Heimsmynd - 01.08.1994, Page 59

Heimsmynd - 01.08.1994, Page 59
Það fór ekki framhjá fólki þegar Linda Péturs- dóttir, fyrrum alheimsfegurðardrottning, kom til landsins með skoskan arkitekt og fyn- um fýrirsætu upp á arminn fýrir tæpum tveim- ur árum, enda fjölmiðlar og fleiri verið sein- þreyttir að fylgja henni hvert fótmál. Ekki þótti svo minni safi í þeirri fregn er vinkona Lindu og sú kona sem hvað mesta eftirtekt hefttr vak- ið í tískuheiminum hér, Filippía Elísdóttir fatahönnuður, heillaðist af öðrum Skota sem einnig á að baki fyrirsætuferil, er að auki fyrr- um tengdasonur Body Shop-veldisins og að auki góðvinur þess fyrrtalda. Það hefur sjálf- sagt vakið ugg í bijósti einhvers karlmansins að sjá á eftir tveimur af vænlegustu kvenkost- um landsins í hendur Skotum. En yfir því þýðir vart að fárast, hér virðist full alvara á ferð og sönnun þess að ást- in eigi sér engin landa- mæri. Um þá Les Robertsons sem hefur verið búsett- ur á Islandi á annað ár, og Alex McCullan, sem enn verður að teljast í hópi nýbúa, er sjaldan talað án þess að nöfn kvennanna tveggja beri fyrst á góma. Að því leyti eru þeir í sama hlutverki og konur hafa löngum verið; í skugga maka sinna. Út á við að minnsta kosti. En þegar betur er að gáð má greina fingra- för Skotanna víða í ís- lenskri dægurmenn- ingu og allar líkur á að það eigi eftir að aukast, eins og Guðrún Kristjánsdóttir, komst að í samtali við þessa tvo glæsilegu ungu menn sem hafa sinn breska háðslega húmor á réttum stað og að auki athyglisverð viðhorf til íslenska umhverf- isins. Eftir nokkrar tilraunir til að ná saman tókst það loks í miðri viku á kaffihúsi. A leið okkar þangað var strax þungu fargi af mér létt. Ætli Skotar séu svona málglaðir? flaug í gegnurn huga minn. Einkum áttu sú hugsun við Les. Oðamála fólk getur orðið dálítið þreytandi til lengdar, en það á ekki við um hann. Les var enda mættur í hlutverki viðmælanda og það sem rneira er; hann er skemmtilega málglað- ur. Það er neisti þama á bak við. Reyndar áttu þeir félagar báðir stórskemmtilega takta þetta kvöld. Fyrst velti ég að vísu fýrir mér hvort Alex væri haldinn þessari svokölluðu nýbúafeimni. En hún rann þá af honum á næsta götuhomi. Á göngunni tjáði Les mér að íslendingar séu nú loks hættir að spyrja hann: Há dújú læk Æsland. Það hafi átt við undanfarið hálft ár. Það er líklegast áþreifanlegasta merkið um það að hann er laus úr viðjum nýbúastimpils- ins. „Eg er greinilega að verða meðtekinn þjóðfélagsþegn,“ segir hann og dæsir líkt og honum sé létt. Barmenningu Islendinga bar eðlilega einnig á góma, enda við á leið á einn slíkan. Og Les segist hafa upplifað það þegar hann flutti til Islands fýrir tæpum tveimur ár- um að aðeins var röð fýrir utan fjórar krár í miðbænum um helgar. Nú myndist hins veg- ar langar raðir fýrir utan allt að tuttugu kiár. Hann veltir vöngum yfir því hverju þetta sæti; hvaðan allt þetta fólk sé sprottið en slær því svo fram að þetta hljóti að felast í að stórir skemmtistaðir hafi tæmst. Alex kemur hins vegar með það innlegg að unga fólkið sem áð- ur hafi verið að skemmta sér í heimahúsum hljóti að hafa látið af þeim sið og flykkst í mið- bæinn. Ekki gat ég við svo búið hamið mig og bæti því við að eldra fólk sé einnig tíðari gestir í miðbænum en áður. En hvað um það. Við komumst á leiðarenda og lendum ekki í röð. Ekki varð komist hjá því að hefja spjallið á því að lofa og lasta land og þjóð; íslenska þjóðar- sálin liggur þungt á þeim félögunum. Alex, sem flakkað hefui' heimshomanna á milli, ým- ist berandi föggur föður síns í gegnum frum- skóga jafnt sem eyðimerkur vegna staifa hans sem blaðamanns eða í eigin starfi sem fýrir- sæta, segir þrátt fýrir allt flakkið sé Island mjög ferskt land heim að sækja. „Þegar ég kom fýrst til Islands í nóvember á síðasta ári sá ég Reykja- vík fýrir mér sem sætan, lítinn bæ senr hafði upp á margt að bjóða. Þá var ég reyndar ekki kominn í kast við kjaftasögurnar. Eg meina, þegar fólk er sextán ára er það segjandi sögur af öðrum,“ segir hann forviða. „Vissulega hef- ur Reykjavtk upp á margt að bjóða en fljótlega komst ég að því að borgin er ekki eins sæt og mér fannst við fýrstu kynni. Islendingar taka manni vel, eru opnir fýrir nýjum hugmyndum og hvetja mann óspart til dáða en eiga það svo til að hlæja í bakið á manni geri maður eitt- hvað sem er öðruvísi." Les: „Reykjavík er heimsborg í víðasta skiln- ingi þess orðs. En borgarbúana sjálfa skortir hins vegar nokkuð á heimsborgaraeðlið. Eg upplifi Islendinga frenrur sjálfhverfa. Miklu meira en nokk- urn Frakka, Skota eða Englending sem ég þekki. En þetta á auð- vitað sínar skýringar. Hér býr ein þjóð í einu landi og allir hafa svo að segja sömu hug- myndir um hvemig líf- ið eigi að ganga fýrir sig. Þetta er fýrst og ffemst vegna þess að Is- lendingar eru óvanir að taka tillit til fólks sem lifir öðruvísi Iífi en það gerir sjálft Þar sem ólíkum kyn- þáttum ægir saman gerist auðvitað heil- margt sem maður er löngu hættur að kippa sér upp við. Eg er ekki með þessu að segja að ég sé orðinn dofinn fýr- ir umhverfinu heldur hefur þetta með um- burðarlyndi að gera. Maður veitir því minni athygli ef einhver er öðruvísi, ólíkt mörgum Is- lendingum. Eg er samt ekki að segja að Bretar séu lausir við vandamál, auðvitað er oft slagur á milli ólíkra kynþátta í úthverfum London. Þessu er fremur öfugt farið hér, að minnsta kosti finnst mér það skipta fólk á landsbyggð- inni ósköp litlu máli hvort maður er údend- ingttr eðaekki." Alex: „Islenska þjóðin er líka hrífandi fýrir svo margt, til dæniis þessi sterku fjölskyldubönd. Að því leyti má líkja Islendingum við Itali, nema hvað enginn fjölskyldumeðlimur er áberandi dómínerandi, eins móðirin er þar. Svo finnst mér athyglisvert hve mikil virðing er borin fýrir skoðunum ungs fólks hér á landi. I Bretlandi er ekkert hlustað á ungt fólk, ef það opnar munninn er því bara sagt að þegja. Ungt fólk býr við ótrúlegt frelsi á Islandi, ótrú- legt,“ ítrekar hann. Heimsmynd / ágúst - september (59
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.