Heimsmynd - 01.08.1994, Blaðsíða 86
Grænmeti. og saJat er vtnsæll og góóur matur. Það eru fjölmargir
möguleikar aö matreiöa úr grænmeti, úrvaiiö er alitaf að aúkast
hér á landi og áhugi fólks á hollustu aJmennt er Jika aJJtaf aö
stækka. Hér eru þrjár uppsJoiftir sem sýndar voru í matreiðslu-
þáttum Stöðvar 2, nú fyrr áþessu ári. Þetta er réttir sem annað-
hvort er hægt að gefa sem forrétt í góöu matarboði, eöa sem sjálf-
stæða rétti á hlaðborði þegar tekið er á móti góðum gestum.
Einnig er þetta gott meðlæti með grillmatnum, en það er hægt að
grilla úti, þessvegna aJIt árið. (Ef vel viðrar) Það góða við þessa
rétti er að það má gera þá vel fyiirfram, en munið þá samt aJltaf
þá reglu að setja aldrei salatdressinguna yfir fjrrr en rétt áður en
saJatið er boiið fram.
Salat með avókadó,
melðnum ogrækjum
Uppskrift fyrir 6 manns.
2 avókadó
1/2 hunangsmelóna eða
kantlópumelóna
400 g rækjur
1/4 agúrka, kjarnhreinsuð
1- 2 vorlaukar
1/3 rauð paprika
2- 3 tómatar
1/2 íssalat
2 limeávextir
2 msk. valhnetuolía
4 msk. jarðhnetuolía
lítill vöndur myntulauf
salt og pipar úr kvörn
Kljúfið avókadóávöxtinn
og fjarlægið steininn. Tak-
ið út ávaxtakjötið með
skeið og skerið í sneiðar.
Fjarlægið steinana úr mel-
ónunni. Kúhð hana út með
þar til gerðu áhaldi sem
nefnist parísarjárn.
Skerið agúrkurnar í sneið-
ar.
Skerið vorlaukinn fínt.
Skerið paprikumar í
strimla og tómatana í báta.
Skolið íssalatið vel og
skerið í fína strimla.
Leggið íssalatið, agúrkuna
og paprikuna fyrst á fal-
legt fat. Raðið avókadó-
sneiðunum í kring ásamt
melónunum og tómötun-
um. Leggið rækjurnar í
miðjuna.
Kreistið safann úr lime-
ávöxtunum og blandið
saman við olíumar. (At-
hugið ef þið hafið ekki að-
gang að þessum fínu
hnetuolíum þá getið þið al-
veg notað aðrar góðar sal-
atolíur í staðinn.) Saltið og
piprið löginn. Hellið hon-
um yfir salatið áður en
þaö er borið fram og
skreytið með ferskum
myntublöðum.
Grafin nautalund á
stökku blaðsalati.
Uppskrift f. 4-8 manns.
400 g nautalund
1 dl salt
1/2 dl sykur
1 msk. ferskur timjan
1 msk. fersk salvía
1 msk. fersk meriam
1 msk. ferskt estragon
1/2 msk. grófkornaður svartur
pipar
3 cl brandí
150 g lambasalat
150 g eikarlauf
150 g frísée
150 g soðnar kartöflur
1 -2 rauðlaukar eftir stærð
Frönsk sinnepsdressing
2 msk. Dijon-sinnep
1 msk. Hlyn-síróp
1 dl Balsamico-edik
2 msk. af fínt söxuðum,
blönduðum kryddjurtum (þeim
sömu og eru á nautakjötinu)
svartur pipar úr kvörn
2 dl kornolía
Hreinsið nautalundina vel
og látið í ílangt og mjótt
form. Blandið saman salti
og sykri, látið það yfir
nautið og nuddið salt og
sykurblöndunni vel inn í
kjötið. Fíntsaxið kryddjurt-
imar og stráið þeim jafnt
yfir.
Piprið og að lokum hellið
brandíinu yfir.
Látið standa inni í kæli í
48 tíma og snúið nauta-
lundinnni við öðru hvoru.
Blandið öllu saman sem á
að fara í dressinguna og
hrærið þar til allt er orðið
vel samlagað.
Rífið salatið niður á fat og
skerið rauðlaukinn í
þunna hringi. Skerið einn-
ig kartöflurnar í sneiðar.
Leggið þetta jafnt á fatið.
Skerið nautalundina í ör-
þunnar sneiðar og leggið
ofan á. Gott er að frysta að-
eins nautakjötið þegar það
er orðið fullgrafið og skera
það örlítið frosið, því þá er
miklu þægilegra að fá ör-
þunnar sneiðar.
Leggið nautakjötssneiðarn-
ar yfir salatið og skvettið
aðeins vinaigrette-sósunni
yfir.
Berið fram sem annað-
hvort forrétt eða hinn full-
komna létta málsverð.
86) Sælkerinn / Heimsmynd - ágúst / september