Heimsmynd - 01.08.1994, Blaðsíða 27
rannsókiiarstofan þar sem nýir ilmir eru þró-
aðir og blandaðir í kyiTþey og eftir kúnstarinn-
ar reglum, þá er þar einnig að finna beinlínis
brynvarða öryggissskápa sem mér skilst að
myndu standa af sér sprengjuregn, eldsvoða
og hvaðeina. Enda í þeirn geymd einhver
mestu verðmæti fyrirtækisins eins og uppskrift-
in að ilmvaminu Chanel 5.
Þarna á hæðinni er líka að ftnna sérhannaða
kæligeymslu með ilmvatnsglösum í hundraða-
tali. Bæði sýnishomum af nær allri framleiðslu
Chanel og helst hverri lögun hvenar tegundar
langt aftur í tímann, fyrir utan sýnishorn af
flestum ilmvömum sem aðrir hafa sett á mark-
aðinn líka langt aftur í tímann. Og talandi tmi
ilmi frá öðrum merkjum, þá er í einu her-
bergjanna sérhæfður tölvubúnaður sem „les“
innihald og samsetningu ilma og segir tíl um
uppskriftína 95% rétt. En Chanel-fólkið segir
að það geri neftð hans Polge líka, það taki
hann bara aðeins lengri tíma heldur en tölvu-
búnaðinn.
Raunvemlegum nefum stóm snyrti- og tísku-
húsanna hefur farið fækkandi á undanfömum
áramgum um leið og sérhæfðum fýrirtækjum
fjölgar sem finna upp og framleiða ilmi fyrir
hin ýmsu tískumerki. Polge segir slíkt aldrei
hafa komið til tals hjá Chanel. Imynd fýrirtæk-
isins byggi á þeim grunni sem Gabrielle
„Coco“ Chanel skóp, hvort sem um sé að ræða
tískufatnað, ilmvatnshönnun, fylgihluti eða
annað og þar af leiðandi sé allt sem selt sé tmd-
ir merki Chanel hannað, þróað og framleitt
innan dyra fýrirtækisins. Og handbragð gömlu
konunnar leynist víða. Til að mynda í umbúð-
umini sem fara aldrei langt frá glösunum sem
hún lét gera snemma á þessari öld og af þeim
fáu ilmvötnum sem framleidd hafa verið eftír
hennar tíð, hvort sem það er kvenilmurinn
Coco eða karlilmurinn Egoiste þarf ekki að
horfa nema einu sinni á glasið til að vita frá
hvaða tískuhúsi það kemur.
Á skrifborði Polge standa pínulitlar flöskur í
röðum og það fýrsta sem kemur í hugann er
að starfið felist í að sulla saman og leika sér all-
an daginn. En auðvitað er það ekki svo. Inni-
hald þessara litlu flaskna eru hreinir, pressaðir
vökvar hinnaýmsu blómategunda sem Polge
lætur rækta sérstaklega fýrir Chanel. Og áður
en nokkur dropi úr ræktuninni fer inn á rann-
sóknarstofu fýrirtækisins þar sem blöndun á
sér stað, er Nefið búið að fara gaumgæfilega í
gegnum innihald hvers og eins. Það er nefni-
lega ekki sami ilmur af sömu blómategund-
inni burtséð frá því hvar hún er ræktuð eða
hvemig hlúð er að henni í ræktuninni. Allt eft-
ir kúnstarinnar reglum.
Til að mynda er Polge nú að láta kanna fýrir
sig aðstæður annars vegar í Afríku og hins veg-
ar á Ítalíu til að rækta þá tegundjasmínjurtar-
innar sem er gmnnefnið í frægasta ilmi húss-
ins, Chanel 5. Ástæðan er sú að hann segir erf-
iðara og erfiðara að framleiðajurtina í Frakk-
landi þannig að hún
standist þær kröfur
sem þarf, hveiju svo
sem um sé að kenna,
jarðvegi, loftslagi eða
öðm. Enjasmínjurt-
in hefur verið rækt-
uð sérstaklega fýrir
Chanel af nokkmm
blómabændum í
Suður-Frakklandi.
Sama á við um rós-
irnar og allar jurtir
sem notaðar eru í
ilmina, allt er þetta
ræktað eftír sérstakri
forskrift Nefsins og
ekkert hráefni notað
í neina framleiðslu
nema að hann sé bú-
inn að skoða sýnis-
horn og samþykkja.
Reyndar er dálítið
sérstakt að ræða við
þennan rnann um
ilmvöm, því hann vill
helst ekki tala um
ilmi, hann vill finna
ilmi og láta lyktina
um allar útskýringar.
Núna em liðin tíu ár
frá því að Chanel
settí Coco á markað-
inn og síðan hefur ekki komið nýr ilrnur frá
húsinu. En miðað við tvíræð svör Polge má
ætla að nýr ilmur sé á leiðinni, hvort sem það
er eftir eitt ár eða fleiri. „Við förum okkur hægt
í þróun ilmvatiia, enda ætlum við þeim að lifa
lengi þegar þau á annað borð koma á mark-
að,“ segir Polge. Og hefur sitthvað tíl síns máls,
því Chanel 5-ilmurinn er orðinn 73ja ára gam-
all og hefur aldrei verið vinsælli en undanfarin
ár. Ástæðan?
„Eg tengi það dálítið við hvemig ímynd Chan-
el-ti'skuhússins hefur breyst á liðnum áratug,
fýrst og fremst eftir að Karl Lagerfeld gekk tíl
liðs við okkur árið 1983. Með sinni hönnun
hefur hann höfðað tíl ekki bara aldurshópsins
sem Chanel náði tíl áður heldur einnig miklu
yngri kvenna. Og það hefur ekki bara átt við
fatnaðinn heldur allt sem Chanel stendur fýr-
ir, snyrtívörur, fylgihluti og ekki síst ilmvötn. Eg
get kannski best útskýrt þennan mun með því
að segj a að þegar ég var drengur var Chanel 5
ilmvatn mömmu ntinnar. Það var ilmur íýrir
mömmur þá. Núna í nokkur ár hefur Chanel
5 verið í meiri sölu en nokkru sinni fýrr og það
er fýrst og fremst vegna þess að dæturnar,
ungu konumar, hafa bæst í kaupendahópinn.
Enda er þessi langlífi ilmur svo algerlega tíma-
laus, hvortheldur er gagnvart aldri kvenna eða
tíðarandanum,“ segir Polge, „og það er besta
sönnun þess að ilmvatn sé gott.“/VE
Jacques Polge, maðurinn með eitt verð-
mætasta nef veraldar.
Fjðrir ilmir sem Coco Chanel lét búa til og seldi i verslun sinni á 3.
áratugnum. Þeir fóru aldrei í alvöru framleiðslu, en fyrir fjórum
árum opnaði Polge eldtraustu öryggisskápana og lét blanda þessa
ólíku ilmi á nýjan leik, þó aðeins sem hrein ilmvötn. Þau eru að-
eins fáanleg í Chanel- verslunum.
Heimsmynd / ágúst - september (27