Heimsmynd - 01.08.1994, Blaðsíða 19
að velta fyrir sér möguleikum í ferðaþjónustu
á Húsavík því Björn Hólmgeirsson, sem er
umboðsmaður Flugleiða á Húsavík, og Björn
Sigurðsson, sem rekur fólksflutninga- og verk-
takafyrirtækið BSH, höfðu lengi vonast til að
komið yrði á fót gistiheimili í bænum. Þeir að-
stoðuðu Pál og Dóru við að kaupa afganginn
af húsinu ári síðar og eftir gagngerar endur-
bætur á gamla „sýslumannshúsinu“ varð
draumurinn um gistiheimili á Húsavík að
veruleika þegar Arból opnaði 11. maí 1991.
Samstarf við Saga Reisen
Fyrsta sumarið gekk ljómandi vel, ferðamenn-
irnir komu frá öllum heimsins hornum og
vorujafn misjafnir og þeir voru margir. Til
dæmis gistu átta japanskir milljónamæringar á
Arbóli og þegar þeir kvöddu færðu þeir heim-
ilisfólkinu gjafir í þakklætisskyni fyiir notalega
gistingu. Þeir voru leystir út með vatnslita-
myndum eftir heimasætuna, sem þá var þrigg-
ja ára, og þessirkurteisu heiramenn, sem eru
vanir rándýrum hlutum, voru svo ánægðir
með vatnslitamyndimar að það tók þá 45 mín-
útur að kveðja. Og þegar minnst er ájapani
dettur Páli og Dóru í hugjapani, sem dag
einn stóð miður sín á tröppunum hjá þeim.
Hann hafði týnt farangrinum sínum en í hon-
um voru m.a. filmur og ljósmyndavélar, sem
hann átti að prófa fyrir Canon-fyrirtækið.
Meðan verið var að grennslast fyrir um farang-
urinn sagðistjapaninn vera mjög stolturyfir
að hafa verið sendur í þessa ferð, þar sem
hann væri fyrsti starfsmaður fýrirtækis síns,
sem fengi að fara í Kverkfjöll. Farangurinn
fannst morguninn eftir, klukkutíma áður en
Japaninn átti að faia í Kverkfjöll. Honum brá
hins vegar í bmn við morgunverðarborðið því
við næsta borð sat samstarfskona hans. Hún
var í sumarfríi og á leiðinni í Kverkfjöll.
„Tvenn hjón frá Sviss áttu hins vegar eftir að
hafa meiri áhrif á líf okkar en nokkurn grun-
aði,“ segir Dóra. „Pöntun fýrir þau barst með
símbréfi frá ferðaskrifstofunni Saga Reisen,
sem sér meðal annars um beint leiguflug frá
Zurich til Akureyrar, og þar var þess getið að
mikilvægt væri að gera sérlega vel við hjónin.
Dögum sarnan fengum við ítrekanir fra ferða-
skrifstofunni símleiðis og bréfleiðis varðandi
þessa mikilvægu gesti, sem átti að gera einstak-
lega vel við, og okkur varjafnvel bent á að setja
einhveija litla, skemmtilega hluti inn í her-
bergi hjónanna til að gleðja þau. Kvöldið fyiir
komu hjónanna fiá Sviss settumst við niður og
eftir talsverða umhugsun um hvemig við ætt-
um láta þessum gestum líða sem best ákváð-
um við að koma bara fram við þá nákvæmlega
eins og alla okkar gesti. Reyna að láta þeim
líða eins og heima hjá sér. Hjónin birtust dag-
inn eftir og voru hin elskulegustu og þegar
þau fóru hafði allt gengið eins og í sögu og
þau sögðust örugglega koma aftur. Það hafa
þau líka gert oftar en einu sinni,“ upplýsir
Dóra.“ Svo var það tveimur mánuðum síðar
að ég hitti tvo fulltrúa Saga Reisen á Vest Nor-
den ferðaráðstefnu í Færeyjum. Þeir könnuð-
ust strax við Arból á Húsavík mér til mikillar
undmnar," bætir Páll við og kímir. „Tveimur
dögum síðar komu þeir til Húsavíkur og skoð-
uðu aðstöðuna hjá okkur og þá hófst samstarf-
ið fýrir alvöru. Seinna var okkur sagt að ástæð-
una fýrir áhuganum á Arbóli hafi mátt relja til
hjónanna frá Sviss. I hvert skipti, sem þau
höfðu ferðast á vegum ferðaskrifstofunnar,
höfðu hjónin haft allt á hornum sér þegar
þau komu til baka, verið með langan kvörtun-
arlista og viljað fá endurgreitt. En þegar þau
komu frá Húsavík voru þau ánægð og þess
vegna voru fulltrúar Saga Reisen forvitnir um
Arból á Húsavík, sem hafði getað gert þessum
erfiðu viðskiptavinum til geðs. Og við, sem
höfðum ekkertfýrirþeim umfram aðra,“ bæt-
ir Páll við.
Hótel Húsavík
A þessum tíma var grunnurinn lagður að sam-
starfinu við Saga Reisen, þó að þau hefðu ekki
pláss fýrir marga ferðamenn í Arbóli, en þar
er seld gisting í sex herbergjum og á svefnlofti
í risi em sjö rúm fýrir svefnpoka. Nú geta þau
hins vegar hýst fjölda ferðamanna því fyrir
rúmu ári keyptu Páll og Dóra, ásamt Birni
Hólmgeirssyni, meirihluta Hótels Húsavíkur,
48% voru keypt af Húsavíkurbæ og 4% af
Kaupfélagi Þingeyinga en Páll gegnir hótel-
stjórastöðu. Hótelið var í slæmu ástandi og
mikil vinna hefur verið lögð í að bæta og
breyta. „Fyrsta símbréfið, sem okkur barst á
hótelið eftir að við tókum við því, var stutt og
laggott," segir Páll og kímir. „Það var frá Beat
Iseli, forstjóra Saga Reisen, og hljóðaði þann-
ig: „I have heard thatyou have bought shears
in Hótel Húsavík, but are you in charge?“
Hann vildi fá að vita hvort við réðum ein-
hveiju og hvort grundvöllur væri fýrir frekara
samstarfi. I framhaldi af nokkrum bréfaskipt-
um og símtölum fórum við til Sviss og þar var
lagður gmnnur að frekara samstarfi við Saga
Reisen. Margs konar ferðir hafa verið skipu-
lagðar þar sem Húsavík er nriðpunkturinn og
skoðanaferðir em famar héðan. Nú emm við
nánast á hverri blaðsíðu í bæklingi frá þeirn
unr Island og Grænland. Við lröfum lagt mik-
ið upp úr að geta skipulagt spennandi ferðir
og höfum unrboð til að sernja fýrir fýrirtæki,
sem sjá um fólksflutiringa, eins og BSH og Sér-
leyfisbíla Akureyrar. Oll nrarkaðssetning er
mjög nrikilvæg en hún hefur verið vanrækt
hérfram að þessu,“ fullyrðir Páll. „Sjóferðim-
ar og hvalaskoðunarferðimar, senr Arnar Sig-
urðsson sér um, hafa verið nrjög vinsælar.
Fyrri hluta sumars er siglt að Lundey á Skjálf-
anda og lundinn skoðaður en síðsumars er
siglt aðeins lengra og þá eru góðar líkur á að
sjá hval. Jafnvel náttúruperlur á borð við Detti-
foss ogj ökulsárglj úfur virðast falla í skuggann
af hvölunum ef ferðafólkið nær að sjá þá.
Flestir þeirra erlendu ferðamanna, sem til
okkar hafa komið, em hrifnastir af dýtalífmu
og hversdagslegir. hlutir, sem við eium hætt að
taka eftir, eins og lífið við höfnina, heillar þá
upp úr skónum. Beitingarskúrarnir eru til
dæmis vinsælir. Við þurfum að reyna að sjá
landið okkar með þeirra augum og skipu-
leggja mikla og góða afþreyingu fýrir erlenda
ferðamenn meiri hluta ársins,“ segja þessi
bjartsýnu hijón, sem svo sannarlega hafa blásið
nýju lífi í ferðajajónustu á Húsavík.
Gamla Hótel Húsavík sem nú er gistiheimilið Árból
Komið úr hvalskoðun