Heimsmynd - 01.08.1994, Page 60

Heimsmynd - 01.08.1994, Page 60
Les: „Mér finnst það mikill kostur, enda eru ungir Islendingar bæði mjög sjálfstæðir og yfirleitt vel að sér um ólíklegustu hluti,“ segir Les og skerpir á skoðunum sínum með dæmi. „Ef ungur Breti á aldri við mig (30 ára) væri spurður hver er forsætisráðherra Bretlands, yrði svarið hikandi; ,John Major, er það ekki? Hár þekkingarstandard hér á landi heíur sjálf- sagt með smæð þjóðarinnar að gera. Fjölmiðl- arnir ná til allra. Enda hefur maður sosum ekkert annað að gera en að sitja yfir fréttatím- unum á kvöldin. Það er að minnsta kosti úr fáu öðru að velja í íslensku sjónvatpi á sama tíma.“ Alex (25 ára), þrátt fyrir styttri viðveru fæ ég ekki betur séó en aó þú hafir einhverja innsýn inn í íslenskan kúl- túr. Ykkur Filippíu tókst bærilega upp með tískusýninguna í Kolaport- inu. Alex: „Ég held að kjarni málsins sé sá að Is- lendingar standa á tímamótum. Ég merkti það til dæmis á því að allir voru tilbúnir að leggja sitt af mörkum, og það með glöðu geði. Maður fann þarna fyrir feikna orku sem er orðið tímabært að virkja. Það var hreint frá- bært að vinna að þessari sýningu. Þetta vannst allt miklu betur en við þorðum nokkum tíma að vona. En fólkið var ekki bara opið heldur voru margir tilbúnir að kosta sýninguna og svo sýndu fjölmiðlamir okkur mikinn áhuga.“ Þetta hefur væntanlega líka eitthvað með velgengni Filippíu í Smirnoff- keppninni f Brasilíu að gera. Það hafa margir beðið þess að sjá meira frá henni. Alex: ,Já,já velgengni Filippíu sem fatahönn- uðar er augljós ástæða allrar athyglinnar.“ Les: „Fólk er líka farið að skynja að tískusýning er ekki bara einhver fatasýning á einhvemveg- in fötum. Það er hönnun, hugsun, heild og heilmikil vinna á bak við svona sýningu. Og þegar það allt gengur upp, þá er tískusýningin líka skemmtun. Sýningin í Kolaportinu var líka fagmannlega unnin, en þar kom reynsla okkar Alexar af fýrirsætustörfunum að góðu gagni.“ Alex: „Næst held ég það verði verði erfiðara að ná sömu athygli. Menn væntu mikils af Fil- ippíu og hún stóð fyllilega undir þeim vænt- ingtun. Svo er allt nýtt svo spennandi. Og þessi sýning var eitthvað alveg „nýtt“ á Islandi.“ Hefði þessi sama sýning gengið upp á sömu forsendum í Bretlandi? Alex: „Það hefði verið miklu eifiðaia. Það ligg- ur í augum uppi að á Islandi hefur Filippía góð sambönd og hér er samkeppnin miklu minni en úti. Það hefði verið hægt, en það hefði krafist enn meiri vinnu. Annars tel ég að sýningin sem slík hefði sómt sér hvar sem er í heiminum. Fyiir mína parta fmnst mér alveg kominn tími á að Islendingar spreyti sig er- lendis með eigin stfl. Þeir hafa allt til alls, næga undirbyggingu; háa greindarvísitölu, sterka fjölskyldu. Allt. Stoðirnar eru svo sterkar hjá ykkur.“ Les: „Það á ekki bara við um famað. Island er bæði hreint og fagurt land og ætti að gera skurk í því að markaðssetja sig sem umhverfis- vænt land. Það er til lítils að selja íslenskt vatn í útlöndum ef enginn veit svo mikið sem hvar Island er staðsett á landakortinu og hvað land- ið hefixr upp á að bjóða.“ Alex: „Þegar ég hef sagt fólki frá veru minni á Islandi fá flestir hroll. Almennt telur fólk að Is- land sé eitt stórt ffystihús.“ Hvernig hefur ykkur annars verið tekiö, Skotum á íslandi, er stutt í hrokann? „Nei.. .eða njá,“ segir Les og hikar. Alex getur ekki stillt sig um að hlæja. En Les heldur áfram. „Ég hef mikið verið að velta þessu fýrir mér. Linda segir að þetta sé feimni. Eðlilega er fólk feimið við rnann. Maður kemurjú frá „Þegar ég kom fyrst sá ég Reykjavík fyrir mér sem lítinn bæ með margt upp á að bjóða. Þá var ég reyndar ekki kominn í kast við kjaftasög- urnar“ öðru landi og talar dagsdaglega annað tungu- mál. Þessi feimni kemur stundum fram í að fólk rýfur snögglega samræður við rnann og án skýringa. Islendingar eru kannski margir óvanir að tjá sig á ensku í sínu heimalandi. Þeir eiga þó til að bjóða manni upp á glas og sýna þannig hug sinn í stað þess að leggja út í flóknar samræður. Svo hef ég sterklega á tíl- finningunni að þessi kaldhæðnislegi, enski húmor okkar virki stundum fráhrindandi. Hann hljóma að minnsta kosti ekki vel þegar þa þarf að þýða hann yfir á íslensku. En hann hefur öfuga merkingu“ segir Les afsakandi. „Húmorinn felst í gagnstæðri merkingu orð- anna,“ ítrekar Alex, svo það hvarflar óneitan- lega að manni að fleiri en einn hafi tekið kald- hæðni þeirra óstinnt upp. Alex: „Við erum bara velmeinandi. Þýðing getur eðlilega misfarist. Við verðum líklega bara að sætta okkur við það að tala svona okk- ar á rnilli. Maður er alltaf að læra.“ Les: „Það er líka annað og meira sem tak- markar okkur og ekki síður ykkur Islending- ana líka, en það er verðlagið.“ Áttu við t.d. verðlagið á bjórnum, spyr ég eóli málsins samkvæmt þar sem við höfum þegar hvert um sig skolað í það minnsta einum niður og erum enn ekki orðin nógu kærulaus til þess bíða án kvíða eftir reikningn- um. „Skítt með bjórinn," svarar Les. „En ef það væri hægt að ferðast ódýrar, þá væri manni borgið. Hugsaðu þér, það kostar mig minnst 35 þúsund kall að ferðast til og frá London. Ég er viss um að ýmislegt í fari Islendinga væri öðruvísi ef þeir hefðu tök á því að flakka meira. Auðvitað veit ég að Islendingar ferðast mjög mikið, en ég er ekki að tala um margra vikna frí, heldur þetta að geta skroppið í ann- að land og átt svona stutt stopp í öðruvísi um- hverfi. Hins vegar eru þessa ferðir mínar ekki til þess að slaka á og skemmta mér í nýju um- hverfi, því ég fer reglulega út til að vera með syni mínum sem býr í London. En ég hef oft velt því fýrir mér hvort ýmislegt væri ekki öðru- vísi hér ef fólk ætti tök á að slaka á í nýju um- hverfi, rétt eins og Evrópubúar geta gert, án þess að það kostaði þessi ósköp.“ Alex: „Verðlagið verður að breytast. Ég þekki marga sem eru æstir í að koma hingað til lands og myndu hiklaust gera ef það væri ekki svona dýrL“ Les: „Marga vina okkar í London langar mik- ið til að korna til Islands, en þegar þeir heyra hvað það kostar að lifa hér í viku og hafa það nokkuð gott fallast þeim hendur. Það kostar minnst 100 þúsund kall að eyða viku á Islandi með öllu tilheyrandi. Fyrir sama pening er hægt að fara til sólarlanda, t.d. Spánar eða Marokkó, og lifa í vellystíngum í lengri tíma. Ef þetta breytist á Island glæsta framtíð fýrir sér, ekki síst Islendingar sem veitír ekki af því að fá að anda endrum og sinnum.“ Svo líf ykkar á Fróni er ekki eintómur dans á rósum? „Því fýlgjajafnmargir kostir og gallar að búa á Islandi," segir Les og verður hugsi og um leið virðist sem viðtalið sé að taka aðra stefnu. Og hannjánkar næstu spumingu. „Það er alveg rétt, það hefur ekki alltaf verið auðvelt að vera útlenski kærastínn hennar Lindu Pé héma á Islandi. Hefur bara stundum verið dálítið erf- itt, skal ég segja þér.“ Hann hækkar róminn: „En svo kemur á móti að þetta hefur líka verið afar skemmtílegt tímabil, þótt það hafi verið stöðugt álag á sambandi okkar.“ Hvað segir þú, Alex, eftir þriggja mánaða dvöl á Islandi? Alex: „Það er sko ólíku saman aðjafna að búa í London eða í Reyljavík. I sjö milljóna manna borg er ekkert auðveldara en að láta sig hverfa í mannhafið. I London fer maður frjáls ferða sinna; fer út að skemmta sér á föstudagskvöldi og þarf ekki að hafa höfuð- verk þegar maður vaknar á mánudagsmorgni. Enginn veit með hverjum þú varst, hvert þú 60) ágúst - september / Heimsmynd
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.