Heimsmynd - 01.08.1994, Page 22

Heimsmynd - 01.08.1994, Page 22
Mannleg samskipti I framhaldi af framhjáhaldi ekkir þú hjón sem giftust og lifðu átakalaust, ham- ingjusöm og ástfangin allt til æviloka? Varla. í hjónaböndum skiptast á skin og skúrir, þótt ekki sólbrenni allir og hjá sumum komi litlar dembur en öðrum steypiregn. Framhjáhald mjmdu flestir flokka sem óveður í þessum skiln- ingi, en framhjáhald er oft ekki sú mikla dramatík sem ætla mætti. Hvorki á und- an eða eftir, eins og fjöiskylduráðgjafmn Nanna K. Signrðardóttir bendir hér á um leið og hún rekur sögu hjóna sem margir eiga sínar útgáfur af. Ég kalla þau Ella og Siggu, nákvæm- lega af því að það eru ekki þeirra réttu nöfn. En þau gætu heitið ansi mörgum nöfnum því feriil þessa tiltekna pars er í grunninn ekki ólíkur því sem mörg önnur hafa gengið í gegnum. Elli og Sigga byrjuðu saman í menntaskóla, ár- ið sem hún hóf nám og hann útskrifað- ist. Elli var áberandi í skólanum, ekki síst vegna þess að hann var einn helsti afreksmaður skólans í íþróttum. Sigga, aftur á móti, tók öll árin mikinn þátt í leikfélagi skólans og hafði lítinn áhuga á íþróttum. Þau byrjuðu saman um ára- mót, en giftu sig nær fjórum árum síðar, að Sigga varð stúdent. Svo eru liðin 15 ár, börnin orðin tvö og hjónin búin að koma sér ágætlega fyxir í lífinu. Bæði menntuðu sig í háskólan- um, Elli útskrifaðist sem lögfræðingur og Sigga lauk BA-prófi í tungumálum. I dag er hann lögfræðingur hjá stóru fyr- irtæki, en hún vinnur hálfan daginn í þjónustufyrirtækL. Heimilið er fallegt og þau hafa verið samtaka um að koma sér áfram með mikilli vinnu. Fastar skorður eru á heimilishaldinu, þótt Elli komi lítið ná- lægt því, enda mikið fjarverandi vegna vinnunnar. En Sigga sér um þau mál, fær húshjálp einu sinni í viku og er með fasta barnfóstru ef þarf á kvöldin og um helgar. Bæði taka þátt í félagslífi hvort um sig, en sjaldnast saman. Eiginlega ekki nema þegar kemur að fjölskyldu- boðum á jólum, páskum og afmælum og svo mæta þau bæði á árshátíðir fyrir- tækjanna. Sameiginlega áhugamálið er börnin og heimilið og þar eru þau sam- stiga, en geta þó sjaldan sinnt heimilinu eða bömunum á sama tíma. Þegar þessi hjón hófu sambandið töluðu þau mikið saman, sögðu hvort öðru frá því sem þau voru að gera, frá fólkinu í kringum sig, þau vissu hvað hinu fannst um allt mögulegt og þau vissu drauma og þrár hvort annars. Þau voru ástfangin og galopin hvort í annars garð. Núna hafa þau bara ekki tímann til að tala saman. Og það eru ekki bara sam- ræður sem hafa einhvernveginn fjarað út, ástarlífíð og kyniífið einhvemveginn líka. Ekki bara af áhugaleysi, stundum hafa þau einfaldlega verið of þreytt til að nálgast og vantað neistann sem þarf. Þau hafa verið varkár í fjármálum og á síðasta ári fannst þeim í fyrsta sinn þau eiga raunhæfan möguleika á að fara í gott sumarfrí með bömin. Þegar sumar- ið rann upp kom hins vegar á daginn að Elli gat ekki farið frá fyrirtækinu í þrjár vikur. Hann þurfti að taka fríið sitt dag og dag sem varð til þess að upphaflegri ferðaáætlun var breytt. Hann notaði frí- dagana sína mest til að fara í veiði með félögunum, en Sigga fór í 10 daga til út- landa með bömin. En það sem hristi upp í hjónabandinu byrjaði fyrir um tveimur árum. Þá var Sigga í jólaglöggi í vinnunni þegar starfsmaður sem hún hafði lítið um- gengist settist hjá henni og þau tóku tal. Maðurinn, sem er talsvert eldri en Sigga, trúði henni fyrir því að hann hefði tekið eftir henni í langan tíma og eiginlega beðið eftir tækifæri til að kynn- ast henni nánar. í kjölfarið fylgdu alls- konar gullhamrar og Sigga segist hafa farið dálítið hjá sér. Þau ræddu lengi saman um kvöldið og samræðurnar urðu persónulegar. Sigga sagði frá sínu lífi og fékk að vita heilmikið um mann- inn. Svo sem það að hann dáðist að sam- heldni hennar og Ella, þvi sjálfur væri hann í sjálfdauðu hjónabandi sem héngi saman vegna bömunum. Það gerðist ekkert annað þetta kvöld en að það myndaðist kunningsskapur og C 22) ágúst - september / Heimsmynd
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.