Heimsmynd - 01.08.1994, Blaðsíða 44
ar og dóttir voru komin frá Berlín og Rudi
slóst gjarnan í för með eiginkonunni og ein-
hveijum elskhuga hennar þegar veislugleði
stóð íyrir dyrum. Slúðurdálkahöfundar voru
fyrir löngu hættir að geta fylgst með því hver
var með hverjum svo fjölbreytt og flókið var
ástarlífDietrich.
John Gilbert, maðurinn sem Greta Garbo
komst nálægt því að giftast, varð enn einn elsk-
„Leikkonan sem óttaðist
aldurinn var rækilega
minnt á ellina þegar María
dóttir hennar gerði hana
að fallegustu ömmu í
heimi og blaðamenn
þreyttust ekki á að minna
á ömmuhlutverkið“
hugi Dietrich á fyrstu árum hennar í Holly-
wood. Þau kynntust þegar hann var korninn
vel á veg með að drekka sig í hel. Hún hjúkr-
aði honum, kom honum til sálfræðings, eld-
aði fyxir hann og hélt honum ffá víni. En þeg-
ar hún tók sér frí frá honum til að sinna á ný
hinum nýgifta Gary Cooper sneri Gilbert sér
aftur að flöskunni og fékk hjartaáfall sem
leiddi hann til dauða. Dietrich tók dauða hans
ákaflega nærri sér og fyllti búningsherbergi
sitt af myndum af Gilbert og raðaði logandi
kertum undir. Hún gaf leikstjóranumjoshua
Logan þá skýringu að hún tilbæði GilberL
Að Gilbert gengnum tók Dienich upp ástar-
samband við konu, handritahöfundinn
Mercedes Acosta. Þær hittust eitt kvöldið í
leikhúsi og daginn eftir var Dietrich mætt í
heimsókn. I ævisögu sinni lýsti Acosta fundi
þeirra svo:
„Þegar Marlene gekk inn hikaði hún í dyra-
gættinni og leit á mig með sama feimnissvip
Marlene og Burt Bacharach meðan á
samhandi þeirra stóð 1964.
og kvöldið áður. Eg sagði henni að koma inn
og rétti ffam höndina. Hún sagði: „Ég vona að
þú fýrirgefir mér. Ég tók eftir þér í leikhúsinu í
gærkvöld og mig langaði til að kynnast þér. Ég
þekki mjög fáa í Hollywood og engan sem
gæti kynnt okkur svo ég komst að því hvar þú
átt heima og kom sjálf.“
„Konur eru betri en það er bara ekki hægt að
búa með konu,“ sagði Dietrich eitt sinn, en
þær Acosta bjuggu þó saman um hríð. Hún
var sú kona sem Dietrich elskaði heitast en
henni var þó ómögulegt að vera henni trú.
Stuttu eftir kynnin af Acosta kynntíst Marlene
leikaranum Douglas Fairbanksjr. Hann var
níu árum yngri en hún og ástarsamband
þeirra stóð í fjögur ár en því lauk þegar Fair-
banks fann ástarbréf frá Acosta til Marlene.
Hann hafði reyndar tekið því með þolinmæði
þegar hún hafði eiginmann sinn með á opin-
ber stefnumót þeiira, en hann var ekki reiðu-
búinn að deila henni með konu. En það giltí
það sama um Fairbanks og flesta aðra elsk-
huga Dietrich, þegar ástarsambandinu lauk
tók vináttan við. Um Dietrich sagði Fairbanks
síöar: „Hún var afskaplega indæl og góð
stúlka, mjög hæfileikamikil, göfuglynd, mjög
greind og glamúr-stúlka eingöngu vegna þess
að Stermberg sagði henni að þannig ættí hún
að vera.“
Það vom enn aðrir. John Wayne var einn. Þau
léku saman í kvikmynd og Dietrich bauð
kappanum í búningsherbergi sitt rétt áður en
upptökur áttu að hefjast, læsti hurðinni og
spurði hann hvað klukkan væri. Hún beið
ekki eftir svari hans heldur lyfti pilsinu. Flm
lærin hafði hún svart sokkaband með lítilli
klukku. Hún leit á klukkuna og síðan á Wayne
og hvfslaði: „Það er ekki orðið áliðið, elskan,
við höffim nægan tíma.“
Með Wayne fór hún á veiðar og drakk með
honum á krám. Þess á milli reyndi hún að
kynna fýrir honum heimsbókmenntir en á
þeirn hafði Wayne takmarkaðan áhuga.
„Oviðfelldið fólk, leikarar,“ sagði hún mörg-
um árum seinna, „fýrst og fremst John
Wayne.“Hún átti einnig ástarævintýri með
einum eftirsóttasta piparsveini í Hollywood,
James Stewait. Það var sagt að hún hefði orðið
barnshafandi eftír hann og farið í
fóstureyðingu, en aldrei staðfest.
Mótleikararnir féllu nær allir fýrir
henni og kannski þess vegna skildi
hún ekki þegar einn þeirra, Fred
MacMurray sýndi henni engan
áhuga. „Afhverju er hann ekki ást-
fanginn af mér?“ spurði hún sam-
starfsmann sinn. Þegar hún fékk
svarið að hann væri hamingjusam-
lega giftur þá fundust henni það
engin rök. En ástarsambönd við
mótleikara tók Marlene ekki sér-
lega alvarlega. Henni var meiri al-
vara í sambandi sínu við Erich Mar-
ia Remarque, hinn þunglynda þýska rithöf-
und, höfund hinnar frægu skáldsögu Tíð-
indalaust á vestumgstöðvunum. Astarævintýii
þeirra lauk þegar Marlene bauð öðrum elsk-
huga sínum, Jean Gabin, að búa hjá sér.
Mörgum ánun eftír síðar var hún spurð að því
hvaða mann hún virti mest. Hún svaraði: „Er-
ich Maria Remarque.“
Dietrich gerði tílraunir tíl að hafa reglu á allri
óreglunni í ástarlífinu. Stjörnuspekingur
hennar ráðlagði henni að skipta vikudögun-
um á milli elskliuga. Það skipulag riðlaðist ein-
staka sinnum.
Eitt kvöld átti hún stefhumót við Douglas Fair-
banks þegar Mercedes Acosta kom óvænt í
heimsókn. Marlene var í baði og þegar síminn
hringdi svaraði Acosta. I símanum var Erich
Maria Remarque sem spurði eftir Dietrich.
Acosta sagði að hún væri ekki heima. Re-
marque sagðist ætla að korna og ganga í
skugga um það sjálfur. Acosta sagði Dietrch
frá símtalinu og Dietrich mundi allt í einu að
hún hafði lofað Remarque að lesa yfir kafla í
nýrri skáldsögu hans. Acosta fór og Fairbanks
kom fljótlega. Marlene tók á mótí honum og
hugðist afsaka sig einhvem veginn en áður en
henni gafst tækifæri til þess var Remarque
mættur á svæðið. Marlene brosti sínu blíðasta
og sagði: „Ég hef hlakkað svo tíl þess að kynna
ykkur hvor fyrir öðrum. Hvert eigum við að
fara að borða?“ Aður en þeim gafst ráðrúm til
að svara var dyrabjöllunni hringt. í dyrunum
stóðjoseph von Stemberg sem tók Marlene í
fangið eins og hann væri eini elskhugi henn-
ar.
Von Sternberg var mikilvægasti maðurinn í
líft Marlene Dietrich. Erich Maria Remarque
sá sem hún virtí mest. En maðurinn sem hún
unni heitastvarfranski leikarinnjean Gabin.
Dietrich lýstí sambandi þeina svo: „Hann var
þrjóskur, ákaflega ráðríkur og afbrýðisamur
og studdist við mig eins og munaðarlaust
barn. Ég naut þess að annast hann daga og
nætur. Ég varð móðir, systir, vinur og enn
meira.“ Dietrich var ákaflega ástfangin afjean
Gabin en var honum ekki trú fremur en öðr-
um. Hann barði hana í afbrýðiköstum en vissi
Marlene ásamt dótturinni Maríu og ástkonu eiginmannsins, Tamöru.
Fyrir aftan sitja þeir Joseph von Sternberg t.h. og eiginmaður Mar-
lene, Rudolph Sieher, eða Rudi eins og hann var kallaður.
44) ágúst - september / Heimsmynd