Heimsmynd - 01.08.1994, Page 42

Heimsmynd - 01.08.1994, Page 42
Marlene 1928 með eigin- manninum Rudi. Þýska leik- og söngkonan Marlene Dietrich lést í maímánuði 1992 en var löngu fyrir dauða sinn orðin goðsögn. Leikhæfileikar hennar voru reyndar aldrei ýkja miklir en hún bjó yfir einstæðum og dulúðugum en þó ögr- andi stíl, mikilli fegurð og rödd hennar er „Marlene Dietrich ætlaði sér aldrei að verða leik- kona. Hún þótti afbragðs fiðluleikari og ætlaði sér frama í því starfi, en varð fýrir slysi á hendi sem eyðilagði þau áformu ógleymanleg. Það var ætíð eins og leikkonan væri sveipuð dulúð, væri næstum ósnertanleg, og sjálf lagði hún sitt af mörkum til að ýta und- ir hina goðumlíku ímynd. Eftír andlát Diet- rich hafa ævisagnaritarar dregið fram í dags- ljósið staðreyndir sem áður voru á huldu um líf leikkonunnar og margt sem þar kemur fram verður ekki kallað annað en safaríkt. Kolbrún Bergþórsdóttir, bókmennta- fræðingur rekur hér í athyglisverðri grein ótrúlegan feril Dietrich á rnilli elskhuga og ást- kvenna. HÚN FÆDDIST 27. DESEMBER 1901 Og hét ftíllu nafni Maria Magdalena Dietrich. Systir henn- ar, ári eldri, hét Elísabet, en rnilli þeirra var aldrei náið samband og sem Hollywood- stjarna hélt Dietrich því staðfastlega fram að hún væri einbimi. Dietrich ólst upp í borgara- 42) ág'úst - september / Heimsmynd Marlene og leikar- inn John Gilbert legu umhverfi við mikinn aga og og lítíð ást- ríki. Faðir hennar, lögiæglumaður lést þegar hún var sex ára. Hann fékk hjartaáfall eftir að hafafallið af hestbaki. Móðirin giftist aftur en sá maður féll á vígvelli í fyrri heimsstyrjöld eftir nokkuira ára hjónaband. Dietilch þótti þegar á barnsaldri einstaklega fallegt barn. Hún var feimin og hlédræg og eftirlætísiðja hennai' var að spila á fiðltma sína. I bamaskóla varð hún ástfangin í fyrsta sinn. „Hin sanna, leynilega ást mín,“ eins og hún orðaði það sjálf var kennslukonan hennar. Onnur kona vann hug og hjarta hennar nokkrum ámm síðar. Það var þýska leikkonan Henny Potten sem á þeim tíma var mikið eft- irlætí Þjóðt'eija. Diefiich tók upp þann sið að bíða Potten í anddyri leikhússins þai' sem leik- konan var við störf og spila á fiðlu í þeim til- gangi að heilla hana. Aðdáunin snerist að lok- um upp í þráhyggju þegar Dietrich, tólf ára gömul eltí Potten og eiginmann hennar upp í sveit, stillti sér upp á grasflötinni og spilaði á fiðlu. En strax í skóla var hún farin að veita karl- mönnum nána athygli og skólasysturnar sögðu að hún horfði „svefnherbergisaugum“ á karlkynskennara sína. Einn sýndi henni reyndar svo áberandi áhuga að honum var vís- að úr staifi. Fyrsta elskhugann eign- aðist Dietrich þegar hún var átján ára. Það var fiðlukennari henn- ar, giftur og nokkurra barna faðir. Það voru einhver fleiri ástaiævin- týii fyrir tvítugsaldur en síðan varð Dietrich ást- fangin af Gerdu Huber, rithöfundi, sem hún bjó með í nokkra mán- uði. Það ástarævintýri endaði sem ágæt vin- átta og á fyrstu Holly- woodárum Dietrich kom Gerda þangað og gerðist einkaritari fýrr- um ástkonu sinnar. Marlene Dietrich ætlaði sér ekki að verða leikkona. Hún þótti afbragðs fiðluleikari og ætlaði sér frama í því starfi en varð meiðsl á hendi gerðu slík áform að engu. Þess í stað einbeittí hún sér að söng. Söng í ka- barettum og á krám og vakti fljótlega athygli fyrir flutning á djörfum söngvum um ástir milli kvenna. Hún þóttí lagleg kona án þess að vera áberandi fögur, nokkuð feitlagin, en var sögð hafa fallegustu fótleggi í Berlín. Hún sást öðm hvoru klædd karlmannsfötum og hélt þeim sið alla ævi. Annar siður hennar sem þótti í djarfara lagi var sá að ganga ekki í nær- fötum. Skömmu áður en hún lék í fýrstu kvikmynd- inni, breytti hún nafiiinu, skeyttí saman fýrstu og síðusúi orðunum í hinum tveimur skímar- nöfnum og nefndi sig nú Dietrich. Við kvik- myndagerð kynntist hún fýrsta og eina eigin- rnanni sínum, aðstoðarleikstjóranum Rudolf Sieber, sem var 25, fjórum ámm eldri en Diet- rich, og mikið kvennagull. Sieber var þá trú- lofaður ungri leikkonu, Evu May, sem skar sig á púls þegar hann sleit trúlofúninni. Það tókst að bjarga lífi hennar en ári síðar fúllkomnaði hún ætlunarverkið og skaut sig. Dietrich og Sieber, eða Rudi eins og hann var ævinlega nefndur, giftust eftír stutt tilhugalíf og voru gift í nær hálfa öld eða þar til hann lést. Strax á fýrstu hjónabandsmánuðum þeirra var þó ljóst að hvorugt gerði sérlega strangar kröfur til trygglyndis. Dietrich sást iðulega í fýlgd með leikaranum Wili Forst eða hinni rúmlega fertugu, lesbísku söngkonu Claire Waldoff. Rudi aftur á móti hóf sam- band við unga, rússneska dansmey, Tamöm, sem var ástkona hans meðan hún lifði. Dietrich og Rudi bjuggu ekki saman nema í örfá ár en milli þeirra ríktí alla tíð vinátta og virðing. Þau eignuðust eina dóttur, Maríu, sem Dietrich vai' afar stolt af. Dóttirin fékk þó aldrei þá umhyggju frá móður sinni sem hún þráði og hún varð snemma einræn og þung- lynd. En móðirin naut hins ljúfa lífs. Hún var orðin þekkt leikkona og vinsæll skemmtikraft- ur á næturklúbbum Berlínai'. Þar sá þýski leik- stjórinn Joseph von Sternberg hana á sviði og bauð henni hlut- verk kabarettsöngkon- unnar Lolu Lolu í kvik- myndinni Bláa englin- um. Sternberg naut virðingar um allan heim fýrir kvikmyndir sínar en menn höfðu takmarkað dálæti á manninum sjálfum. Hann þóttí hégómleg- ur, sjálfselskur og drottnunargjarn og sagði eitt sinn. „Eg er ís-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.