er best
að byrja á að bera fyrst rakamjólk á húð-
ina áður en brúnkukreminu er nuddað
vel inn í hana. Þannig verður áferðin
jafnari og eðlilegri.
• Hægt er að fá brúnkukrem með AHA-
sýrum, eins og Self Tanning Lotion, frá
Estée Lauder.
• Brúnkukremin henta best fyrir húð
sem hefur á sér örlítinn lit fyrir og það
má viðhalda litnum lengi með slíkum
kremum. Hins vegar er ekki ráðlegt að
nota brúnkukremin beint á mjög hvíta
húð.
• Lituð dagkrem eru annar möguleiki og
þau eru til í miklu úrvali, bæði rakagef-
andi, nærandi og innihalda flest þar að
auki sólvörn. En varist að velja ykkur
ekki of dökk dagkrem.
• Sólarpúðrin svokölluðu eru annar
kostur, þægileg og auðveld í notkun og
fljótlegasta leiðin til að hafa á sér lit allt
árið. Það sem þarf að athuga er að hafa
sólarpúðrið ekki of dökkt og ekki heldur
í of rauðbrúnum tón. Gullbrúnt sólar-
púður hentar best fyrir konur með hefð-
bundið íslenskt litarhaft, í öriítið dekkri
tón en húðin sjálf.
• Best er að setja sólarpúður á andlitið
með því að strjúka því létt yfir með stór-
um og mjúkum bursta. Bæta síóan örlít-
ið meiru á kinnar, enni og augnlok og
passa að gleyma ekki hálsimun. Hann
verður að hafa sama litablæ og andlitið.
Og loks, ekki gleyma heldur að strjúka
undir hökuna og yfir kjálkabeinin.
Nokkur góö sólarpúöur
Hér á markaðnum má fá þó nokkur góð
sólarpúður sem óhætt er að mæla með.
Má þar á meðal nefna Bourjois sem er
með þrjá liti í sólarpúðri, YSL sem er
með mýkjandi og áferðarfallegt púður
með sólvörn í þremur litum, sívinsælu
stóru bláu sólarpúðurdósina frá Orlane
og fallegt sólarpúður frá Lancome sem
nefnist Magiúsolei. Frá Clarins er fáan-
leg svokölluð Sólartvenna, þ.e. ljóst og
dökkt sólarpúður í sömu dós, og Chanel
býður upp á tvo liti. í sínu sólarpúðri. Frá
Christian Dior kemur svo áferðarfallegt
sólarpúður í þremur mismunandi tón-
um.
Fleiri sólarpúður eru á markaðnum sem
of langt mál væri að telja upp, en hitt er
staðreynd að úrvalið er nóg og við getum
því auðveldlega verið með geislandi,
hraustlega húð og bros á vörum langt
fram á haustið — hvernig svo sem viðr-
ar./JK
Það er ekki bara að Chanel haldi I upphaflegu hefðirnar frá
Coco Chanel með útlit ilmvatnsglasanna, aðferðin við að ganga
frá glösunum með hreinum ilmvötnum er sú sama nú og á 3.
áratug aldarinnar. Notuð er sérstök himna úr nautsmaga, þveg-
in og þurrkuð eftir kúnstarinnar reglum, og sett utan um tapp-
ann. „Plast viljum við ekki sjá í frágangi á dýrum ilmvatns-
glösum og þessum himnum væri bara hent hjá nautgripabænd-
um,“ segir Polge. „En þótt verkun þeirra sé kostnaðarsöm og
það taki starfsfólkið okkar rúmt ár að læra aðferðina við að
mýkja himnuna upp eftir þurrkun, ná henni sundur, setja um
tappann og binda fyrir án þess að hún slitni, þá er þetta besta
aðferðin til að einangra ilmvatnið og tryggja að það geymist
lengur óopnað. Hnúturinn sem bundinn er um tappann er síðan
innsiglaður með svörtu vaxi og Chanel-merkinu."
París þykir fínt að þekkja NEF. Ekki
bara eitthvert nef, heldur eitthvert
þessara örfáu alvöru nefa með lyktar-
skyn sem skapar margar, margar millj-
ónir franka og fleiri gjaldmiðla og leggur um
leið línurnar um hvaða ilmi við hin með
venjulegu nefin getum fundið. Og fyrir
skömmu fékk ég að hitta eitt frægasta nef
frakka. Eftir á að hyggja held ég að enginn í
kringum Jacques Polge hafi nokkurn tíma
nefnt nafnið hans svo ég heyrði til, heldur allt-
af NEFIÐ, og sagt það með lotningu í rödd-
inni.
Polge er ilmvatnshönnuður Chanel-fyrirtækis-
ins og það verður ekki sagt að fólk skreppi si
svona inn á sloifstofuna hans eða rannsóknar-
stofumar sem hann hefur svo gott sem í næsta
herbergi. Til að komast þar inn þarf að fara í
gegnum harðlæstar, eldvarðar öryggisdyr og
jafnvel starfsfólk fyrirtækisins á ekkert auðveld-
ara með aðgang en utanaðkomandi. Þegar
hins vegar er komið framhjá þessum vömum
fer ekki á milli mála hvaða starfsemi þessa
tísku- og snyrtivöruveldis fer fram á hæðinni.
Það er nefhilega allt öðmvísi loft og allt önnur
angan sem mætír manni í dyrunum.
En þessi öryggisbúnaður er kannski ekkert
óeðlilegur, því fyrir utan það að á hæðinni sé
26) ágúst - september / Heimsmynd